Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 26.–29. ágúst 20166 Fréttir
FÁKASEL - FYRIR ALLA
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050
matur, drykkur
og skemmtun
Landsbankinn hafnaði
hærra kauptilboðinu
n Seldi einbýlishús á undirverði n Kaupandinn leiddi Borgunarhópinn
L
andsbankinn féllst í janúar
á kauptilboð í einbýlishús í
Hafnarfirði sem var 2,5 millj
ónum króna lægra en ann
að tilboð sem bankanum
barst rúmum mánuði áður. Bank
inn seldi einbýlishúsið án þess að
hafa aftur samband við tilboðsgjaf
ann sem átti hærra boðið. Verkferl
um um sölu íbúðarhúsnæðis í eigu
fyrirtækisins var í kjölfarið breytt
og tilboðsgjafinn beðinn afsökun
ar. Húsið var selt Magnúsi Magn
ússyni, fjárfesti og forsvarsmanni
Eignarhaldsfélagsins Borgunar, og
eiginkonu hans.
„Þykir þetta afar leitt“
Einbýlishúsið, sem er 210 fermetr
ar að stærð og stendur við götuna
Lækjarberg í Hafnarfirði, var í eigu
Hamla, dótturfélags Landsbankans
sem sér um umsýslu og sölu eigna
sem ríkisbankinn leysir til sín vegna
fullnustu krafna. Húsið var auglýst
til sölu þann 14. desember 2015 og
var ásett verð 69,8 milljónir króna.
Sex fasteignasölur tóku eignina til
sölumeðferðar og þremur dögum
síðar barst fyrsta boð upp á 64 millj
ónir króna. Tilboðsgjafinn, sem
vill ekki láta nafns síns getið, sagði
í samtali við DV að hann og eigin
kona hans hefðu haft augastað á
húsinu í mörg ár og áður gert tilboð
í það árið 2010.
Bankinn hafnaði tilboðinu og
gerði gagntilboð upp á 67,5 millj
ónir. Tilboðsgjafinn sætti sig ekki
við það verð og í kjölfarið bárust
bankanum lægri tilboð, sem öll
voru undir 60 milljónum króna, frá
öðrum áhugasömum aðilum. Þann
21. janúar síðastliðinn, rúmum
mánuði eftir að bankanum barst 64
milljóna tilboðið, samþykkti hann
kauptilboð Magnúsar Magnússon
ar og Brynhildar Helgadóttur, eig
inkonu hans. Hljóðaði það upp á
61,5 milljónir. Kaupsamningur um
eignina var svo undirritaður í byrj
un apríl.
„Bankinn taldi á þessum tíma
punkti að upphaflegt verðmat
hefði verið of hátt og var því tilbú
inn til að fallast á lægra verð. Því
miður var ekki haft samband við
þau sem höfðu boðið 64 milljón
ir króna þann 17. desember 2015
til að kanna hvort þau hefðu áhuga
á að endurvekja tilboð sitt. Bank
anum þykir þetta afar leitt og hef
ur beðið viðkomandi velvirðingar,“
segir í skriflegu svari Landsbankans
við fyrirspurn DV.
Verklagi breytt
Hjónin sem áttu hærra boðið íhug
uðu um tíma að fá lögfræðing til að
kanna hvort Landsbankinn, sem er
nánast alfarið í eigu íslenska ríkis
ins, væri skaðabótaskyldur vegna
sölunnar. Í svari Landsbankans við
fyrirspurn DV er bent á að fyrir
tækið hafi í mars síðastliðnum sett
sér nýja stefnu um sölu eigna og
breytt verkferlum til samræmis við
hana. Stefnubreytinguna má rekja
til harðrar gagnrýni í kjölfar sölu
bankans á 31,2% hlut í kortafyrir
tækinu Borgun í nóvember 2014.
Líkt og frægt er orðið seldi bankinn
eignarhlutinn í lokuðu söluferli án
þess að gera kröfu um hlutdeild í
milljarðagreiðslu sem Borgun barst
í júní síðastliðnum vegna yfirtöku
Visa Inc. í Bandaríkjunum á Visa
Europe.
Bankaráð Landsbankans ákvað
fyrir tveimur vikum að höfða mál
þar sem það telur bankann hafa
farið á mis við fjármuni í viðskipt
unum. Magnús Magnússon leiddi
viðræður Eignarhaldsfélagsins
Borgunar slf. við Landsbankann en
félagið keypti 24,96% hlut í kortafyr
irtækinu. Í því tilviki viðurkenndu
stjórnendur bankans, og hörmuðu,
einnig mistök við sölu á þeirri eign.
„Af því tilefni vill Landsbankinn
taka fram að við mat á tilboðum er
litið til upphæðar tilboðs, greiðslu
tilhögunar og slíkra þátta, en ekki
er kannað hvaða störfum viðkom
andi tilboðsgjafi gegnir eða hefur
gegnt. Starfsmaður bankans sem
sá um sölu viðkomandi fasteignar
hafði engar upplýsingar um störf
viðkomandi tilboðsgjafa,“ segir í
skriflegu svari Landsbankans vegna
fyrirspurnar DV um söluna á ein
býlishúsinu við Lækjarberg.
Ríkisendurskoðun vinnur nú að
úttekt á allri eignasölu Landsbank
ans á árunum 2010–2016 eins og
DV greindi frá fyrir viku. Ákveðið
var að ráðast í hana vegna beiðna
frá einstaka þingmönnum, Lands
bankanum og Bankasýslu ríkis
ins um að hún tæki eignasöluna til
skoðunar í kjölfar Borgunarmáls
ins. Niðurstaðan verður send Al
þingi í nóvember. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Landsbankinn Ríkisbankinn seldi einbýlishús í Hafnarfirði á 61,5 milljónir króna þrátt fyrir
að hann hafi rúmum mánuði áður hafnað tilboði upp á 64 milljónir. Mynd SiGtryGGur Ari
Bankastjórinn Steinþór Pálsson sagðist í
frétt DV fyrir viku ekki eiga von á öðru en að
niðurstaða Ríkisendurskoðunar á eignasölu
bankans yrði sú að alltaf hafi verið farið eftir
reglum og verkferlum bankans. Stjórnendur
fyrirtækisins tilkynntu í mars síðastliðnum
að reglum og verkferlum hefði verið breytt
vegna Borgunarmálsins. Mynd LAndSBAnkinn
„Bankanum
þykir þetta afar
leitt og hefur beðið við-
komandi velvirðingar.
Aðeins tveir skilað uppgjöri
Hafa mánuð til að skila fjárhagslegu uppgjöri
A
ðeins hafa tveir frambjóð
endur af þeim níu sem buðu
sig fram til forseta í sumar
skilað fjárhagslegu uppgjöri
um kosningabaráttu sína til Ríkis
endurskoðunar. Þetta eru þær Guð
rún Margrét Pálsdóttir og Hildur
Þórðardóttir.
Frambjóðendum í kjöri til emb
ættis forseta Íslands ber að skila
upplýsingum um tekjur og kostnað
vegna kosningabaráttu til Ríkisend
urskoðunar. Séu heildartekjur eða
heildarkostnaður yfir 400 þúsund
króna ber frambjóðanda að skila
uppgjöri. Samkvæmt reglum Rík
isendurskoðunar skulu frambjóð
endur skila fjárhagslegu uppgjöri
kosningabaráttu sinnar eigi síðar en
þremur mánuðum frá því að forseta
kjör fór fram. Hinir sjö frambjóðend
urnir, þar á meðal Guðni Th. Jóhann
esson, forseti Íslands, hafa því um
mánuð til stefnu.
Þegar uppgjörin hafa verið yf
irfarin og staðfest af Ríkisendur
skoðun, verða þau birt á vef stofn
unarinnar. Í forsetakosningunum
2012 var forsetaframboð Þóru Arn
órsdóttur það dýrasta, en kostnaður
við það nam rúmum 15,6 milljónum
króna en tekjur framboðsins námu
rúmum 16 milljónum. n
mikael@dv.is
Eftir að skila Guðni
Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, á ásamt
sex öðrum meðfram-
bjóðendum sínum til
embættis forseta, eftir
að skila uppgjöri vegna
kosningabaráttu sinnar.
Þau hafa mánuð enn til
stefnu. Mynd SiGtryGGur Ari
Bændur eru æfir
Landssamband sauðfjárbænda
telur lækkun Sláturfélags Vopn
firðinga og Norðlenska á afurða
verði til bænda glórulausa. Norð
lenska tilkynnti á miðvikudag að
það hyggðist greiða bændum 10
prósent minna en áður fyrir lömb
en 38 prósent minna fyrir full
orðið fé.
Sláturfélag Vopnfirðinga hefur
fylgt í fótspor Norðlenska og boð
að 12 prósenta lækkun. Lands
samtök sauðfjárbænda harma
ákvörðun Sláturfélags Vopn
firðinga og „telja hana álíka glóru
lausa og þá sem Norðlenska kynnti
í gær[miðvikudag].“ Þau óttast
áhrifin sem lækkunin muni hafa
á sveitir landsins. „Harkaleg 12%
lækkun á lambakjöti sætir furðu á
meðan innanlandssala eykst, vext
ir fara lækkandi, efnahagshorfur
eru góðar og heimsmarkaðsverð
á lambakjöti er á uppleið,“ segir á
sauðfé.is, heimasíðu sambandsins
Sambandið, rétt eins og Slátur
félag Vopnfirðinga, óttast að versl
unin muni taka til sín lækkunina.
Sláturfélag Vopnfirðinga segir í
rökstuðningi sínum að útflutning
ur á hliðarafurðum hafi gengið illa
og birgðir safnast upp, rétt eins og
Norðlenska.
Nafn hins
látna
Maður inn sem lést í umferðar
slysi við höfnina á Hvammstanga
á miðvikudag hét Vilém Ca
hel. Hann var tékkneskur en bjó
ásamt eftirlifandi sambýliskonu
sinni á Hvammstanga.
Vilém var á sextugsaldri og
hafði búið á Íslandi í talsverðan
tíma, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Blönduósi.
Minningarstund var haldin í
Hvammstangakirkju á fimmtu
dagskvöld.