Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 30
Helgarblað 26.–29. ágúst 201630 Menning SKÓLADAGAR 20% afsláttur af gleraugum Bláuhúsin v. FaxafenKringlunniSkólavördustíg 2 Söngleikir og sögur úr samtímanum n Stóru leikhúsin kynna dagskrá vetrarins um þessar mundir n Leikárið 2016 U m þessar mundir eru dag- skrárbæklingar atvinnuleik- húsanna fyrir komandi leikár að renna út úr prent- smiðjum og markaðsdeildir keyra á yfirsnúningi við að auglýsa og sannfæra mögulega leikhúsgesti um að dagskráin hafi aldrei verið betri. DV kíkti á hvað verður í boði í leik- húsum landsins og sló á þráðinn til fjögurra leikhússtjóra. n Þjóðleikhúsið Fyrsta frumsýning ársins hjá Þjóðleikhúsinu verður söngleikur byggður á Reykjavíkur- sögu Einars Kárasonar, Djöflaeyjunni. Upp- haflega átti að sýna verkið á síðasta leikári en vegna vinsælda Í hjarta Hróa hattar var frumsýningu frestað fram til 3. september. Atli Rafn Sigurðsson leikstýrir en verkið er unnið í samstarfi við Baltasar Kormák. Leikgerðir byggðar á skáldsögum verða nokkuð áberandi í þjóðleikhúsinu, tvær sýningar eru byggðar á nýlegum erlendum skáldsögum og þrjár íslenskar skáldsögur verða settar upp, Djöflaeyjan, Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur og Gott fólk eftir Val Grettisson. „Við leggjum upp með að segja áhugaverðar sögur sem hafa einhverja tengingu við samfélagið í dag – og ef við erum að takast á við eldri verk þá viljum við finna þeim skírskotun í dag,“ segir Ari Matthíasson aðspurður um áherslu leikhússins í verkefnavalinu í ár. Í þessu samhengi nefnir hann allt frá Góðu fólki til Djöflaeyj- unnar, Aftur á kreik og Óþelló. Gullkálfurinn Þorleifur Örn Arnarsson mætir aftur í Þjóðleik- húsið með verk byggt á þýsku Hitler-grínbókinni Aftur á kreik. Þýsk kvikmynd hefur verið unnin upp úr bókinni en nú verður hún í fyrsta skipti sett upp sem sviðsverk. Vesturport átti gott „come- back“ í fyrra með hinni æsilegu fjölskyldusýningu Í hjarta Hróa hattar og Gísli Örn og kompaní munu setja upp jólasýninguna í ár, Óþelló eftir William Shakespeare. Svisslendingurinn Stephan Metz kemur og leikstýrir klassísku verki eftir Arthur Miller, Horft frá brúnni. Af frumflutningi á íslenskum leikritum er það að frétta að Guðjón Davíð Karlsson, Gói, skrifar nýtt barnaverk, Fjarskaland, fyrir stóra sviðið og mun Selma Björnsdóttir leikstýra. Þá verður í fyrsta skipti sett upp leikritið Húsið eftir eitt helsta leikskáld Íslendinga, Guðmund Steinsson (1925–1996). Þjóðleikhúsið mun svo ferðast um landið með barnaeinleik- inn Lofthræddi örninn Örvar. Af nýliðum í ábyrgðarmiklum hlutverkum í leikhúsinu segir Ari: „Við erum með tvær glænýjar leikkonur sem eru nýútskrifaðar, það eru Aldís Ama Hamilton sem leikur Desdimónu – eitt stærsta hlutverkið í Óþelló – og svo er það Snæfríður Ingvarsdóttir sem leikur aðalhlutverkið í Fjarskalandi og stór hlutverk í Djöflaeyjunni og Tímaþjófinum. Svo er það Gussi, Gunnar Jónsson, sem hefur ekki leikið áður á sviði í atvinnuleikhúsi en er náttúr- lega margverðlaunaður um allan heim.“ Borgarleikhúsið Á síðasta ári sankaði Borgarleikhúsið að sér verðlaunum, bæði á Grímunni og Menningarverðlaunum DV, og þá aðallega fyrir leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar og Mikaels Torfasonar á Njálu. „Í fyrra var áhersla lögð á að skoða okkar sögur, bæði í sagnaarfinum eins og í Njálu og samtímasögu eins og í Flóð. Í ár er áherslupunkturinn hins vegar sterk kvenhlutverk og sterkar kvenpersónur. Það er oft talað um að það sé skortur á bitastæðum hlut- verkum fyrir konur og við vorum mjög meðvituð um það í verkefnavali ársins. Auk þess erum við svolítið að fjalla um samskipti kynjanna og kynhlutverkin,“ segir Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri og nefnir í því samhengi söngleikinn Ellý og Sölku Völku, en einnig samstarfsverk- efnin Hannes og Smári og Hún pabbi. Ellý er nýr söngleikur Ólafs Egilssonar, Gísla Arnar Garðarssonar og Vesturports, sem er byggður á ævi Ellýar Vilhjálmsdóttur söngkonu. Salka Valka verður hins vegar áramótasýning Borgarleikhússins og verður það lettnesk- bandaríski leikstjórinn Yana Ross sem leikstýrir uppsetn- ingu á þessari klassísku skáldsögu Halldórs Laxness, en hún sló í gegn þegar hún leikstýrði Mávinum eftir Tsjékhov í fyrra. Titilhlutverkið verður í höndum hinnar 25 ára gömlu Þuríðar Blævar Jóhannsdóttur. Fyrsta frumsýningin á stóra sviðinu í haust verður Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason og er það stóri barna- og fjölskyldusöngleikur ársins í leikhúsinu. Mary Poppins- og Billy Elliott-leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson stýrir 22 börnum sem munu fljúga um sviðið og Kristjana Stefánsdóttir gerir sönglög við söguna. Þá verður áhugavert að sjá hvernig tekst upp þegar Magnús Geir Þórðarson, Ríkisútvarpsstjóri, snýr aftur í leikhúsið og leikstýrir gamanverkinu Úti að aka eftir farsakónginn Ray Cooney. Borgarleikhúsið hefur undanfarin ár einnig tekið upp á sína arma tónlistarmenn og gert sýningar tengdar verkum þeirra. Trúðaleikur við tónlist Skálmaldar fyrir tveimur árum og hugguleg kvöldstund með KK í fyrra. Í ár fær rappgjörningalistahópurinn Reykjavíkurdætur lausan tauminn, en nokkrar þeirra eru lærðar sviðslistakonur eða hafa sterk tengsl við leikhúsið. Kristín segir að leikarahópur Borgarleikhússins sé nokkuð óbreyttur frá því í fyrra en hins vegar verði nokkrir nýir leikstjórar kynntir til leiks. „Dóra Jóhannsdóttir, sem hefur verið að leiða spunasenuna með Improv Ísland mun leikstýra sínu fyrsta verki í Borgarleikhúsinu, Ræman, sem er samtímaverk sem fékk Pulitzer-verðlaunin sem besta leikritið. Marta Nordal hefur ekki verið hérna í langan tíma en hún mun leikstýra nýju verki eftir Bjarna Jónsson, Sending. Svo sýnum við fyrsta leikstjórnarver- kefni Ragnheiðar Skúladóttur hjá leikhúsinu, en hún hefur verið listrænn stjórnandi Lókal. Hún leikstýrir Extravaganza, nýju verki eftir Sölku Guðmundsdóttur.“ Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Nýjar sýningar: 12 Barnasýningar: 3 Byggt á bók: 5 Frumsamið íslenskt leikrit: 3 Erlend saga/verk: 6 Leikstýrt af konu: 5 Áskriftarkort: 4 sýningar á 15.900 krónur Nýjar sýningar: 14 (sýningar Íslenska dans- flokksins og samstarfs- sýningar í leikhúsinu þar með taldar) Barnasýningar: 3 Byggt á bók: 2 Frumsamið íslenskt leikrit: 9 Erlend saga/verk: 3 Leikstýrt af konu: 6 Áskriftarkort: 4 sýningar á 17.900 krónur (netverð 16.500 krónur). „Við leggjum upp með að segja áhuga- verðar sögur sem hafa einhverja tengingu við samfélagið í dag Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri. MyNd FAcEBooK-síðA ArA Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri. MyNd siGtryGGur Ari Þjóðleg djöflaeyja Fyrsta stóra verkið sem verður frumsýnt í Þjóð- leikhúsinu í haust verður söngleikurinn Djöflaeyjan sem er unninn í samstarfi við Baltasar Kormák. 22 svífandi krakkar Fyrsta frumsýningin á stóra sviði Borgarleikhússins verður barna- og fjölskyldusöngleikur byggður á Bláa hnettinum eftir Andra Snæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.