Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 26.–29. ágúst 20168 Fréttir Við tökum upp söngvara, hljóðfæraleikara, hljómsveitir, hljóðbækur, og margt fleira Stúdíó NORN Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn Fjárfestar vilja byggja 75 námsmannaíbúðir n Bíða samþykkis Hafnarfjarðarbæjar n Eigandi nærliggjandi lóðar ósáttur við áformin I ngi Guðjónsson, lyfjafræðingur og fyrrverandi forstjóri Lyfju, leið­ ir hóp fjárfesta sem vilja byggja allt að 75 námsmannaíbúðir á bílastæði Tækniskólans í Hafnar­ firði. Fjárfestingarfélag þeirra hefur skilað inn kynningu á verkefninu til bæjaryfirvalda og óskað eftir sam­ þykki fyrir breytingum á skipulagi svæðisins. Eigandi einbýlishúss sem stendur á nærliggjandi lóð krefst þess að Hafnarfjarðarbær hafni hugmynd­ um fjárfestanna. „Markmiðið með framkvæmd­ unum er að styðja við framtíðarveru Tækniskólans í Hafnarfirði. Með­ al þess er að geta boðið nemendum íbúðir á lóð skólans. Arkitektinn nálg­ ast verkefnið þannig að við erum að brúa bilið á milli einbýlishúsa sem þarna eru og stærri blokka og horft er til lágmarks ónæðis við íbúa,“ seg­ ir Ríkharð Ottó Ríkharðsson, fram­ kvæmdastjóri Taper ehf. og hluthafi í verkefninu. Á húsnæði skólans Taper sendi Hafnarfjarðarbæ fyrir­ spurn um skipulagsbreytingu í byrj­ un júní vegna lóðarinnar Flatahraun 12. Félagið er með lóðarleigusamning við sveitarfélagið en um er að ræða 13.640 fermetra svæði. Um 250 bíla­ stæði eru á lóðinni en eigendur Taper sjá fyrir sér að nýta hluta hennar und­ ir 60 til 75 íbúðir fyrir ungt fólk og nemendur sem yrðu 40 til 80 fermetr­ ar að stærð. Vilja þeir byggja tveggja og fjögurra hæða fjölbýlishús. Taper á húsnæði Tækniskól­ ans í Hafnarfirði en félagið er í eigu Lyklafells ehf. Að sögn Ríkharðs er Ingi Guðjónsson stærsti hluthafi Lyklafells en upplýsingar um eigend­ ur þess hafa ekki verið uppfærðar hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Ingi Guðjónsson er menntaður lyfja­ fræðingur og einn stofnenda Lyfju. Árin eftir hrun var hann ítrekað á lista Ríkisskattstjóra yfir hæstu skattgreið­ endur landsins. Þá hefur hann kom­ ið að ýmsum fasteignaverkefnum í Reykjavík, er hluthafi í Skeljungi og var um tíma einn eigenda spænska lyfjafyrirtækisins Invent Farma. Rík­ harð Ottó starfar einnig sem fram­ kvæmdastjóri Nýs Norðurturns við Smáralind. „Hugmyndafræðin er að nýta þessa stóru lóð sem þarna er og fara í þéttingu byggða með þessum hætti. En við erum einungis á fyrstu stigum þessa ferlis og það mun væntanlega taka tólf til átján mánuði að vinna þetta með bænum,“ segir Ríkharð og svarar aðspurður að kostnaður verk­ efnisins liggi ekki fyrir. Ósáttur íbúi Í fyrirspurn Taper til skipulags­ og byggingaráðs Hafnarfjarðar er spurt hvort bærinn sjái einhverja ann­ marka á að félagið ráðist í vinnu við breytingar á deiliskipulagsáætlun svæðisins og aðalskipulagi. Er þar vísað í nýlega greinargerð sveitarfé­ lagsins þar sem lóðin er skilgreind sem mögulegt nýbyggingasvæði. íbúabyggð á henni geti uppfyllt ýmis markmið greinargerðarinnar eins og að koma til móts við íbúðaþörf vegna fólksfjölgunar. Ekki var tekin afstaða til fyrir­ spurnarinnar á síðasta fundi ráðsins á þriðjudag en það óskaði þá eftir um­ sögn Tækniskólans um verkefnið. Þá var skipulagsfulltrúa bæjarins falið að svara Guðmundi Siemsen, lög­ manni hjá Advel lögmönnum, sem sendi bænum bréf í lok júlí fyrir hönd Arnars Þórs Gíslasonar, veitinga­ manns í Reykjavík og eiganda ein­ býlishúss við Mávahraun. Fyrirspurn Taper er mótmælt í bréfinu og segir þar að hugmyndir forsvarsmanna fé­ lagsins fari í engu saman við gildandi skipulagsáætlanir svæðisins. „Umbjóðandi minn leggst ein­ dregið gegn framkomnum hugmynd­ um lóðarleigutaka um svo umfangs­ miklar breytingar á skipulagsáætlun svæðisins og krefst þess að skipulags­ og byggingarráð hafni þeim að öllu leyti,“ segir Guðmundur í bréfinu. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Hlið við hlið Íbúi við Mávahraun er ósáttur við byggingaráform fjárfestanna. Mynd SiGtryGGur Ari Lyfjafræðingur Ingi Guðjónsson hefur komið að ýmsum fasteignaverkefnum í Reykjavík. Hann vill nú byggja námsmanna- íbúðir á lóð Tækniskólans í Hafnarfirði. Lóðin Hugmyndir fjárfestanna ganga út á að byggð verði tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishús með allt að 75 íbúðum. Verið ávallt velkomin Almar bakari Bakarí og kaffihús Sunnumörk Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17 Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt að 18 tíma og því notum við engan viðbættan sykur, minna salt og minna ger í hvert og eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.