Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Page 8
Helgarblað 26.–29. ágúst 20168 Fréttir
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn
Fjárfestar vilja byggja
75 námsmannaíbúðir
n Bíða samþykkis Hafnarfjarðarbæjar n Eigandi nærliggjandi lóðar ósáttur við áformin
I
ngi Guðjónsson, lyfjafræðingur
og fyrrverandi forstjóri Lyfju, leið
ir hóp fjárfesta sem vilja byggja
allt að 75 námsmannaíbúðir á
bílastæði Tækniskólans í Hafnar
firði. Fjárfestingarfélag þeirra hefur
skilað inn kynningu á verkefninu til
bæjaryfirvalda og óskað eftir sam
þykki fyrir breytingum á skipulagi
svæðisins. Eigandi einbýlishúss sem
stendur á nærliggjandi lóð krefst þess
að Hafnarfjarðarbær hafni hugmynd
um fjárfestanna.
„Markmiðið með framkvæmd
unum er að styðja við framtíðarveru
Tækniskólans í Hafnarfirði. Með
al þess er að geta boðið nemendum
íbúðir á lóð skólans. Arkitektinn nálg
ast verkefnið þannig að við erum að
brúa bilið á milli einbýlishúsa sem
þarna eru og stærri blokka og horft
er til lágmarks ónæðis við íbúa,“ seg
ir Ríkharð Ottó Ríkharðsson, fram
kvæmdastjóri Taper ehf. og hluthafi í
verkefninu.
Á húsnæði skólans
Taper sendi Hafnarfjarðarbæ fyrir
spurn um skipulagsbreytingu í byrj
un júní vegna lóðarinnar Flatahraun
12. Félagið er með lóðarleigusamning
við sveitarfélagið en um er að ræða
13.640 fermetra svæði. Um 250 bíla
stæði eru á lóðinni en eigendur Taper
sjá fyrir sér að nýta hluta hennar und
ir 60 til 75 íbúðir fyrir ungt fólk og
nemendur sem yrðu 40 til 80 fermetr
ar að stærð. Vilja þeir byggja tveggja
og fjögurra hæða fjölbýlishús.
Taper á húsnæði Tækniskól
ans í Hafnarfirði en félagið er í eigu
Lyklafells ehf. Að sögn Ríkharðs er
Ingi Guðjónsson stærsti hluthafi
Lyklafells en upplýsingar um eigend
ur þess hafa ekki verið uppfærðar
hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.
Ingi Guðjónsson er menntaður lyfja
fræðingur og einn stofnenda Lyfju.
Árin eftir hrun var hann ítrekað á lista
Ríkisskattstjóra yfir hæstu skattgreið
endur landsins. Þá hefur hann kom
ið að ýmsum fasteignaverkefnum í
Reykjavík, er hluthafi í Skeljungi og
var um tíma einn eigenda spænska
lyfjafyrirtækisins Invent Farma. Rík
harð Ottó starfar einnig sem fram
kvæmdastjóri Nýs Norðurturns við
Smáralind.
„Hugmyndafræðin er að nýta
þessa stóru lóð sem þarna er og fara
í þéttingu byggða með þessum hætti.
En við erum einungis á fyrstu stigum
þessa ferlis og það mun væntanlega
taka tólf til átján mánuði að vinna
þetta með bænum,“ segir Ríkharð og
svarar aðspurður að kostnaður verk
efnisins liggi ekki fyrir.
Ósáttur íbúi
Í fyrirspurn Taper til skipulags og
byggingaráðs Hafnarfjarðar er spurt
hvort bærinn sjái einhverja ann
marka á að félagið ráðist í vinnu við
breytingar á deiliskipulagsáætlun
svæðisins og aðalskipulagi. Er þar
vísað í nýlega greinargerð sveitarfé
lagsins þar sem lóðin er skilgreind
sem mögulegt nýbyggingasvæði.
íbúabyggð á henni geti uppfyllt ýmis
markmið greinargerðarinnar eins og
að koma til móts við íbúðaþörf vegna
fólksfjölgunar.
Ekki var tekin afstaða til fyrir
spurnarinnar á síðasta fundi ráðsins á
þriðjudag en það óskaði þá eftir um
sögn Tækniskólans um verkefnið. Þá
var skipulagsfulltrúa bæjarins falið
að svara Guðmundi Siemsen, lög
manni hjá Advel lögmönnum, sem
sendi bænum bréf í lok júlí fyrir hönd
Arnars Þórs Gíslasonar, veitinga
manns í Reykjavík og eiganda ein
býlishúss við Mávahraun. Fyrirspurn
Taper er mótmælt í bréfinu og segir
þar að hugmyndir forsvarsmanna fé
lagsins fari í engu saman við gildandi
skipulagsáætlanir svæðisins.
„Umbjóðandi minn leggst ein
dregið gegn framkomnum hugmynd
um lóðarleigutaka um svo umfangs
miklar breytingar á skipulagsáætlun
svæðisins og krefst þess að skipulags
og byggingarráð hafni þeim að öllu
leyti,“ segir Guðmundur í bréfinu. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Hlið við hlið Íbúi við Mávahraun er ósáttur við byggingaráform fjárfestanna. Mynd SiGtryGGur Ari
Lyfjafræðingur Ingi Guðjónsson hefur
komið að ýmsum fasteignaverkefnum í
Reykjavík. Hann vill nú byggja námsmanna-
íbúðir á lóð Tækniskólans í Hafnarfirði.
Lóðin Hugmyndir fjárfestanna ganga út
á að byggð verði tveggja til fjögurra hæða
fjölbýlishús með allt að 75 íbúðum.
Verið ávallt velkomin
Almar bakari
Bakarí og kaffihús Sunnumörk
Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17
Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega
og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt
að 18 tíma og því notum við engan viðbættan
sykur, minna salt og minna ger í hvert og
eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau
bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er
súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn
lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er
bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu.