Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 40
Helgarblað 26.–29. ágúst 2016 67. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Fékk hún hland fyrir hjartað? Broddi „sjomli“ n Útvarpsgoðsögnin á RÚV, Broddi Broddason, bauð óvænt upp á langan fróðleiksmola um nýyrðin „sjomli“ og „sjomla“ í hádegisfréttum RÚV á fimmtu- dag. „Sjomli“ hafði komið fyrir í máli formanna femínistafélags Verzló í fréttinni á undan. Við gefum Brodda orðið: „Orðið sjomli, í kvenkyni sjomla, er ekki að finna í ís- lenskri orðabók en er talsvert notað í óformlegu máli. Orðið er afbökun á gamli eða gamla. Gamli í merkingunni félagi og er í raun notað í samtölum við vini á öllum aldri. Sjomli mætti segja að væri töffari en flottari félagi en gamli. Í slangurorðabók er þó minnst á þetta ágæta orð, þar er til dæmis að finna orðið sjomlisjommsjomm sem merk- ir nettasti gaurinn á svæðinu. Rekja má vinsældir orðsins til smáskífu Friðriks Dórs, Auðuns Blön- dal og Sveppa frá 2011 sem heitir Sjomli.“ Pissublautar klósettsetur n Sú frétt sem Broddi var að út- skýra fjallaði um að kynjamerk- ingar hafa nú verið fjarlægðar af klósettum Verzlunarskóla Íslands til að auðvelda þeim nemend- um lífið sem ekki eru vissir hvaða kyni þeir tilheyra. Framtakið virð- ist mælast vel fyrir hjá nemendum en Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, er allt ann- að en hrifin. „Aumingja stelpurnar að fara á út- pissuð kló- sett – fyrir þetta borga foreldr- ar skóla- gjöld!!!“ skrifar hún á Facebook- síðu sína. S igríður Ýr Unnarsdóttir ætl- ar að hefja meistaranám í Há- skóla Íslands í byrjun sept- ember, en fyrst ætlar hún að setja heimsmet í ekinni vegalengd á svokölluðu pocket-mótorhjóli. „Ég veit ekkert um mótorhjól, en hugmyndin var bara svo fyndin og skemmtileg að ég og bandarískur vinur minn ákváðum að sækja um til heimsmetabókar Guinness að fá að setja þetta met,“ segir hún við DV. Sigríður er gefin fyrir ævintýri, en vinur hennar og mótorhjólafé- lagi, Mike Reid, er að hennar sögn enn meiri ævintýramaður. „Nýlega fórum við þvert yfir Bandaríkin á mótorhjóli og svo aftur til baka, og söfnuðum dágóðri fjárhæð fyrir góð- gerðarsamtök, og í lok ferðarinnar datt okkur heimsmetið í hug.“ Í ljós kom að heimsmetið á pocket-hjóli væri sennilega mögulegt að slá. Sigríður Ýr hefur þó aldrei svo mikið sem sest á svona smámótor- hjól. „Þetta er pínulítið hjól, pass- ar kannski fyrir 8 ára barn, svo að maður þarf að sitja á því með hnén upp að öxlum. Það kemur sér vel að hafa stundað jóga um árabil, því að við munum sitja á hjólunum í allt að 10 tíma á dag.“ Með í för verður þriðji aðilinn sem hefur góða þekkingu á hjólunum. Víðast hvar er harðbannað að aka á svona smáhjólum á venjulegum um- ferðargötum. „Við ákváðum að hjóla í gegnum nokkur miðríki Banda- ríkjanna, nánar tiltekið frá Ohio og niður til Nýju- Mexíkó. Lögin reyndust nægi- lega sveigjan- leg þar.“ Ferðin hefst þann 5. september með fallhlífarstökki í Ohio og svo munu þremenningarnir hoppa upp á hjólin og leggja í 2.500 kílómetra ferðalag sem endar á mót- orhjólasýningu í Nýju-Mexíkó þar sem tekið verður á móti þeim með pomp og prakt. Lokaundirbúningur stendur nú yfir, en Sigríður flýgur utan á laugar- daginn. n ragga@dv.is Í keng á pínulitlu mótorhjóli Ævintýrakonan Sigríður Ýr hyggur á heimsmet Ævintýrakona! Sigríður Ýr ætlar að setja heimsmet. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.