Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Blaðsíða 16
Helgarblað 26.–29. ágúst 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
16 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Veðmál Svandísar
Það telst tæpast til tíðinda þegar
íslenskir vinstrimenn finna því
allt til foráttu þegar ríkið ákveð-
ur að selja eignarhluti í fyrirtækj-
um sem það hefur á einhverjum
tímapunkti komist yfir. Það var
engu að síður furðulegt að hlusta
á Svandísi Svavarsdóttur, þing-
mann Vinstri-grænna, gagnrýna
sölu Lindarhvols, eignarhaldsfé-
lags ríkisins, á rúmlega 6% hlut í
Reitum í vikunni fyrir tæplega 4
milljarða. „Er um að ræða bruna-
útsölu undir pólitískri tíma-
pressu?“ spurði þingmaðurinn
og af málflutningnum að dæma
mátti halda að þessi hlutur í fast-
eignafélaginu hefði verið seldur
í skjóli myrkurs á undirverði, líkt
og reyndin var þegar Landsbank-
inn seldi þriðjungshlut sinn í
Borgun í árslok 2014.
Ekkert slíkt átti við í tilfelli
þessarar sölu. Hluturinn var
seldur í opnu söluferli á því
verði sem bréf í Reitum ganga
núna kaupum og sölum á enda
er félagið skráð í Kauphöll Ís-
lands. Þetta hlýtur þingmaður-
inn að vita nema hún sé þeirrar
skoðunar að það sé einfaldlega
hlutverk ríkisins að taka veð-
mál, sem minnihlutaeigandi í
stærsta fasteignafélagi landsins,
á verðþróun verslunarhúsnæðis
á höfuðborgarsvæðinu.
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
Takk fyrir mig, konur.
Ég rata út.
Frosti Logasonútvarpsmaður er agndofa eftir fæðingu frumburðarins. – DV
Hversu lengi eigi að
halda okkur hér.
Katrínu Jakobsdóttur formanni VG, leiðist þófið í þinginu.– Eyjan
Ég hef alveg kíkt inn
á karlaklósett.
Vigdís Hauksdóttir þingmaður vill ekki kynlaus salerni.– Facebook
Kranahagkerfi Byggingakranar gnæfa yfir nýbyggingum á Urriðaholti í Garðabæ. Þensla er á fasteignamarkaði og hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi mældist 4,2 prósent.
mynd Sigtryggur Ari
Myndin
S
tjórnmálaflokkar sem vilja
ná verulegum árangri verða
að höfða til miðjunnar. Geri
þeir það ekki fer oft illa fyr-
ir þeim, samanber Samfylk-
inguna. Hún apaði allt sem hún gat
eftir Vinstri-grænum með þeim ár-
angri að hún missti miðjufylgið.
Fyrrverandi formaður Samfylkingar-
innar, Árni Páll Árnason, hafði lengi
varað við þessari þróun með eng-
um árangri öðrum en þeim að flokk-
urinn losaði sig snarlega við hann.
Vinstra fylgið hefur þó ekki límst við
Samfylkinguna, enda eiga vinstri-
menn sinn flokk, Vinstri-græna, og
gæta sín á því að varast eftirlíkingar.
Samfylkingin hefur því
ekkert haft upp úr daðri
sínu á vinstri vængnum.
Viðreisn gerir sér
grein fyrir mikilvægi
miðjufylgisins og er líkleg
til að ná þar kjósendum
á sitt band og sömuleið-
is fjölmörgum frjálslynd-
um hægrimönnum sem
finna sig ekki í Sjálfstæð-
isflokknum. Úr þeim
hópi hafa þegar stigið
fram tveir sterkir fram-
bjóðendur sem nú eru
á lista Viðreisnar, Pawel
Bartozsek og Þorsteinn
Víglundsson. Báðir eru
skynsamir menn og vel
meinandi – og þannig
fólk þarf þjóðin að eiga
á þingi. Þorsteinn, sem
kaus að hætta í vel
launuðu starfi fram-
kvæmdastjóra Samtaka
atvinnulífsins til að snúa
sér að stjórnmálastarfi,
sagðist í viðtali á Hringbraut hafa
hrifist af Alþýðuflokki Jóns Baldvins
Hannibalssonar. Þar talaði Þorsteinn
sig inn í hjörtu hægri krata sem voru
aldrei velkomnir í Samfylkinguna og
hafa því of lengi verið heimilislaus-
ir. Þeir munu eflaust margir hreiðra
um sig hjá Viðreisn og finnast eins og
þeir séu loksins komnir aftur heim.
Viðreisn er líkleg til að taka fylgi frá
Sjálfstæðisflokki og sennilega einnig
Framsóknarflokki, sem hafa alltaf lagt
mikið upp úr því að höfða til miðj-
unnar. Vandi Sjálfstæðisflokksins er
sá að í hugum of margra kjósenda,
bæði á hægri væng og miðjunni,
starfar flokkurinn eins og varðhund-
ur sérhagsmuna og er því ekki lokk-
andi valkostur. Framsóknarflokk-
urinn á í formannsvanda sem ekki
er enn ljóst hvernig eða hvort verði
leyst úr. Flokkur sem glímir við inn-
anflokksátök er laskað vörumerki.
Framsóknarflokkurinn hefur síðan
færst til hægri á valdatíma Sigmund-
ar Davíðs Gunnlaugssonar og get-
ur því ekki treyst á miðjufylgið í jafn
ríkum mæli og áður. Samfylkingin er
þegar búin að missa miðjufylgið og
Vinstri-græn hafa aldrei kært sig um
það og hafa því engu að tapa. Pírat-
ar hafa svo tekið furðulega vanhugs-
aða vinstri sveiflu á síðustu vikum og
kunna þar með að hafa fælt frá sér
miðjufylgi sem þeim er svo nauðsyn-
legt ætli þeir að vera fjöldahreyfing.
Verði áberandi gott mannval á list-
um Viðreisnar, þá ætti flokkurinn að
standa uppi með pálmann í höndun-
um. n
Baráttan um miðjuna
„Viðreisn gerir sér
grein fyrir mikil-
vægi miðjufylgisins og er
líkleg til að ná þar kjós-
endum á sitt band og
sömuleiðis fjölmörgum
frjálslyndum hægrimönn-
um sem finna sig ekki í
Sjálfstæðisflokknum.
mynd Sigtryggur Ari
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is