Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Síða 13
Helgarblað 26.–29. ágúst 2016 Fréttir 13
og meðferð persónuupplýsinga sem
til verða við rafræna vöktun.
Persónuvernd skoði málið
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónu-
verndar, segir að vöktun á almanna-
færi sé almennt einungis heimil ef
hún er á hendi lögreglu. Einkaaðil-
um er hins vegar heimilt að vakta eig-
in eignarlóð í öryggis- og eignavörslu-
skyni. Viðvörun um vöktun með
tilheyrandi fræðslu þarf þá að vera til
staðar.
„Persónuvernd hefur ekki fengið
fregnir af þessu fyrirkomulagi IKEA
og ljóst að þetta er eitthvað sem gæti
þurft að skoða nánar,“ segir Helga.
Tæknin þróast hraðar en lögin
Aðspurður hvort þessi aðferð sé á gráu
svæði eða hvort þeir telji sig vera í full-
um rétti segir Þórarinn að hann treysti
sér ekki til að fullyrða um það.
„Málið er að tækninni fleytir stöð-
ugt fram og ég bara stórlega efast um
að Persónuvernd hafi nokkrar reglur
um þá tækni sem þú ert að lýsa. Það er
endalaust að koma ný og ný tækni og
aðferðir, bæði þeirra sem eru óheiðar-
legir og þeirra sem reyna að koma í
veg fyrir það. Alltaf þetta endalausa
vígbúnaðarkapphlaup. En án þess að
geta fullyrt það með Persónuvernd þá
efast ég um að þeir hafi sett af reglum
yfir þá hluti sem eru að gerast í tækni-
framförum. Ég þekki það ekki. En ég
held að bílar séu ekki persónur.“
En það er fólkið sem er í þeim,
skýtur blaðamaður inn í og bendir á
að almenningur lendi í myndavélinni
hvort sem þeir eigi erindi í IKEA eða
ekki. Fólk geti verið á leið í Toyota-
umboðið við hliðina á IKEA.
„Ef þeir eru ekki að koma til okk-
ar þá skiptum við okkur ekki af þeim,“
segir Þórarinn.
Aðspurður hvort einhver vinnsla
eða söfnun á upplýsingum eigi sér stað
með þessari númeraplötuskönnun
segir Þórarinn: „Ekki svo ég viti, nei.“
Löggjöfin óháð framförum
Forstjóri Persónuverndar tekur hins
vegar af öll tvímæli og segir óum-
deilt að persónuverndarlöggjöfin taki
einnig til upplýsinga sem óbeint megi
rekja til einstaklinga, s.s. bílnúmera.
Hvað nýja tækni varðar segir Helga
enn fremur að gildandi persónu-
verndarlöggjöf sé tæknilega hlutlaus,
þ.e. hún gildir almennt óháð þeirri
tækni og þeim tækniframförum sem
verði og að ekki sé þörf á að setja nýj-
ar reglur í hvert skipti sem ný tækni
eða hugbúnaður til vinnslu persónu-
upplýsinga komi fram. Þvert á móti sé
það hlutverk þeirra sem bera ábyrgð á
slíkri vinnslu að fullnægja þeim kröf-
um sem lögin gera og nota búnað sem
samrýmist gildandi reglum – óháð
þeirri tækni sem notuð er. n
Er bíllinn klár fyrir
sumarið?
Við einföldum líf bíleigandans
Ferðabox
Reiðhjóla-
grindur
Þverslár
26. Janúar 2016
8 Fréttir
Vikublað 26.–28. janúar 2016
45 Íslendingar í ævilöngu banni frá IKEA
n Tíu manna öryggisdeild starfar hjá IKEA n Allt að tveggja milljóna óútskýrð rýrnun á mánuði n Árið í fyrra var metár þegar kemur að búðarhnupli í n Allnokkur mál fyrir dóm
F
jörtíu og fimm Íslendingar
eru í ævilöngu banni frá
verslun IKEA hérlendis en
stefna stærstu verslunar
landsins varðandi búðar-
hnupl er skýr. Þjófar eru einfaldlega
ekki velkomnir. Árið 2015 var metár
varðandi búðarhnupl ef mið er
tekið af tilkynningum til lögreglu en
Samtök verslunar og þjónustu hafa
gagnrýnt þá staðreynd að flest mál
eru felld niður og erfitt er fyrir versl-
anir að fá bætur vegna tjónsins sem
þær verða fyrir.
„Örugglega rænd á
hverjum degi“
Verslun IKEA í Kauptúni í Garða-
bæ er stærsta verslun landsins. Á
virkum degi koma um 3.000 manns
í verslunina og á laugardegi eða
sunnudegi má búast við um 6.000
manns í verslunina. Met var sett síð-
astliðin jól þegar 10 þúsund manns
lögðu leið sína í verslunina á einum
degi, þrjú prósent íslensku þjóðar-
innar. Það þarf því ekki að koma
á óvart að mál tengt búðarhnupli
komi reglulega upp í versluninni.
„Við erum örugglega rænd á hverj-
um degi,“ segir Stefán Árnason, fjár-
málastjóri fyrirtækisins, sem einnig
er yfir tíu manna öryggisdeild IKEA
á Íslandi.
Finna tómar umbúðir
Í nóvember síðastliðnum varð blaða-
maður vitni að því þegar öryggis-
verðir stöðvuðu ungt par með barn
vegna gruns um þjófnað. Parið hafði
samviskusamlega skannað talsvert af
vörum inn í sjálfsafgreiðslukassa en
ekki tekið upp kort til þess að greiða
vöruna. Þau gengu því næst hröðum
skrefum að útgöngudyrunum þar
sem árvökull starfsmaður greip inn
í. Uppákoman var öll hin vandræða-
legasta og afsökun parsins var sú að
þau hefðu hreinlega gleymt að renna
kortinu í gegn.
Stefán kannast við málið en að
hans sögn eru öll mál kærð til lög-
reglu. Tíðni búðarhnupls, sem
kemst upp, hefur aukist hjá fyrir-
tækinu undanfarið. „Við vitum svo
sem ekki hvort við séum að verða
betri varðandi eftirlit eða þá að
búðarhnupl sé að aukast,“ segir
Stefán. Hann bendir á að reglulega
finni starfsmenn tómar umbúðir í
krókum og kimum búðarinnar, sem
er vísbending um að þjófnaður hafi
átt sér stað. Óútskýrð rýrnun IKEA
er um 1–2 milljónir króna á mánuði.
Skjót afgreiðsla
vekur spurningar
Umræðan um afgreiðslu lögreglu er
eitthvað sem Stefán tengir sterkt við.
Hann nefnir sem dæmi að þann 10.
janúar síðastliðinn hafi maður verið
stöðvaður við útgang verslunarinn-
ar fyrir þjófnað. Með í för var eigin-
kona mannsins sem að sögn Stefáns
er reglulega í fjölmiðlum. „Við áttum
myndefni af brotinu og þarna er um
borðleggjandi mál að ræða,“ segir
Stefán og bætir við að lögreglumenn
sem komið hafi í vettvang hafi verið
sama sinnis.
Föstudaginn 15. janúar skrifaði
Stefán kæru til lögreglu og lét fylgja
með myndefni sem sannar þjófn-
aðinn. Bréfið var boðsent um kl. 14
þennan dag til lögreglu. „Þann 19.
janúar fæ ég bréf sem er dagsett 15.
janúar. Niðurstaðan er sú að hinn
meinti þjófur sé sekur um refsivert
hátterni en engu að síður er fallið
frá málsókn. Þessi niðurstaða liggur
fyrir á tæpum tveimur klukkustund-
um á föstudeginum. Ég fagna þess-
um afgreiðsluhraða en ég furða mig
á niðurstöðunni,“ segir Stefán, sem
helst vildi sjá þjófnaðarmál, þar
sem óyggjandi sannanir liggja fyrir,
fá skjóta formlega afgreiðslu hjá yf-
irvöldum.
„Það gengur ekki að niðurstaða
mála sé háð duttlungum lögreglu-
manna,“ segir Stefán ákveðinn.
Hann hefur óskað eftir rökstuðningi
vegna ákvörðunarinnar.
Freistingar fjarlægðar
IKEA hefur tekið fast á sínum
öryggismálum. Meðal annars voru
reglur varðandi vöruskil hertar og
skilaði það þeim árangri að rýrnun
minnkaði um helming. Þá tók versl-
unin nýlega upp skilaeftirlit sem
þegar hefur orðið til þess að einn
viðskiptavinur má ekki lengur skila
vörum hjá versluninni.
„Sá skilaði ítrekað sömu vör-
unni, litlum og frekar dýrum díóðu-
ljósum. Starfsmaður okkar gekk á
þennan tiltekna viðskiptavin sem
gat ekki gefið neinar skýringar á
athæfi sínu og yfirgaf verslunina
án þess að hirða um að taka með
sér ljósin sem ætlunin var að skila,“
segir Stefán.
Aðspurður út í sjálfsafgreiðslu-
kassana, þar sem blaðamaður
varð vitni að þjófnaði, segir Stefán:
„Reynslan að utan var sú að rýrnun
við sjálfsafgreiðslukassa væri jafn-
mikil og við hefðbundna búðarkassa
enda gera starfsmenn óafvitandi
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Mikið eftirlit Um hundrað myndavélar eru á víð og dreif um húsnæði IKEA við Kauptún.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
iKEa Stærsta verslun landsins tekur á móti um 3.000 viðskiptavinum á virkum degi og 6.000 viðskiptavinum á laugar- eða sunnudegi. Þjófar eru hins vegar ekki velkomnir. Mynd Sigtryggur ari
„Við erum
örugglega
rænd á hverjum degi
Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir
Rykmoppur og
sápuþykkni frá
Pioneer Eclipse
sem eru hágæða
amerískar hreinsi-
vörur.
Teppahreinsivörur
frá HOST
Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942
Frábærar þýskar
ryksugur frá SEBO
Decitex er
merki
með allar
hugsanlegar
moppur og klúta í þrifin.
UNGER gluggaþvottavörur,
allt sem þarf í gluggaþvott
Erum einnig með:
Marpól er með
mikið úrval af
litlum frábærum
gólfþvottavélum
Tilboð fyrir hótel og
gistiheimili í apríl/maí!
Fréttir 9
Vikublað 26.–28. janúar 2016
Persónugerður markpóstur
er mælanlegur miðill og árangursríkur
www.umslag.is2010- 2014
Umslag tryggir hámarksárangur við
útsendingu markpósts
• Mismunandi skilaboð
• Mismunandi myndir
• Mismunandi markhópar
Við getum prentað nöfn og heimilisföng á allan mark-
póst. Stór og lítil upplög. Markhópalistar eru í boði sé
þess óskað eða við áritum eftir þínum excel lista.
}Ein prentun
*Samkvæmt könnun Gallup á meðal markaðsstjóra um notkun á miðlum árið 2015 mun markpóstur vera næsta val á eftir internetinu.
31%
auglýsenda ætla að
nota markpóst meira
árið 2015*
- hvað ætlar þú að gera?
45 Íslendingar í ævilöngu ba ni frá IKEAn Tíu manna öryggisdeild starfar hjá IKE n Allt að tveggja milljóna óútskýrð rýrnun á mánuði n Árið í fyrra var metár þegar kemur að búðarhnupli í n Allnokkur mál fyrir dóm
mistök. Það er alltaf starfsmaður á
vakt og fylgist með kössunum og ör-
yggisvörður, auk þess sem mynda-
vélar eru við hvern kassa. Þrátt fyrir
það láta sumir freistast,“ segir Stefán.
45 í ævilöngu banni
Viðurlög IKEA við búðarhnupli eru
ströng og ef til vill ekki á allra vitorði.
„Lögregla hvetur verslanir til þess að
kæra allan þjófnað og það gerum við
samviskusamlega,“ segir Stefán. All-
nokkur mál hafi farið fyrir dómstóla
og endað með dómi þrátt að stjórn-
endur verslunarinnar hafi oft rekið
sig á að málum sé vísað frá. IKEA er
hins vegar með eina ófrávíkjanlega
reglu varðandi þjófnað. „Þeir sem
verða uppvísir að þjófnaði hjá okkur
fá ævilangt bann í versluninni okk-
ar,“ segir Stefán og upplýsir blaða-
mann um að 45 Íslendingar séu í
ævilöngu banni frá verslun IKEA
hérlendis. „Það kemur reglulega fyr-
ir að einstaklingar, sem hafa gerst
sekir um búðarhnupl í versluninni,
heimsækja okkur eins og ekkert
hafi í skorist. Ef við verðum varir við
þessa einstaklinga þá er þeim ein-
faldlega vísað út úr versluninni enda
ekki velkomnir hér. Suma þekkjum
við strax og þá er þeim mætt í dyrun-
um,“ segir Stefán.
Í gagnrýni Lárusar M. K. Ólafs-
sonar, lögfræðings Samtaka verslun-
ar og þjónustu, kom fram að pottur
væri brotinn varðandi bótakröfur
fyrirtækja fyrir dómstólum. Tíma-
frekt og flókið mál sé að fara fram á
slíkar bætur og einfalda þurfi ferlið
verulega. Stefán tekur undir þetta
og segir að hann muni aðeins eftir
tveimur málum þar sem IKEA hafi
fengið greiddar bætur vegna þjófn-
aðar. „Í fyrra skiptið var um að ræða
600 þúsund króna bætur vegna
„Stólamálsins“ fræga sem vakti
mikla athygli í fjölmiðlum. Miðað
við umfang brotanna var bótakrafan
í raun alltof lág,“ segir Stefán.
Í síðara skiptið kom maður inn
af götunni, af fúsum og frjálsum
vilja, og viðurkenndi brot sín. „Hann
sagðist hafa verið í óreglu en náð að
snúa blaðinu við og vildi gera upp
skuldir sínar,“ segir Stefán. Vel var
tekið á móti manninum. n
„Stólamálið“ fræga
Gerendur tengdir fjölskylduböndum
Fyrir tveimur árum var „Stólamálið“ svokall-
aða á allra vörum. Það snerist um umfangs-
mikinn þjófnað úr verslun IKEA. Þegar málið
komst upp var talið að það hefði staðið yfir,
með hléum, í sex ár og orðið sífellt viðameira
eftir því sem á leið. Meðal grunuðu voru
lögfræðingar, eigandi lögfræðistofu, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis í ferðaþjónustu og
hjúkrunarfræðingur. Gerendurnir tengdust í
flestum tilvikum fjölskylduböndum.
Upp komst um málið í nóvember 2011 þegar
starfsmaður í húsgagnadeild tilkynnti ör-
yggisdeild um ranga birgðastöðu á tiltekinni
tegund stóla. Fjórum slíkum stólum hafði
verið skilað þótt enginn hefði verið seldur.
Þá lögðust starfsmenn IKEA yfir skilasögu
viðkomandi einstaklinga og höfðu þeir þá
allir skilað mjög dýrum vörum sem aldrei eða
sjaldan höfðu verið seldar.
Málinu lauk með því að gerendurnir borguðu
600 þúsund króna kröfu IKEA og sluppu
með skrekkinn. „Krafan var í raun alltof
lág,“ segir Stefán sem skýtur á að andvirði
þýfisins hafi verið um 10 milljónir yfir langt
tímabil. Eitt par fékk 30 daga skilorðsbund-
inn dóm vegna málsins.
Metár í
búðarhupli
Tilkynningar til lögreglu
aldrei verið fleiri – árin eftir
hrun sambærileg
Alls voru 1.106 tilvik um búðarhnupl
tilkynnt til lögreglu árið 2015. Fara
þarf aftur til ársins 2009 og 2010 til sjá
viðlíka tölur en til samanburðar bárust
846 tilkynningar árið 2014, aukning milli
ára er því um 31%.
Ár Fjöldi tilkynninga
2006 623
2007 723
2008 1.059
2009 1.103
2010 1.045
2011 770
2012 797
2013 945
2014 846
2015 1.106
„Ég fagna
þessum
afgreiðsluhraða
en ég furða mig
á niðurstöðunni
Stefán Árnason IKEA hefur
náð verulegum árangri í baráttu
sinni gegn búðarhnupli. „Við erum
að læra af reynslunni og tæknin
verður sífellt betri,“ segir Stefán.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
„Þetta er
eitthvað
sem gæti þurft
að skoða nánar.