Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Page 31
Helgarblað 26.–29. ágúst 2016 Menning 31
Fjarlægir tannstein.
Vinnur gegn sýkingu í tannholdi.
Berst gegn andfýlu.
Náttúrulegt gæludýrafóður og umhirða
Pantanir og fyrirspurnir:
8626969 | 8996555
platinum@platinum.is | platinum.is
Ekki láta þetta ganga svona langt.
OralClean+Care
100 %
náttúrulegt
Sumargjöfin í ár!
Þráðlausu Touch heyrnartólin á Hópkaup.is.
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
Fæst á .is
Leita eftir ástarsögum íslenskra karla
Ástarsögur íslenskra kvenna sló í gegn Framhaldsbók í smíðum
H
öfundar hinnar vinsælu
bókar Ástarsögur íslenskra
kvenna leita nú að sönnum
ástarsögum íslenskra karla
(og þeirra sem upplifa sig innan
þess kyngervis) til að fylla sjálfstæða
framhaldsbók sem á að koma út í
lok árs.
Fyrri bókin, sem bar undirtitil-
inn „frásagnir úr raunveruleikan-
um“, innihélt tæplega 50 ástarsög-
ur sem var safnað saman af Maríu
Lilju Þrastardóttur og Rósu Björk
Bergþórsdóttur. Bókin, sem var gef-
in út af Bjarti, var ein vinsælasta bók
sumarsins. Nú
hefur svo verið
tekin ákvörðun
um útgáfu sjálf-
stæðrar fram-
haldsbókar með
ástarsögum ís-
lenskra karla
sem stefnt er á
að komi út í árs-
lok.
„Auðvitað verða karlar líka
ástfangnir, auðvitað finna þeir
líka fyrir söknuði og ástarsorg og
með bókinni langar okkur, aftur,
að kveða niður hina hefðbundnu
ímynd samfélagsins um kyn og ást,“
segja höfundarnir um verkefnið.
Tekið er á móti texta á hvaða
formi sem er, ljóðum, sögum, dag-
bókarfærslum eða öðru. Þá munu
höfundarnir hitta karla og rita nið-
ur sögur þeirra, ef þeir treysta þeir
sér ekki til að skrifa þær sjálfir. Allar
sögurnar í bókinni verða nafnlausar
en settar fram í samvinnu við höf-
unda og eigendur þeirra. Hægt er
að senda ástarsögur á netfangið ast-
arsogur@gmail.com. n
kristjan@dv.is
Söngleikir og sögur úr samtímanum
n Þetta segja leikhússtjórarnir
Menningarfélag
Akureyrar
Fyrsta frumsýning ársins á Akureyri verður trúðaleikurinn Helgi magri. „Þetta er kosmísk
spunasýning þar sem fjórir trúðar takast á við það sem Matthías Jochumsson kallaði
sitt versta verk. Þetta er sögulega leikritið Helgi magri, sem var bara sýnt einu sinni á af-
mælishátíð hérna á Eyrinni. Það komu 1.200 manns að sjá þetta, en það þótti ekki gott! “
segir Jón Páll Eyjólfsson, sem hefur sitt annað leikár sem leikhússtjóri á Akureyri.
„Hlutverk Menningarfélagsins er ekki bara að framleiða afþreyjandi list heldur að
fóstra og næra þá hæfileika sem eru hér í okkar nærumhverfi. Við eigum að gefa ungum
höfundum og ungum listamönnum tækifæri til að eiga stefnumót við áhorfendur og sitt
samfélag. Og gefa þeim sem eru að gera framsækna hluti stefnumót við Norðlendinga,“
segir hann og nefnir til að mynda Listin að lifa, nýtt frumsamið leikrit eftir leikhópinn
Næsta leikrit, sem spratt upp úr leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Þá nefnir hann
brúðuleikhúshópinn Handbendi frá Hvammstanga sem mun sýna tvö verk, en annað
þeirra, Tröll, verður frumsýnt á Akureyri.
Akureyrsk saga og samfélag koma svo ekki einungis við sögu í trúðsleiknum heldur
einnig í heimildaleikhúsinu Elskur, sem er byggt á ástarbréfum Norðlendinga og Borg-
arsviðið – leiðsögn þar sem akureyrskar konur af erlendu bergi brotnar veita áhorfend-
um leiðsögn um akureyrska menningu. „Það skiptir ekki lengur bara máli hvaða sögur við
segjum á sviðinu, heldur er næsta skrefið að spyrja sig hver segir sögurnar, hver stendur á
sviðinu og leikur,“ segir Jón Páll.
Eigin frumsýningar Menningarfélagsins verða þrjár auk Helga magra, eru það
Hannes og Smári, sem er samstarfsýning með Borgarleikhúsinu, en sýningin byggir
á alter-egóum leikkvennanna Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar. Þá sýnir
Menningarfélagið jólasýninguna Stúfur og stærsta verkefni leikársins er Núnó og Júnía,
nýtt íslenskt verk fyrir börn og fjölskyldur. „Það er sama teymi á bakvið þetta og vann
Pílu Pínu í fyrra. Þá var brjálæðislega góð
miðasala og fullt hús á öllum sýningum,“
segir Jón Páll.
„Við beinum meginhluta þess fjármagns
sem við fáum í sýningar fyrir börn og
fjölskyldur. Það er skortur á barnaleikhúsi
á Íslandi og það hefur verið skortur á því að
stóru húsin hafi alltaf sýnt frumkvæði til að
framleiða nýtt efni fyrir börn. Það þarf að
skrifa og leika nýjar sögur,“ segir hann.
Tjarnarbíó
Fyrsta frumsýning Tjarnarbíós
fór fram í vikunni þegar Stripp
eftir Olgu Sonju Thorarensen
og leikhópinn Dance For Me var
sýnt sem hluti af alþjóðlegu
sviðslistahátíðinni Everybody‘s
Spectacular.
„Hlutverk Tjarnarbíós er
að vera vettvangur fyrir alla
atvinnusviðslistahópa á Íslandi.
Við bjóðum upp á rýmið, tækja-
búnað, markaðsþjónustu og
samstarf að öllu leyti. Hér koma
inn alls konar hópar undir sínu
nafni en sameinast í þessu húsi
og undir þessi nafni, Tjarnarbíó,“
segir Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Tjarnarbíós.
„Hér er í raun ekki heildar
listræn áhersla eins og í stóru
leikhúsunum en við erum með
ákveðið valferli þar sem stjórn og
framkvæmdastjóri fara yfir um-
sóknir og velja út frá mjög skýrum
„kríteríum“ og tökum verkefni inn
í húsið miðað við það. Í ár voru
mjög margar umsóknir og við
urðum að hafna einhverjum 10
eða 15 umsóknum,“ segir hann.
Meðal leikhópa sem sýna
verk í ár eru RaTaTam, Kriðpleir, Pörupiltar, Smartlab, Lab Loki og fleiri. Þá leikstýrir Edda
Björg Eyjólfsdóttir nýju leikverki um Þórberg Þórðarson og
Þorsteinn Bachmann leikstýrir Pulitzer-verðlaunaverk-
inu Ayad Akhtar.
„Aðsókn í Tjarnarbíó hefur vaxið um 15 til 20
prósent á milli ára frá 2013 þegar við byrjuðum að fá
stuðning frá Reykjavíkurborg. Þessar upphæðir hafa
skipt sköpum fyrir gróskuna í sviðslistalífinu í Reykja-
vík,“ segir Friðrik.
Nýjar sýningar: 6
Barnasýningar: 3
Byggt á bók: 0
Frumsamið íslenskt leikrit: 6
Erlend saga/verk: 0
Leikstýrt af konu: 2
Áskriftarkort: 4 viðburðir hjá
Menningarfélagi Akureyrar fyrir
19.900 krónur
Nýjar sýningar: 14
Barnasýningar: 1 (Að minnsta kosti tvær eldri
barnasýningar verða þó einnig sýndar)
Byggt á bók: 1
Frumsamið íslenskt leikriti: 12
Erlend saga/verk: 2
Leikstýrt af konu: 9
Áskriftarkort: 4 sýningar fyrir 12.000 krónur
Versta verkið
Fyrsta frumsýn-
ing ársins á Akur-
eyri er trúðaleikur
byggður á versta
verki Matthíasar
Jochumsson-
ar, sögulega
leikritinu Helgi
magri.
Ögrandi
Fyrsta
frumsýning
leikársins í
Tjarnarbíói fór
fram á mið-
vikudag þegar
heimildaleik-
ritið Stripp var
sýnt. MyNd daNcE
For ME / oLga SoNja
jón Páll Eyjólfsson
Leikhússtjóri Menningar-
félags Akureyrar.
MyNd Sigtryggur ari
Friðrik
Friðriksson Fram-
kvæmdastjóri Tjarnarbíós.