Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2016, Side 32
Helgarblað 26.–29. ágúst 201632 Menning
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
Ásta María Benónýsdóttir
Fjármál
Klám, „splatter“ og
trúarbrögð í teiknimynd
J
a hérna hér. Það er eiginlega ekki
annað hægt að segja um þessa
mynd. Maður ímyndar sér að
Seth Rogen og vinir hans hafi
fengið sér vel í pípu þegar þeir fengu
hugmyndina, sem snýst í stuttu máli
um vörur í stórmarkaði sem allar eru
gæddar skynjun. Pulsurnar eru strák-
ar og brauðin stelpur, sem er augljós
brandari en tekinn svo langt að hann
verður fyndinn.
Við erum hér komin ansi langt frá
teiknimyndum Disney. Myndin er
bæði „splatter“-mynd og klámmynd,
en með matvörur í öllum aðalhlut-
verkum með vessa sem leka í allar átt-
ir. Hver einasta persóna er steríótýpa,
súrkálin eru nasistar, tabaskósósurn-
ar eru svo miklir Mexíkanar að sumir
vilja vafalaust byggja múr í kringum
þá og hér eru jafnvel arabi og gyðing-
ur sem eru alltaf að rífast. Í kringum
þetta tekst svo að tvinna endalausa
orðaleiki sem eru flestir ágætir.
Ofan á allt er boðskapurinn þó
mikilvægur. Trúarbrögðin eru til þess
fallin að láta fólk sætta sig við von-
lausa stöðu í stað þess að reyna að
breyta henni. Og jafnvel þó að maður
sjái í gegnum þau dugir ekki að segja
öðrum hvað þeir eru vitlausir, held-
ur á að ganga á undan með góðu for-
dæmi og færa rök fyrir máli sínu.
Í raun hefði þetta alveg geng-
ið upp sem barnvænleg Pixar-mynd
með heimspekilegu ívafi, en í stað-
inn er farin sú leið að raða inn blóts-
yrðum og klúrum bröndurum. Sem
er ágætt líka. Á einhvern undarlegan
hátt fangar pulsupartíið þá Trump-
tíma sem við lifum betur en margar
aðrar myndir. Og tekst að gera eitt-
hvað nýtt í leiðinni. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Sausage Party
IMDb 7,3 RottenTomatoes 83% Metacritic 67
Leikstjóri: Conrad Vernon og Greg Tiernan
Handrit: Seth Rogen og fleiri
Aðalhlutverk: Seth Rogen, Kristen Wiig,
Jonah Hill og fleiri
89 mínútur
Dónalegar pulsur Skyni gæddar en
orðljótar pulsur eru í aðalhlutverki í teikni-
myndinni Sausage Party.
Grípandi glæpasaga
Þ
að er tilbreyting
að fá á markað
hollenska glæpa-
sögu og óneit-
anlega léttist á
manni brúnin þegar í ljós
kemur að hún er ljóm-
andi góð. Höfundurinn
Marion Pauw er sögð vera
drottning hollenskra spennusagna
og hlaut spennusagnaverðlaunin
Gullnu snöruna fyrir bókina. Kvik-
mynd var gerð eftir sögunni og ver-
ið er að undirbúa bandaríska mynd
byggða á bókinni. Þetta kemur ekki á
óvart því sagan sem sögð er í þessari
bók er hin áhugaverðasta.
Íris er lögfræðingur og einstæð
móðir sonar sem er erfiður. Hinn
ungi Ray er lokaður inni
á stofnun eftir að hafa
verið dæmdur fyrir afar
hrottaleg morð á konu
og ungri dóttur hennar.
Leiðir Írisar og Ray liggja
saman og ýmislegt óvænt
kemur í ljós.
Konan í myrkrinu er
vel samin og vel hugs-
uð glæpasaga, örugglega
ein sú besta sem nú er á
markaði hér á landi. Íris
og Ray skiptast á að segja
söguna. Ray er einhverf-
ur og höfundi tekst sér-
lega vel að lýsa umkomuleysi hans
í lokuðu og fjandsamlegu umhverfi.
Vandræðum Írisar í uppeldi á ung-
um og erfiðum syni er einnig lýst á
eftirminnilegan hátt. Þannig fær les-
andinn snemma samúð með tveim-
ur aðalpersónum bókarinnar. Rósíta,
konan sem er myrt, verður ekki jafn
eftirminnileg í huga lesandans. Í vel
unninni bók hefði mátt styrkja þann
þráð betur.
Sagan heldur athygli lesandans
frá upphafi til enda og í henni eru
vendingar sem koma á óvart. Konan
í myrkrinu er grípandi og vel skrifuð
glæpasaga sem glæpasagnaunnend-
ur verða að lesa. Rétt er svo að hrósa
þýðingu Rögnu Sigurðardóttur, sem
er hin ágætasta. n
„Sagan heldur
athygli lesandans
frá upphafi til enda og í
henni eru vendingar sem
koma á óvart.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Konan í myrkrinu
Höfundur: Marion Pauw
Þýðandi: Ragna Sigurðardóttir
Útgefandi: Veröld
338 blaðsíður