Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2016, Síða 6
Vikublað 18.–20. október 20166 Fréttir
Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is
Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með
sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað
við aldursbundinni augnbotnahrörnun.
Nú er vítamínið með endurbættri formúlu
sem gerir það enn betra en áður.
AUGNVÍTAMÍN
Augnheilbrigði
Við aldursbundinni
augnbotnahrörnun
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Stefán Karl
heim í dagsleyfi
Leikarinn góðkunni, Stefán Karl
Stefánsson, fékk að fara heim af
sjúkrahúsi í gær, mánudag, en
hann gekkst á dögunum und
ir aðgerð þar sem æxli í brisi var
fjarlægt. „Það þýðir að ég má fara
heim og máta mig við heimilis
lífið í nokkra klukkutíma en fer
svo aftur á spítalann upp úr
kvöldmat. Ég er ennþá á miklum
lyfjum og má almennt ekki gera
neitt, til dæmis er ég með upp
áskrifað að ég má ekki stunda
nein heimilisstörf í 8 vikur (mæli
með þessu bara fyrir það),“ sagði
Stefán Karl á Facebooksíðu
sinni. Hann mun gangast undir
fyrirbyggjandi lyfjameðferð á
næstu vikum og stendur með
ferðin í sex mánuði.
Reyndu að selja
Emmessís í fyrra
n Hófu söluferli og opnuðu gagnaherbergi n KS boðið að kaupa
S
litastjórn Sparisjóðabankans
(SPB) og Eignarhaldsfélagið
Arev ehf. gerðu árangurslausa
tilraun til að selja Emmessís
á fyrri hluta síðasta árs. Sam
kvæmt heimildum DV höfðu eigend
ur ísgerðarinnar þá samband við yfir
tuttugu fyrirtæki eða fjárfestahópa og
buðu þeim að gera tilboð í fyrirtækið.
Sjö þeirra undirrituðu trúnaðaryfir
lýsingu og fengu í kjölfarið aðgang að
gagnaherbergi en ekkert ásættanlegt
tilboð barst.
Ekki auglýst
Emmessís var þangað til í ágúst síð
astliðnum í eigu samlagshlutafélags
ins Arev NI (áður Arev N1). Einka
hlutafélagið SPB, sem varð til í kjölfar
þess að slitabú SPB lauk nauðasamn
ingum fyrr á þessu ári, á 60 prósenta
hlut í Arev NI en Eignarhaldsfélag
ið Arev, sem er í eigu JST Holding,
einkahlutafélags Jóns Scheving
Thorsteinssonar, framkvæmdastjóra
verðbréfafyrirtækisins Arev, á hin 40
prósentin.
Samkvæmt upplýsingum DV
höfðu þáverandi eigendur ísgerðar
innar samband við yfir tuttugu hópa
eða fyrirtæki sem þeir töldu líklega
tilbjóðendur og var fyrirtækið ekki
auglýst til sölu. Heimildir DV herma
að Kaupfélag Skagfirðinga hafi verið
boðið að leggja fram tilboð. Það hafi
þó aldrei undirritað trúnaðaryfirlýs
ingu og því ekki verið í hópi þeirra
sem fengu aðgang að gagnaher
berginu þar sem finna mátti ítarleg
gögn um Emmessís. Söluferlið hafi
staðið fram á mitt síðasta ár. Ekki
náðist í Sigurjón R. Rafnsson, að
stoðarkaupfélagsstjóra Kaupfélags
Skagfirðinga, við vinnslu fréttarinn
ar.
Eiga Hnetutopp
Þegar ekkert ásættanlegt tilboð barst
hófu eigendurnir viðræður við Ís
landsbanka, stærsta lánardrottinn
ísgerðarinnar, um endurfjármögn
un Emmessíss. Þeim samning
um lauk fyrr á þessu ári og eins og
kom fram í DV þann 7. október þá
keypti hópur fjárfesta undir forystu
Einars Arnar Jónssonar, sem oft er
kenndur við Nóatún, 90 prósenta
hlut í fyrirtækinu í ágúst. Hópurinn
samanstendur af Gyðu Dan Johan
sen, fjárfesti og eiginkonu Ara Ed
wald, forstjóra Mjólkursamsölunnar
(MS), Þóri Erni Ólafssyni, fyrrver
andi framkvæmdastjóra Sector við
skiptaráðgjafar, og Ragnari Birgis
syni, framkvæmdastjóra Emmessíss
og fyrrverandi formanni Samtaka ís
lenskra sparisjóða.
Fjárfestarnir fóru, eins og kom
fram í frétt DV, inn í hluthafahópinn
þegar þeir lögðu fyrirtækinu til 50
milljónir króna í hlutafé en rekstur
þess hefur verið þungur síðustu ár.
Einar, Þórir og Gyða settust þá öll í
stjórn fyrirtækisins.
Einkahlutafélagið Hnetutoppur,
sem var stofnað í júlí síðastliðnum,
greiddi 43 milljónir fyrir 77% hlut í
Emmessís í hlutafjáraukningunni í
ágúst. Samkvæmt upplýsingum DV
heldur félagið á eign Einars, Þóris og
Gyðu í ísgerðinni. Ragnar Birgisson
greiddi sjö milljónir króna fyrir 13%
hlut. Einkahlutafélagið SPB er að
fullu í eigu Eignasafns Seðlabanka
Íslands (ESÍ). Stjórnarformaður SPB
er Haukur C. Benediktsson, fram
kvæmdastjóri ESÍ. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Emmessís Ísgerðin er til húsa í sömu
byggingu og Mjólkursamsalan sem átti og
rak fyrirtækið í áratugi eða til ársins 2007.
Boðið að kaupa Samkvæmt heimildum DV var stjórnendum Kaupfélags Skagfirðinga
boðið að gera tilboð í Emmessís í byrjun árs 2015. Þórólfur Gíslason er kaupfélagsstjóri og
Sigurjón R. Rafnsson er aðstoðarkaupfélagsstjóri.