Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 15.–17. nóvember 20164 Fréttir
Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp,
í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku.
Hagar að kaupa Lyfju af
ríkinu fyrir um sjö milljarða
n Smásölurisinn átti hæsta boð í hlut ríkisins n Ákveðið að ganga til viðræðna við Haga
H
agar áttu hæsta skuldbind
andi kauptilboð í allt hluta
fé Lyfju, sem er alfarið í eigu
íslenska ríkisins, og ákvað
fyrirtækjaráðgjöf Virðingar í
lok síðustu viku að ganga í kjölfarið til
viðræðna við smásölurisann. Gangi
viðskiptin eftir, sem veltur meðal
annars á samþykki Samkeppnis
eftirlitsins, þá gerir tilboð Haga ráð
fyrir því að kaupverðið fyrir þessa
stærstu lyfjakeðju landsins verði í
kringum um sjö milljarða króna,
samkvæmt heimildum DV.
Lyfja var á meðal þeirra fjöl
mörgu eigna sem voru framseldar
til íslenskra stjórnvalda um síðast
liðin áramót sem hluti af stöðug
leikaframlagi kröfuhafa föllnu bank
anna en hlutafé Lyfju var áður í eigu
slitabús Glitnis. Skömmu eftir að
stjórn Lindarhvols, umsýslufélags
sem var falið að halda utan um tug
milljarða stöðugleikaeignir íslenska
ríkisins, samdi við Virðingu um að
vera ráðgjafi við söluferlið var Lyfja
auglýst til sölu í byrjun september
fyrr á þessu ári. Mikill áhugi reyndist
á félaginu sem endurspeglaðist í
því að vel á annan tug fjárfesta skil
uðu inn óskuldbindandi tilboðum
í Lyfju áður en frestur til þess rann
út 5. október. Eignarhlutur ríkisins í
Lyfju er verðmætasta einstaka eign
in í formi hlutafjár í félögum og fjár
festingarsjóðum sem er í umsýslu
Lindarhvols.
Í tilkynningu frá Högum til Kaup
hallar Íslands mánudaginn 7. nóv
ember í síðustu viku kom fram að fé
lagið hefði sett fram skuldbindandi
kauptilboð í alla hluti í Lyfju. Til
teknir fjárfestar höfðu verið teknir
áfram í annan hluta söluferlisins og
rann frestur til að skila inn slíku til
boði út þann dag. Þá sagði í tilkynn
ingu Haga að eftir að skuldbindandi
tilboð bærust í Lyfju þá myndi selj
andi ákveða hvort halda ætti áfram
með söluferlið, með einum eða öðr
um aðilum. Niðurstaðan reyndist
sem fyrr segir sú að ganga til kaup
viðræðna við Haga þar sem félagið
hafi verið með hæsta tilboðið í Lyfju.
Tíu sinnum EBITDA
Skuldbindandi kauptilboð Haga var
gert með fyrirvara um niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar og að sam
þykki Samkeppniseftirlitsins fengist
fyrir viðskiptunum. Hagar, sem reka
meðal annars verslanir undir merkj
um Bónuss og Hagkaupa, eru með
markaðsráðandi stöðu á dagvöru
markaði. Í því ljósi er talið fullvíst
að Samkeppniseftirlitið muni gefa
sér góðan tíma, líklega fjóra til
sex mánuði, áður en hægt verð
ur að taka afstöðu til viðskiptanna.
Í fyrrnefndri tilkynningu Haga til
Kauphallarinnar var tekið fram að
verði af viðskiptunum mætti gera
ráð fyrir að gengið yrði frá þeim um
mitt næsta ár.
Lyfja er stærsta keðja apóteka
og heilsuverslana á Íslandi en sam
tals rekur félagið 39 apótek, útibú og
verslanir, um land allt undir merkj
um Lyfju, Apóteksins og Heilsu
hússins. Hagnaður samstæðunnar
nam 254 milljónum króna á síðasta
ári en velta fyrirtækisins var tæp
lega níu milljarðar króna. EBITDA
hagnaður Lyfju á árinu 2015 – af
koma fyrir fjármagnsliði, skatta
og afskriftir – nam 595 milljónum
króna. Samkvæmt upplýsingum DV
áætla stjórnendur Lyfju hins vegar
að EBITDA félagsins fyrir núver
andi rekstrarár hækki um hundrað
milljónir króna og verði því samtals
um 700 milljónir. Skuldbindandi til
boð Haga í Lyfju, að sögn þeirra sem
þekkja vel til, gerir ráð fyrir því að
hlutafé lyfjakeðjunnar sé keypt mið
að við um tífalda EBITDAafkomu
félagsins sem þýðir að smásöluris
inn muni borga um sjö milljarða
króna fyrir Lyfju. Það er umtalsvert
hærra verð en Lyfja var metin á í bók
um Glitnis þegar hlutafé félagsins
var framselt til ríkisins. Samkvæmt
heimildum DV var hluturinn í Lyfju
aðeins bókfærður á um tvo milljarða
króna og því mun fyrirhuguð sala á
þessari tilteknu eign skila ríkinu um
fimm milljörðum króna meira í stöð
ugleikaframlag en áætlanir gerðu
ráð fyrir.
Þeir Steinar Þór Guðgeirsson,
hæstaréttarlögmaður og ráðgjafi
Seðlabanka Íslands, og Haukur
C. Benediktsson, forstöðumaður
Eignasafns Seðlabanka Íslands
(ESÍ), hafa verið fulltrúar stjórnvalda
í stjórn Lyfju eftir að félagið komst í
hendur ríkisins fyrr á þessu ári.
Sterk staða Haga
Fjárhagsstaða Haga er afar sterk og
hefur góð afkoma á undanförnum
árum meðal annars verið nýtt til að
greiða hratt niður skuldir félagsins.
Í lok síðasta rekstrarárs, sem lauk
í febrúar á þessu ári, námu vaxta
berandi skuldir smásölurisans að
eins rúmlega 700 milljónum króna
og höfðu þá lækkað um nærri átta
milljarða króna á aðeins fjórum
árum. Félagið er því afar vel í stakk
búið til að ráðast í fjárfestingar en
eiginfjárhlutfall þess er um 55%.
Við lok viðskipta í Kauphöllinni í
gær nam markaðsvirði Haga tæp
lega 62 milljörðum króna. Eigendur
Haga eru að langstærstum hluta ís
lenskir lífeyrissjóðir, með samanlagt
meira en 50% hlut í félaginu, en enga
einkafjárfesta er að finna á lista yfir
tuttugu stærstu hluthafa félagsins. n
Lyfja Stærsta lyfjakeðja landsins. MynD SIgTryggur ArI
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Fjórar konur fluttar
frá Akureyri
Mirjam og Tómas geta hist á Hólmsheiði
F
jórar konur verða í dag, þriðju
dag, fluttar með langferðabíl til
Reykjavíkur sem rúmar fjórtán
manns. Með í för eru verðir
sem gæta þeirra. Konurnar fjórar
hafa dvalið í fangelsinu á Akureyri en
færa sig nú um set og afplána eftir
stöðvar dóma sinna í nýju fangelsi á
Hólmsheiði sem loks er búið að taka
í notkun. Til stóð að opna það í sum
ar en það hefur tafist úr hófi fram.
Um borð í rútunni er hin hollenska
Mirjam Foeke Van Twuijer sem er
gift Tómasi Inga Þórarinssyni. Hann
hefur dvalið á Vernd og verða hjónin
nú loks nær hvort öðru.
DV fjallaði um Mirjam og Tómas
fyrr í vetur og greindi frá því að
Útlendingastofnun hefði ákveðið að
vísa henni úr landi og má hún eftir
afplánun ekki koma til Íslands næstu
30 árin. Það tekur hana sárt að vera
bannað að heimsækja heimaland
mannsins síns í framtíðinni. n
geta hist Tómas og Mirjam
giftu sig á Akureyri. Hann
hefur dvalið á Vernd sem er
opið úrræði fyrir fanga. Nú er
hún loks á leið suður