Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Síða 6
Vikublað 15.–17. nóvember 20166 Fréttir
Fékk sex milljarða lán
á Íslandi en stefnir í þrot
n Sáttatillögu Havila Shipping í Noregi hafnað n Íslandsbanki og Arion eiga milljarða undir
S
tjórnendur norska skipa
félagsins Havila Shipping
ASA segja gjaldþrot blasa
við eftir að hópur kröfuhafa
hafnaði tillögu um fjárhags
lega endurskipulagningu fyrirtæk
isins. Arion banki og Íslandsbanki
lánuðu Havila jafnvirði 5,7 milljarða
króna en tillagan innifelur meðal
annars skuldalækkun og breytingu
á kröfum lánardrottna í hlutafé. Til
lagan var samþykkt af Arion banka
og á að tryggja honum einungis 15
prósenta endurheimtur af útistand
andi skuld Havila auk kaupréttar
á hlutafé. Íslandsbanki vildi ekki
svara spurningum DV.
„Við færðum þetta lán niður að
stærstu leyti og áhættan í bókum
bankans er því afar takmörkuð. Það
liggja fyrir drög að samkomulagi
sem við höfum stutt sem kveða á
um 15 prósenta endurheimtur auk
kaupréttar á hlutafé. Maður veit
náttúrlega ekki í dag hverju það
getur skilað þegar fram líða stundir,“
segir Haraldur Guðni Eiðsson, upp
lýsingafulltrúi Arion banka.
Milljarða eftirgjöf
Havila Shipping sendi tilkynningu
til norsku kauphallarinnar (Oslo
Børs) síðasta miðvikudag um að
samkomulag um fjárhagslega
endurskipulagningu við lánveit
endur og stærsta hluthafa fyrir
tækisins hefði náðst. Þess hafði þá
verið beðið síðan í febrúar þegar
óveðtryggðir skuldabréfaeigend
ur félagsins höfnuðu fyrri tillögu
um endurskipulagningu. Sam
kvæmt tilkynningunni átti samn
ingurinn að tryggja áframhaldandi
rekstur olíuþjónustuskipaflota Ha
vila og sigla félaginu út úr þeim
ólgusjó sem skapaðist þegar verð á
Norðursjávar olíu (e. Brent crude)
fór að hrynja seinni hluta árs 2014.
Afborganir af lánum félagsins næstu
fjögur ár áttu að lækka úr 3,2 millj
örðum norskra króna, rétt tæpum
43 milljörðum íslenskra króna, í 67
milljónir norskra. Hreinar skuldir
áttu að lækka um 1,6 milljarða
norskra, jafnvirði 21 milljarðs króna,
og eigendur félagsins í staðinn að
leggja því til nýtt hlutafé og sjá til
þess að hluti skipaflotans yrði seld
ur. Þá átti að breyta tilteknum skuld
um í eignarhluti í fyrirtækinu og aðr
ir hluthafar en Havila Holding, sem
á í dag 51 prósents hlut, að þynnast
út. Stærsti eigandinn hefði lofað 118
milljónum norskra í nýtt hlutafé og
víkjandi láni upp á 46,2 milljónir.
Hópur skuldabréfaeigenda, sem
saman eiga kröfur á Havila Shipping
fyrir um 500 milljónir norskar krón
ur eða 6,7 milljarða króna, hafnaði
tillögu Havila á föstudag. Meðlimir
hans lögðu þá fram aðra og talsvert
breytta áætlun um að þeir breyti
kröfum sínum í hlutafé og eignist
meirihluta í skipafélaginu. Stjórn
endur Havila tilkynntu í kjölfarið
að ólíklegt sé að lánveitendur sam
þykki þá tillögu og að óbreyttu sé út
lit fyrir að fyrirtækið fari í gjaldþrot.
Ekkert borgað
Íslandsbanki tók í árslok 2014,
ásamt Sparebank1 SMN í Noregi,
þátt í 475 milljóna norskra króna
sambankaláni til Havila. Hlutur
bankans nam samkvæmt fréttum á
þeim tíma 130 milljónum norskra
eða 1,7 milljörðum íslenskra króna
miðað við núverandi gengi. Lánið
fór til endurfjármögnunar fjögurra
olíuþjónustuskipa fyrirtækisins.
Tunna af Norðursjávarolíu kostað
þá 110 dali en 44 dali við lokun
markaða í gær. Hálfu ári síðar lán
aði Arion banki Havila 300 millj
ónir norskra króna eða fjóra millj
arða króna. Tunnan kostaði þá um
105 dali.
Bankarnir vildu í janúar síðast
liðnum ekki svara DV því hvort farið
hefði verið fram á að floti eða aðrar
eignir norska skipafélagsins yrðu
veðsettar sem trygging fyrir endur
greiðslum. Arion banki réðst í lok
árs 2015 í verulega varúðarniður
færslu á lánum til erlendra fyrir
tækja í þjónustustarfsemi tengdri
olíuleit. Greint var frá ákvörðuninni
í ársreikningi bankans en ekki til
greint sérstaklega um hversu mikið
útlánin til Havila voru færð nið
ur. Miðað við tillögu norska skipa
félagsins um endurskipulagningu
er ljóst að tapið mun nema millj
örðum króna. Lán Íslandsbanka til
Havila var einnig fært niður í fyrra
en bankinn hefur ekki viljað upp
lýsa um upphæð niðurfærslunnar.
Norska skipafélagið hefur ekki greitt
vexti né afborganir af höfuðstól lána
síðan vinna að fjárhagslegri endur
skipulagningu þess hófst í fyrra. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Nærri gjaldþrota Havila Shipping ASA var stofnað árið 2003 en félagið á í dag 27 þjónustuskip. Rekstrarörðugleikar fyrirtækisins hófust með lækkun olíuverðs sem leiddi til verk-
efnaskorts hjá fyrirtækjum sem þjónusta olíuiðnaðinn.
Upplýsingafulltrúi Arion Haraldur
Guðni Eiðsson segir tillögu Havila gera ráð
fyrir 15 prósenta endurheimtu fyrir bankann
auk kaupréttar á hlutafé. MyNd ArioN bANki
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
2/1
Tveir fyrir einn
MARGSKIPT SJÓNGLER
Tilboð: tveir fyrir einn
www.plusminus.is