Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Side 13
Vikublað 15.–17. nóvember 2016 Fréttir 13 Gengu hágrátandi og tómhent út af spítalanum Gripið verður niður í frásögn Evu af Facebook hér að neðan en þar lýsir hún upplifun sinni af fósturmissinum á einlægan og opinskáan hátt „En svo gerist það. Bara smá, varla sjáanlegt blóð. Og verðandi móðir veit strax hvað um er að vera. Tárin koma ósjálfrátt niður kinnarnar, hún heldur um magann og biður leigjandann um að íhuga málið vel og vandlega, við getum pottþétt komist að niðurstöðu saman – bara ekki fara frá mér svona snögglega. Verðandi móðir hringir niður á kvenna- deild og vill fá að koma í skoðun, ellefu vikur og fimm dagar er víst alltof snemmt. „Ertu komin svona stutt?“ - „Það er ekkert sem ég get gert, ef þú ert að missa þá ertu bara að missa. Hvað á ég að gera í því?“ – „Farðu heim og fylgstu með blæðingunni, fáir þú hita þá kemurðu aftur“ – „Þú ert bara ein af þessum 10–35 prósentum sem missa fóstur.“ Leigusalinn gat ekki haldið tárunum aftur. Var leigjandinn ósáttur við leiguhúsnæðið? Eftir mikla andvökunótt, litla blæðingu en óstjórn- lega verki var henni boðið að koma í sónar og sjá hvað væri í gangi. Hún hélt að þau hefðu komist að samkomulagi, hún skyldi betrumbæta leiguumhverfið – og það skyldi ekki rifta samningnum. „10–35 prósent kvenna missa fóstur einhvern tímann á lífsleiðinni – þannig virkar þetta bara stundum“ segir konan, áður en hún skellti geli á magann og skoðaði sig um. Á skjánum sást lítið fóstur, sem myndað hafði lítið fallegt höfuð - en hafði tapað hjartslætti sínum. Syrgjandi par gekk inn á fæðingardeildina, með ekkasog og ennþá grátandi – tveimur dögum seinna og héldu í vonina um að þetta væri slæm martröð. Þau fengu sér herbergi, þar sem þeim var komið fyrir og svo tók biðin við. Í næsta herbergi bergmálaði hver hjartslátturinn á fætur öðrum, hjá helling af ánægðum verðandi mæðrum. En ekki hvarflaði að þeim að í næsta herbergi væri syrgjandi par sem grét sárar við hvern hjartsláttinn sem ómaði. Á ganginum frammi bergmálaði grátur nýfæddra barna, ásamt himinlifandi ættingjum sem streymdu inn með gjafir handa móður og barni. En syrgjandi parið, sem misst hafði leigjandann sinn urðu ansi reið og sár yfir því að þurfa að deila rými með fólki sem var að upplifa bestu tíma lífs síns. Það ætti ekki að láta syrgjandi foreldra, sem eru nú þegar að ganga í gegnum erfiðasta á lífstíðinni – hlusta á fallegan hjartslátt, heyra grát í nýfæddu barni og sjá hamingjusama nýbakaða/verðandi foreldra. Það ætti að vera algjörlega sér aðstaða fyrir fólk sem missir, alveg sama hvenær á meðgöngunni. Inn labbar læknirinn, sex tímum eftir áætlaðan aðgerðartíma. „Svona er lífið, eins og sagt er þá missa 10–35 prósent kvenna fóstur fyrir tólftu viku og stundum þarf aðgerð til að fjarlægja fóstrið – eins og í þínu tilfelli þar sem fóstrið vill ekki fara.“ Fyrir þessu fólki vorum við ekkert meira heldur en bara einhver pró- sentutala. Prósentutala sem hafði hlakkað meira til þess að eignast þetta barn heldur en einhvað annað. Prósentutala sem ennþá í dag, þremur mánuðum seinna syrgir litla fallega leigjandann sem hefði getað átt yndislegt leiguhúsnæði í níu mánuði, ef það hefði ekki þurft að gera aðra mikilvæga hluti á þessari stundu. Þegar parið labbaði út af fæðingardeildinni, hágrátandi og tómhent - labbaði annað par út af deildinni, brosandi og hamingjusöm með pínu- litla angann sinn í fallega heimferðarsettinu og risastórum bílstól.“ hafi breyst á 27 árum hvað varðar viðhorf fólks til þessara mála,“ segir Eva. Mikilvægt að sýna nærgætni og virðingu Eva segir undanfarna mánuði hafa einkennst af miklum sveiflum, líkam lega og ekki síður andlega. „Þetta er búinn að vera afskaplega erfiður tími og ég er ennþá í hálf- gerðum rússíbana. Það hjálpar samt mikið að tala um hlutina. Mér fannst ég alltaf hrikalega mikið ein í þessu öllu saman,“ segir hún. Parið er staðráðið í að eignast barn í nánustu framtíð. „Reyndar er það þannig að einn daginn þrái ég ekkert meira en að eignast barn og svo næsta dag hugsa ég um að þurfa hugsanlega að ganga í gegnum þetta allt aftur og þá vil ég það alls ekki.“ Eva kveðst óska þess að um- ræðan um fósturlát muni opnast frekar í samfélaginu og að fólk innan sjúkrastofnana sýni frekari nærgætni í garð foreldra sem þurfa að ganga í gegnum þessa erfiðu reynslu. „Það þarf að taka meira tillit til þarfa þeirra foreldra sem missa barn sitt á meðgöngu. Það má gjarnan sýna foreldrum í þessari stöðu meiri nærgætni, því þeir eru ekki síður að upplifa sorg. Þú átt ekki að þurfa að vakna eftir þessa aðgerð og vera í sama herbergi og kona sem er nýbúin að eignast barn. Það er virkilega erfitt að horfa upp á gleði og eftirvæntingu hjá öðr- um eftir að hafa gengið í gegnum jafn hörmulegan missi. Ég óska ekki neinum að þurfa að upplifa þetta.“ n „Það má gjarnan sýna foreldrum í þessari stöðu meiri nærgætni Hvað er ólíkt með myndunum tveimur? L auflétt myndagáta í tilefni dagsins!“ segir Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, á Facebook. Þar birtir hann tvö skjáskot af frétt Morgunblaðsins sem fjallar um dómsmál á hendur Róberti og viðskiptafélaga hans. Það var viðskiptafélagi þeirra, Matthías H. Jóhannessen, sem stefndi þeim, en það skal tekið fram að hann er frændi Haralds, ritstjóra Morgun- blaðsins. Dómarinn mat tjón Matthíasar á um 34 milljónir og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri unnt að greiða bætur sökum þess að hann ætti hlut í félaginu og ekki ljóst hvert tjónið yrði. Í fyrri útgáfunni í af frétt Morgunblaðsins var fyrirsögnin: Sýknaðir af þriggja milljarða kröfu. Fréttin hefst á þess- um orðum: Árni Harðar­ son, Róbert Wessman og Magnús J. Magnús­ son voru á föstudag sýkn­ aðir af þriggja milljarða króna kröfu Matthíasar H. Jóhannes sen sem stefndi þeim í málinu. Í uppfærslu tæplega tveimur tímum síðar er fyrirsögnin orðin: Róbert Wessman dæmdur skaða­ bótaskyldur. Þá hefst fréttin á þessum orðum: Róbert Wessman hefur ásamt Árna Harðarsyni og Magnúsi J. Magnús­ syni verið dæmdur skaðabótaskyld­ ur fyrir að hlunnfara viðskiptafélaga þeirra, Matthías H. Jóhannessen, sem stefndi þeim í málinu. Þar með er spurningunni svarað. n Hreinsun á kjólum 1.600 kr. Opið Virka daga 08:30-18:00 laugardaga 11:00-13:00 Hringbraut 119 - Einnig móttaka á 3.hæð í Kringlunni hjá Listasaum - Sími: 562 7740 - Erum á Facebook Gæði í merkingum www.graf.is • Sandblástursfilmur • Skilti úr málmi, plasti og tré • Merkingar á bíla Hjallahraun 2, Hfj. - S: 663-0790

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.