Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Page 40
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201632 Skrýtið
Holtasmári 1, Kópavogur
Sími: 571 5464
Smart föt
fyrir smart
konur
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is
Stærðir 38-52
Tók nokkra daga að
skapa rætur fasisma
Mögnuð tilraun menntaskólakennara í Kaliforníu átti eftir að draga dilk á eftir sér
H
vernig í ósköpunum gat það
gerst að nasistar komust til
valda í Þýskalandi og stjórn-
uðu landinu með þeim
hættu sem þeir gerðu, að
því er virðist án þess að almenningur
hreyfði mótbárum? Þetta var spurn-
ing sem brann á vörum mennta-
skólanemenda í skóla einum í Palo
Alto í Kaliforníu árið 1967. Ron Jones
var sögukennari og voru það nem-
endur hans sem veltu spurningunni
fyrir sér. Óhætt er að segja að þessi
spurning – eða kannski leitin að
svarinu – hafi haft ófyrirséðar af-
leiðingar í för með sér.
Fór óhefðbundna leið
Ron Jones vissi sem var að í starfi
sínu sem kennari þyrfti hann að vera
frjór og ef til vill leita óhefðbundinna
leiða til að fræða nemendur sína um
sögulega atburði. Það er nákvæm-
lega það sem Jones gerði þegar hann
ákvað að leggja verkefni fyrir nemend-
ur sína. Verkefnið átti að taka viku og
var markmiðið einmitt að svara þeirri
spurningu sem varpað er fram hér að
framan, spurningunni sem Jones sjálf-
ur átti erfitt með að útskýra í orðum.
Yfirskrift verkefnisins var Aldan (e.
The Wave) og var markmiðið að sýna
hvernig hægt væri að rústa lýðræðinu
í frjálsum og opnum sam félögum með
fasískum stjórnarháttum.
Setti strangar reglur
Fyrsta dag verkefnisins tók Jones upp
á því að haga sér eins og hálfgerður
einræðisherra. Hann setti nem-
endum sínum strangar reglur; þeir
þurftu að sitja alla kennslustund-
ina og máttu aðeins standa upp til
að spyrja eða svara spurningum. Í
þeim tilfellum máttu þeir ekki nota
fleiri en þrjú orð. Þá þurftu þeir að
ávarpa kennarann sérstaklega sem
herra Jones. Næsta dag færði Jones
tilraunina á næsta sig þar sem hann
kynnti enn meiri aga. Hann lét nem-
endur kyrja slagorð eins og „Sterkir
með aga“ og þá kenndi hann þeim
sérstaka kveðju; hendur beint fram
í axlarhæð með fingur niður. Þessa
kveðju áttu nemendur að nota þegar
þeir heilsuðu hver öðrum og enga
aðra. Jones kallaði nemendur sína
„Þriðju ölduna“ sem var tilvísun í
það að þriðja aldan er ávallt sterkust.
Nemendum fjölgaði skyndilega
Óhætt er að segja að Jones hafi
ekki búist við því að tilraunin hefði
jafn miklar afleiðingar og raun bar
vitni. Þriðja daginn fjölgaði mjög
í kennslustofu hans og vildu aðrir
nemendur skólans nú ólmir taka
þátt í tilrauninni. Þrettán nemendur
bættust við þá þrjátíu sem fyr-
ir voru og sýndu allir mikinn aga.
Nemendur fengu félagsskírteini sem
sýndi fram á að þeir væru meðlimir í
Þriðju öldunni. Áður en dagurinn var
úti voru yfir 200 nemendur komnir í
hópinn. Jones lýsti því síðar að það
hefði komið honum á óvart hversu
einarðir nemendur voru. Sumir
gengu svo langt að klaga aðra nem-
endur sem taldir voru brjóta gegn
þeim reglum sem settar höfðu verið.
Missti stjórnina
Jones ákvað fjórða daginn að binda
enda á hreyfinguna því staðan var
orðin þannig að hann hafði ekki
lengur stjórn á nemendum sínum.
Nemendur voru orðnir svo tengdir
og hollir lögmálum Þriðju öldunnar
að Jones leist ekki á blikuna. Hann
brá á það ráð, í stað þess að tilkynna
nemendum sínum að Aldan væri
liðin tíð, að tilkynna nemendum að
þeir væru hluti af stórri hreyfingu á
landsvísu og daginn eftir, fimmta
daginn, myndi leiðtogi hreyfingar-
innar, sem jafnframt ætlaði að bjóða
sig fram til forseta Bandaríkjanna,
flytja ræðu til að tilkynna formlega
um stofnun hreyfingarinnar. Átti
þessi hreyfing að boða stórkostlegar
pólitískar breytingar. Sagði Jones
nemendum sínum að mæta á tiltek-
inn stað í skólanum á föstudeginum
til að verða vitni að stofnun hreyf-
ingarinnar.
Gerðu eins og Þjóðverjar gerðu
Föstudagurinn rann upp. Jones
passaði vel upp á að aðeins með-
limir Þriðju öldunnar fengju að-
gang að sal skólans þar sem yfirlýs-
ingin átti að birtast. Stóðu fulltrúar
hreyfingarinnar vörð við dyrnar
svo engir aðrir kæmust inn. Átti
þetta að færa „hinum útvöldu“ þá
tilfinningu að þeir væru sérstak-
ir. En í stað þess að hlusta á sjón-
varpsávarp leiðtoga hreyfingar-
innar mætti nemendum rugluð rás
í sjónvarpinu. Eftir nokkurra mín-
útna bið birtist Jones þar sem hann
tilkynnti nemendum að þeir væru
hluti af tilraun um fasisma. Sagði
hann að þróunin undanfarna daga
hefði sýnt, svo ekki yrði um villst, að
með því að beita ákveðnum aðferð-
um væri auðvelt að mynda fjölda-
hreyfingar líkt og gerðist í Þýskalandi
á tímum nasistanna. Jones sagði að
tilraun lokinni að nemendur hefðu
talið að þeir væru útvaldir og betri en
aðrir og með því hafi þeir skipt á frelsi
og þægindum undirgefninnar, eins
og það var orðað í umfjöllun Þjóðvilj-
ans um þetta athyglisverða mál árið
1976. „Þið hafið ekki gert annað en
Þjóðverjar gerðu á nasistatímanum.
Og þegar þið hafið skilið vel það sem
hér hefur gerst, þá munuð þið held-
ur ekki kannast við að þið hafið tekið
þátt í því – frekar en Þjóðverjar.“
Verkefnið gekk upp
Þessi tilraun Jones hefur reglulega
skotið upp kollinum á undanförnum
árum og áratugum og þá hafa fjöl-
margar bíómyndir verið gerðar um
hana. Má þar nefna þýsku myndina
Die Welle sem kom út árið 2008
og byggði á þessari tilraun. Vís-
indamenn hafa löngum deilt um
tilraunina og hvað megi lesa úr
henni. Sumir telja að tilraunin sýni
að ungmenni á þessum tíma, þar
sem internet og farsímar voru ekki
komnir til sögunnar, hafi verið býsna
móttækileg fyrir markvissum áhrif-
um og breytir þá engu hvaða að-
ferðum var beitt. Hitt er þó víst að
Ron Jones tókst á skilvirkan hátt að
fá nemendur sína til að velta vöng-
um yfir fasískum stjórnarháttum og
má ljóst vera að nemendur hafi verið
fróðari á eftir. n
Mögnuð tilraun
Ron Jones hafði
veg og vanda af
tilrauninni í Palo
Alto árið 1967.
„Sterkir með aga“ Eitt af slagorðunum sem nemendur sungu reglulega þá viku sem
tilraunin stóð yfir.
Vakti athygli Hér má sjá kynningarplakat
frá ABC-sjónvarpsstöðinni þar sem fjallað
var um tilraunina.