Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2016, Síða 48
Vikublað 29. nóvember–1. desember 201640 Menning
Ensk þýðing á skáldsögunni Lygi eftir Yrsu
Sigurðardóttur er
besta glæpasaga
ársins í Bretlandi að
mati gagnrýnenda The Sunday
Times, en listi með meðmælum
gagnrýnenda blaðsins birtist
um helgina. Bókin, sem nefnist
Why did you lie? á ensku, kom
út í ágúst og hlaut þá glimrandi
dóma hjá Joan Smith, gagnrýn-
anda Sunday Times, sem sagði
hana „snilldarverk.“
Fjöldi íslenskra dansara tekur þátt í
norræna dans-
vettvanginum Ice
Hot sem fer fram í
Kaupmanna höfn 30. nóvember
til 4. desember. Íslenski dans-
flokkurinn sýnir Black Marrow,
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
mætir með Milkywhale, Margrét
Sara Guðjónsdóttir með sýn-
inguna Spotted, Bára Sigfúsdótt-
ir með The lover, auk þess sem
Ásrún Magnúsdóttir, Inga Huld
Hákonardóttir og Rósa Ómars-
dóttir munu kynna sýningar sínar.
Pingpong.is - Síðumúli 35 (að neðanverðu) , Reykjavík - S: 568 3920 & 897 1715
Borðtennis
er fyrir alla!
BorðtennisBorð
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061
Úr listheiminum
N
ýbylgjusveitin Jonee Jonee
stígur á svið í fyrsta skipti
opinberlega frá því í nóv-
ember 1982 á tónleikunum
Fullveldispönk á Hard Rock
Café, fimmtudaginn 1. desember.
Garðabæjarsveitin var ein þeirra
sem komu fram í kvikmyndinni
ódauðlegu Rokk í Reykjavík. Þar lék
hún lögin Af því pabbi vildi það og
Hver er svo sekur. Sveitin gaf út eina
breiðskífu, Svonatorrek, en lagði
upp laupana skömmu síðar. „Síð-
ustu tónleikar voru í N.E.F.S., Fé-
lagsstofnun stúdenta, árið 1982. Ég
var að fara í nám til New York og það
var því ákveðið að þetta yrðu síðustu
tónleikarnir í bili. Þetta voru fínir
tónleikar. Ef ég man rétt var mjög
flott umfjöllun um þá í DV,“ segir
Þorvarður Hafsteinsson, söngvari
og saxófónleikari hljómsveitarinnar,
en auk hans eru í bandinu Berg-
steinn Björgúlfsson trommuleikari
og Heimir Bárðarson bassaleikari.
Hvað kemur til að sveitin kemur
saman 34 árum seinna?
„Þetta var nú bara fyrir tilstilli Dr.
Gunna og pönksafnsins. Við ætluð-
um að spila á opnun safnsins í nóvem-
ber en menn voru tæpir á að láta það
ganga upp tímalega svo þetta dróst
svona. Við komum reyndar saman
árið 1991 og tókum upp nokkur lög –
en gerðum ekki neitt með þau.“
Hvernig hafa æfingar gengið?
„Þetta er bara eins og að læra að
hjóla, þetta er allt þarna. Allt í allt
verða þetta 14 lög. Aðallega þessi lög
sem við vorum að spila hvað mest
á þessum Rokk í Reykjavík-árum og
svo er eitt sem hefur aldrei verið spil-
að opinberlega áður.“
Auk Jonee Jonee spila þrjár
gamlar pönksveitir á tónleikunum
Hard Rock á fimmtudaginn;
Fræbbblarnir, Q4U og Tauga-
deildin. n
Jonee Jonee snýr aftur á
tónleikasviðið eftir 34 ár
Spila á pönktónleikum á fullveldisdaginn af því að Dr. Gunni vildi það
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Fyrir 34 árum Tríóið Jonee Jonee árið
1982 skömmu áður en það lagði upp
laupana. Mynd ViKan/ RaGnaR Th. SiGuRðSSon
U
m helgina brenndi nærfata-
hönnuðurinn Joe Corré,
sonur guðforeldra pönksins,
Malcolms McLaren
og Vivienne Westwood,
minjagripi tengda upp-
hafsárum pönksins,
sem metnir höfðu
verið á tæplega 600
milljónir króna. Meðal
þeirra minja sem
brunnu voru sjaldgæfar
demóupptökur, föt úr pönk-
búðinni SEX, Sid Vicious-dúkka og
buxur af Johnny Rotten.
Brennan, sem átti sér stað á 40 ára
útgáfuafmæli lagsins Anarchy in the
UK með Sex Pistols, var haldin til að
mótmæla sýningunni Punk London
sem nokkrar helstu menningarstofn-
anir borgarinnar standa fyrir í tilefni
afmælisins. Corré sigldi á bát út á
ána Thames með minjagripi,
pólitísk slagorð og brúður sem
minntu á helstu stjórnmála-
menn Bretlands um þessar
mundir og kveikti í.
Í stuttri ræðu sem Corré hélt
áður en hann kveikti í bátnum
sagði hann að pönk hafi boðið upp á
útgönguleið fyrir kynslóð sem eygði
enga framtíð: „Pönk átti aldrei að
snúast um nostalgíu,“ sagði Corré. n
kristjan@dv.is
Pönksafnið brennur
Joe Corré brenndi minjagripi fyrir 600 milljónir króna
Pönkið er dautt
Sagði Joe Corré um
leið og hann kveikti
í minjagripum
tengdum fyrstu
árum pönksins, en
gripirnir höfðu verði
metnir á tæplega
600 milljónir
króna. Mynd EPa