Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 2.–5. desember 201626 Skrýtið Höfnuðu stórum hlutverkum í þekktum myndum E ftirsóttar leikarar í Hollywood sem víðar þurfa stundum að taka erfiðar ákvarðanir varð- andi hvaða hlutverk þeir taka að sér. Þeir þurfa að vega og meta hvort hlutverkið henti, hverjar líkurnar séu á velgengni viðkomandi verkefnis og hvort þeir hafi tíma til að taka hlutverkið að sér. Til eru dæmi um fræga leikara sem höfnuðu hlut- verkum í ýmsum stórmyndum. DV birtir hér brot af því helsta. n Jack Nichol- son og The Godfather Þó að Al Pacino hafi hlotið tvær Ósk- arsverðlaunatilnefningar fyrir túlkun sína á Michael Corleone í Godfather- seríunni var hann ekki fyrsta val aðstandenda myndarinnar. Um það leyti sem fyrsta myndin var frumsýnd, árið 1972, var Nicholson vinsæll leikari í Hollywood og hann fékk boð um að leika Corleone. Hann hafnaði hlutverk- inu þar sem hann taldi það ekki henta sér. Síðar sagðist hann hafa verið þeirrar skoðunar að „indjánar ættu að leika indjána“ og „Ítalir ættu að leika Ítali“. Will Smith og Django Unchained Bandaríski stórleikarinn Will Smith hefur ekki alltaf haft heppnina með sér varðandi hlutverk í kvikmyndum. Hann er sagður hafa hafnað hlutverki í The Matrix til að leika í flopp- myndinni Wild, Wild West. Smith fékk gott tilboð frá Quentin Tarantino um að leika í Django Unchained. Þeir tveir eru sagðir hafa fundað stíft um myndina og hlutverkið en ágreiningur milli þeirra hafi orðið til þess að hann tók hlutverkið ekki að sér. John Travolta og Forrest Gump Kvikmyndasagan hefði orðið örlítið öðruvísi ef Tom Hanks hefði ekki leikið Forrest Gump í samnefndri Óskarsverðlaunamynd frá 1994. Hanks vann til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni en hann var ekki fyrsti kostur hjá leikstjóranum, Robert Zemeckis. John Travolta var maðurinn sem aðstandendur myndarinnar vildu fá en hann hafnaði hlutverkinu. Þess má geta að Travolta hafnaði einnig hlutverki í Apollo 13 sem Tom Hanks lék í. Nicolas Cage í Lord of the Rings Viggo Mortensen lék Aragorn á eftirminni- legan hátt í Lord of the Rings-myndunum. Í viðtali við Newsweek-tímaritið sagði Cage að hann hefði fengið tilboð um að túlka þessa persónu úr bókum Tolkiens. Hann hafnaði tilboðinu meðal annars vegna þess hversu stórt að umfangi ver- kefnið var. „Það var mikið um að vera í lífi mínu á þessum tíma sem kom í veg fyrir að ég gat ferðast og verið að heiman í þau þrjú ár sem verkefnið tók.“ Johnny Depp og Ferris Bueller‘s Day Off Matthew Broderick kom sér almennilega á kortið í Hollywood með leik sínum í gamanmyndinni Ferris Bueller‘s Day Off árið 1986. Johnny Depp var þó maðurinn sem framleiðendur myndarinnar vildu fá í aðal- hlutverkið en hann hafnaði því vegna anna í öðrum verkefnum. Forvitnilegt hefði verið að sjá myndina með Johnny Depp í hlutverki. Enginn efast þó um að Matthew Broderick lék hlutverkið óaðfinnanlega og hlaut meðal annars tilnefningu til Golden Globe-verðlaun- anna fyrir leik sinn. Tom Hanks og Jerry Maguire Cameron Crowe, leikstjóri Jerry Maguire, viðurkenndi eitt sinn í viðtali að hann hefði skrifað handrit myndarinnar með Tom Hanks í huga sem aðalleikarann. Ekki varð af því, en eins og kunnugir vita lék Tom Cruise aðalhlutverk- ið. Myndin var tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna, þar af hlaut Cruise tilnefningu, en þegar á hólminn var komið hlaut myndin aðeins ein verðlaun – Cuba Gooding Jr. vann fyrir leik í aðalhlutverki. En nóg um það. Tom Hanks hafnaði hlutverkinu því um sama leyti og tökur stóðu yfir var hann upptekinn við tökur á That Thing You Do. Hanks sagðist síðar vera ánægður að hann hafi hafnað hlutverkinu, Tom Cruise hefði verið fullkominn í hlutverkið. Michelle Pfeiffer og Silence of the Lambs Hefði Jonathan Demme, leikstjóri Silence of the Lambs, fengið að ráða hefði Jodie Foster ekki leikið Clarice Starling í þessum margrómaða spennutrylli. Demme vildi að Michelle Pfeiffer fengi hlutverkið en handritshöfundurinn, Ted Tally, vildi að Jodie Foster fengi hlutverkið. Kannski sem betur hafnaði Pfeiffer hlutverkinu þar sem ofbeldið í myndinni var of mikið fyrir hennar smekk. Eftir stóð því Jodie Foster og söguna eftir það þekkja flestir: Myndin er af mörg- um talin á meðal bestu kvikmynda sögunnar og hlaut fimm verðlaun á Óskarsverðlauna- hátíðinni 1992, meðal annars sem besta myndin og þá hlaut Jodie Foster verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki. Stjörnurnar sem sögðu nei takk!   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.