Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 42
Helgarblað 2.–5. desember 201630 Skrýtið Sakamál SamviSkulauS SyStkin n Narcy vildi eignir manns síns n Launmorðingjar sáu um ódæðin Á girnd er á meðal hinna svo- nefndu sjö synda eða dauða- synda kristninnar. Hvort sem um dauðasynd eða bara synd er að ræða þá varð ágirnd Narcy nokkurri Novack og bróður hennar Cristobal Veliz að falli. Þannig var mál með vexti að Narcy, fyrrverandi strippari, var gift milljónamæringi, Ben Novack yngri, syni hugmyndasmiðsins að baki hinu víðfræga Fontainebleau- hótels á Miami Beach í Flórída. Eftir 21 árs hjónaband var þó farið að hrikta í stoðum þess og frekar fátt um fína drætti. Rebecca Bliss Nú skal nefnd til sögunnar Rebecca Bliss. Hún er fyrrverandi klám- myndaleikkona og var í augum Narcy keppinautur. Ekki hvað ást Bens áhrærði heldur auðæfi hans sem voru umtalsverð; metin á 8–10 milljónir Bandaríkjadala. Narcy óttaðist að Ben sneri við henni baki og endaði í fangi Rebeccu Bliss. Gat hún ekki hugs- að þá hugsun til enda því kaupmáli sem hún og Ben höfðu gert tryggði henni aðeins skitna 65.000 dali. Lýkur hér með þætti Rebeccu Bliss í þessari frásögn. Tími aðgerða Til að komast yfir auðæfi Bens þurfti að ryðja nokkur ljónum úr veginum, tveimur nánar til tekið. Um var að ræða Ben og aldraða móður hans, Bernice. Narcy lagði á ráðin með Cristobal. Niðurstaðan varð sú að hann fyndi einhverja launmorðingja til að koma mæðginunum fyrir kattarnef. Cristobal gekk í málið og fann Joel Gonzalez og Alexandro Gutierrez- Garcia, óvandaða dela sem víluðu fátt fyrir sér. Sonur fylgir móður Samkvæmt erfðaskrá Bens fengi móðir hans yfirráð yfir eignum hans að honum gengnum. Því lá beinast við að byrja á henni og í apríl 2009 tóku launmorðingjar Cristobals til starfa. Þann 4. apríl gerðu þeir Bernice, 84 ára, fyrirsát á heimili hennar í Fort Lauderdale og börðu hana til dauðs með rörtöng og segir ekki meira af henni. Um þremur og hálfum mánuði síðar hlaut Ben sömu örlög og móðir hans. Þann 12. júlí, á Hilton Rye Brook-hótelinu í Westchester- sýslu í New York-ríki, var Ben bundinn í bak og fyrir með einangrunarlím- bandi. Leiguþý Cristobals og Narcy gekk síðan í skrokk á Ben með hand- lóðum þar til hann var allur. Sam- kvæmt fyrirmælum Narcy skáru þeir einnig augun úr fórnarlambi sínu. Varpa ábyrgð hvort á annað En systkinunum og vitorðsmönn- um þeirra varð ekki kápan úr þessu klæðinu og langur armur laganna hafði hendur í hári þeirra. Við rétt- arhöldin bentu Narcy og Cristobal hvort á annað sem forsprakkann. Cristobal bætti reyndar um betur og lagði sig í líma við að bendla dóttur Narcy, May Abad, við verknaðinn. „Hinn raunverulegi glæpa- maður hér, sá sem skipulagði allt saman, er May Abad. […] Ég hef ekki hugmynd um af hverju ég er hér,“ sagði Cristobal. En þrátt fyrir að May Abad hefði verið yfirheyrð nokkrum sinnum kom ekkert fram sem tengdi hana við morðin. Klósettþrif í stað kampavínsdrykkju Verjendur Narcy og Cristobals fóru þess á leit við dómarann að hann sýndi mildi hvað dóma varð- aði. Verjandi Narcy sagði henn- ar ábyrgð minni því bróðir hennar hefði verið við stjórnvölinn, og verj- andi Cristobals sneri því við. Þeir töluðu báðir fyrir daufum eyrum. Dómarinn fór ekki í launkofa með þá skoðun sína að honum fyndist glæpir systkinanna „viðurstyggileg- ir“ og 16. desember, 2012, dæmdi hann þau bæði í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Dagar kampavíns og kavíars eru liðnir hjá Narcy, því samkvæmt lögum á þessum slóðum getur morðingi ekki erft eignir fórnarlambs síns. Þess í stað fer Narcy á fætur við sólarupp- rás til að skrúbba gólf og þrífa klósett. Joel Gonzalez og Alexandro Gutierrez-Garcia voru lykilvitni ákæruvaldsins og fengu vægari dóma fyrir vikið. n Hjónakornin Dagar kampavíns eru liðnir hjá Narcy. Cristobal Veliz Sá um að ráða laun- morðingja. Ásældist eignir manns síns Vegna ágirndar mun Narcy vera í fangelsi það sem eftir lifir ævinnar. „Hinn rauverulegi glæpamaður hér, sá sem skipulagði allt saman, er May Abad. Gleraugnaverslunin Eyesland opnar nýja og glæsilega verslun á Grandagarði 13. Mikið úrval af góðum gleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónstu. Opnum augun á nýjum stað! Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Ray Ban umgjörð kr. 24.890,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.