Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Síða 42
Helgarblað 2.–5. desember 201630 Skrýtið Sakamál
SamviSkulauS SyStkin
n Narcy vildi eignir manns síns n Launmorðingjar sáu um ódæðin
Á
girnd er á meðal hinna svo-
nefndu sjö synda eða dauða-
synda kristninnar. Hvort sem
um dauðasynd eða bara synd
er að ræða þá varð ágirnd
Narcy nokkurri Novack og bróður
hennar Cristobal Veliz að falli.
Þannig var mál með vexti að
Narcy, fyrrverandi strippari, var
gift milljónamæringi, Ben Novack
yngri, syni hugmyndasmiðsins að
baki hinu víðfræga Fontainebleau-
hótels á Miami Beach í Flórída.
Eftir 21 árs hjónaband var þó farið
að hrikta í stoðum þess og frekar
fátt um fína drætti.
Rebecca Bliss
Nú skal nefnd til sögunnar Rebecca
Bliss. Hún er fyrrverandi klám-
myndaleikkona og var í augum
Narcy keppinautur. Ekki hvað ást
Bens áhrærði heldur auðæfi hans
sem voru umtalsverð; metin á 8–10
milljónir Bandaríkjadala.
Narcy óttaðist að Ben sneri
við henni baki og endaði í fangi
Rebeccu Bliss. Gat hún ekki hugs-
að þá hugsun til enda því kaupmáli
sem hún og Ben höfðu gert tryggði
henni aðeins skitna 65.000 dali.
Lýkur hér með þætti Rebeccu
Bliss í þessari frásögn.
Tími aðgerða
Til að komast yfir auðæfi Bens þurfti
að ryðja nokkur ljónum úr veginum,
tveimur nánar til tekið. Um var að
ræða Ben og aldraða móður hans,
Bernice.
Narcy lagði á ráðin með Cristobal.
Niðurstaðan varð sú að hann fyndi
einhverja launmorðingja til að
koma mæðginunum fyrir kattarnef.
Cristobal gekk í málið og fann Joel
Gonzalez og Alexandro Gutierrez-
Garcia, óvandaða dela sem víluðu
fátt fyrir sér.
Sonur fylgir móður
Samkvæmt erfðaskrá Bens fengi
móðir hans yfirráð yfir eignum hans
að honum gengnum. Því lá beinast
við að byrja á henni og í apríl 2009
tóku launmorðingjar Cristobals til
starfa.
Þann 4. apríl gerðu þeir Bernice,
84 ára, fyrirsát á heimili hennar í
Fort Lauderdale og börðu hana til
dauðs með rörtöng og segir ekki
meira af henni.
Um þremur og hálfum mánuði
síðar hlaut Ben sömu örlög og móðir
hans. Þann 12. júlí, á Hilton Rye
Brook-hótelinu í Westchester- sýslu
í New York-ríki, var Ben bundinn í
bak og fyrir með einangrunarlím-
bandi. Leiguþý Cristobals og Narcy
gekk síðan í skrokk á Ben með hand-
lóðum þar til hann var allur. Sam-
kvæmt fyrirmælum Narcy skáru þeir
einnig augun úr fórnarlambi sínu.
Varpa ábyrgð hvort á annað
En systkinunum og vitorðsmönn-
um þeirra varð ekki kápan úr þessu
klæðinu og langur armur laganna
hafði hendur í hári þeirra. Við rétt-
arhöldin bentu Narcy og Cristobal
hvort á annað sem forsprakkann.
Cristobal bætti reyndar um betur og
lagði sig í líma við að bendla dóttur
Narcy, May Abad, við verknaðinn.
„Hinn raunverulegi glæpa-
maður hér, sá sem skipulagði allt
saman, er May Abad. […] Ég hef
ekki hugmynd um af hverju ég er
hér,“ sagði Cristobal. En þrátt fyrir
að May Abad hefði verið yfirheyrð
nokkrum sinnum kom ekkert fram
sem tengdi hana við morðin.
Klósettþrif í stað
kampavínsdrykkju
Verjendur Narcy og Cristobals
fóru þess á leit við dómarann að
hann sýndi mildi hvað dóma varð-
aði. Verjandi Narcy sagði henn-
ar ábyrgð minni því bróðir hennar
hefði verið við stjórnvölinn, og verj-
andi Cristobals sneri því við. Þeir
töluðu báðir fyrir daufum eyrum.
Dómarinn fór ekki í launkofa með
þá skoðun sína að honum fyndist
glæpir systkinanna „viðurstyggileg-
ir“ og 16. desember, 2012, dæmdi
hann þau bæði í lífstíðarfangelsi án
möguleika á reynslulausn.
Dagar kampavíns og kavíars eru
liðnir hjá Narcy, því samkvæmt lögum
á þessum slóðum getur morðingi ekki
erft eignir fórnarlambs síns. Þess í
stað fer Narcy á fætur við sólarupp-
rás til að skrúbba gólf og þrífa klósett.
Joel Gonzalez og Alexandro
Gutierrez-Garcia voru lykilvitni
ákæruvaldsins og fengu vægari
dóma fyrir vikið. n
Hjónakornin Dagar kampavíns eru liðnir hjá Narcy.
Cristobal Veliz Sá um að ráða laun-
morðingja.
Ásældist eignir manns síns Vegna ágirndar mun Narcy vera í fangelsi það sem eftir lifir
ævinnar.
„Hinn rauverulegi
glæpamaður hér,
sá sem skipulagði allt
saman, er May Abad.
Gleraugnaverslunin Eyesland opnar nýja og glæsilega verslun á
Grandagarði 13. Mikið úrval af góðum gleraugum á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónstu.
Opnum augun
á nýjum stað!
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Ray Ban umgjörð kr. 24.890,-