Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2017, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 30.05.2017, Qupperneq 6
3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð StJóRnSýSLa Sú aðferð sem lögð er til í nýju frumvarpi Brynjars Níelssonar alþingismanns er skárri en heimild til aðfarar sem finna má í núgildandi barnaverndarlögum. Þetta er mat Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu. Brynjar Níelsson hefur, ásamt fleiri þingmönnum, lagt fram frumvarp til breytinga á barnaverndarlögum sem felur í sér að ef foreldri sem barn býr hjá hindrar hitt foreldrið í að neyta umgengnisréttar eða takmarkar hann, þá varði það fangelsi allt að fimm árum. Bragi Guðbrandsson bendir á að í barnalögum í dag sé lokaúrræðið aðför, þar sem barn er tekið af heimili. „Ég held að allir séu sammála um að það sé alversta aðferð sem hægt er að beita í svona málum,“ bætir hann við. Sú aðgerð beinist gegn barninu sjálfu og barnið sé beinn þolandi slíkrar aðgerðar. „Ég held að það sé þá skömminni skárra að í neyðaraðgerðum sé það frekar gert þannig að foreldrið sé handtekið,“ segir hann. Þá beinist aðgerðin að hinum brotlega. Bragi leggur áherslu á að foreldri yrði ekki handtekið nema í algjörum undantekningartilfellum. Bragi bendir líka á að skipta megi tálmunarmálum í stórum dráttum í tvo flokka. Annars vegar þegar málefnalegar ástæður eru fyrir því að foreldri hindri hitt foreldrið í að umgangast barnið. Það er þegar foreldri telur það andstætt hags- munum barnsins, jafnvel hættulegt, að umgangast hitt foreldrið. Í öðrum tilfellum eigi sér slík tálmun stað án nokkurrar málefnalegrar ástæðu. „Vandinn er sá að þessum ólíku ástæðum er oft blandað saman,“ segir Bragi. Hann segir það þurfa að vera alveg skýrt að foreldri sem tálmar aðgengi hins foreldrisins eigi ekki að geta tekið slíka ákvörðun á eigin for- sendum. „Það þarf að vera aðili sem veitir slíkri ákvörðun lögmæti, ef það er yfirhöfuð hægt að veita henni lög- mæti,“ segir Bragi. Sýslumaður eigi að taka þessa ákvörðun eftir að barnaverndarkerfið hafi kannað hvort gildar ástæður séu fyrir tálmun. Þetta ferli, þar til sýslumaður getur gefið heimild til tálmunar með bráðabirgðaúrskurði, eigi að taka sem stystan tíma. Það eigi að klárast innan nokkurra vikna en ekki á mánuðum eða árum. jonhakon@frettabladid.is Tillaga Brynjars betri en núverandi verklag Forstjóri Barnaverndarstofu segir skárra að fangelsa foreldri vegna tálmunar en að taka barn af heimilinu. Nýtt frumvarp um aðgerðir vegna tálmunar séu því til bóta. Sýslumaður þurfi að geta afgreitt tálmunarmál með hraði. Ég held að það sé þá skömminni skárra að í neyðaraðgerðum sé það frekar gert þannig að for- eldrið sé handtekið. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna- verndarstofu Tré þoldu ekki veðurofsann Að minnsta kosti ellefu létu lífið þegar óveður gekk yfir Moskvu, höfuðborg Rússlands, í fyrradag. Vindhraði náði yfir 30 m/s og féllu tré í veðurofsanum og byggingar löskuðust. Maður á gamals aldri lést þegar tré féll á hann meðan hann beið eftir strætó. Sömu örlög biðu pars sem dvaldi í sumarhúsi sem tré féll á. Hátt í hundrað slösuðust í veðrinu sem hefur verið lýst sem versta veðri í borginni í yfir hundrað ár. NORDICPHOTOS/AFP VIÐ HJÁ BÍLALANDI ERUM MEÐ NOKKRA LÚXUSBÍLA Á STÆÐINU. KOMDU Í HEIMSÓKN OG FÁÐU TILBOÐ HJÁ OKKUR. LAND ROVER Discovery 4 SE Nýskr. 05/15, ekinn 42 þ.km, dísil, sjálfskiptur, 8 gírar. VERÐ 10.290 þús. kr. LAND ROVER Discovery 4 SE Nýskr. 02/16, ekinn 64 þ.km, dísil, sjálfskiptur, 8 gírar. VERÐ 10.890 þús. kr. LAND ROVER Discovery 4 SE Nýskr. 01/16, ekinn 61 þ.km, dísil, sjálfskiptur, 8 gírar. VERÐ 10.890 þús. kr. MERCEDES-BENZ GLS 350 Nýskr. 11/16, ekinn 12 þ.km, dísil, sjálfskiptur, 9 gírar. VERÐ 14.390 þús. kr. Rnr. 370582 Rnr. 192375 Rnr. 143854 Rnr. 284355 www.bilaland.is Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16. www.facebook.com/bilaland.is E N N E M M / S ÍA / N M 8 2 3 3 8 B íl a la n d L ú x u s b íl a r 2 x 3 8 3 0 m a í BMW X5 xDrive40e F15 PHEV Nýskr. 09/16, ekinn 4 þ.km, bensín, sjálfskiptur, 8 gírar. VERÐ 10.490 þús. kr. Rnr. 390039 LAND ROVER Range Rover Evoque HSE Nýskr. 02/16, ekinn 11 þ.km, dísil, sjálfskiptur, 9 gírar. VERÐ 8.590 þús. kr. Rnr. 370580 ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 7 -7 F 8 8 1 C F 7 -7 E 4 C 1 C F 7 -7 D 1 0 1 C F 7 -7 B D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.