Fréttablaðið - 30.05.2017, Qupperneq 11
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Rexton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur.
Þau opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn.
Þau auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu
heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
DANMÖRK Væntanleg útganga Breta
úr Evrópusambandinu, það er
Brexit, getur haft áhrif á samninga
sem Grænland og Færeyjar hafa
gert við Bretland, einkum í sjávar-
útvegsmálum. Þetta viðurkenna
bæði utanríkisráðherra Danmerkur,
Anders Samuelsen, og Lars Løkke
Rasmussen forsætisráðherra.
Á vef grænlenska útvarpsins segir
að unnið sé að því í samvinnu við
Grænland og Færeyjar að tryggja
hagsmuni ríkjasambandsins við
gerð nýrra samninga milli danska
ríkisins og Bretlands. – ibs
Semja á ný
vegna Brexit
DóMsMál Malín Brand hefur áfrýjað
til Hæstaréttar 12 mánaða fangelsis-
dómi sem hún fékk fyrir að hafa
ásamt systur sinni, Hlín Einarsdótt-
ur, reynt að kúga fé út úr Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi
forsætisráðherra, og Helga Jean
Classen.
Helgi Jean greiddi þeim systrum
700 þúsund krónur eftir að þær
höfðu hótað að kæra hann fyrir
nauðgun. Lögreglan handtók syst-
urnar þegar þær reyndu að kúga fé
út úr Sigmundi.
Systurnar fengu báðar tólf mán-
aða fangelsisdóm, þar af níu mán-
uði skilorðsbundna, í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Malín viðurkenndi
hlutdeild í fjárkúgun á Sigmundi en
neitaði sök í máli Helga Jean. – aó
Malín áfrýjar
DANMÖRK 320 ríkustu fjölskyld-
urnar í Danmörku hafa falið 60
milljarða danskra króna eða um 900
milljarða íslenskra króna í skatta-
skjólum. Þetta er mat sérfræðinga
við Kaupmannahafnarháskóla,
Berkeley-háskólann í Bandaríkjun-
um og NMBU-háskólann í Noregi.
Sérfræðingarnir rannsökuðu
gögn frá HSBC-bankanum í Sviss
sem lekið var fyrir nokkrum árum
auk Panamaskjalanna og báru þau
saman við upplýsingar frá skatta-
yfirvöldum. – ibs
900 milljarðar í
skattaskjólum
Rannsakendur studdust við gögn frá
HSBC-bankanum. NORDICPHOTOS/AFP
Brexit getur haft áhrif á samninga
Færeyja og Grænlands í sjávarútvegs-
málum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EKVADOR Nýkjörinn forseti Ekva-
dor, Lenin Moreno, segir að Ástral-
inn Julian Assange, stofnandi Wiki-
Leaks, sé tölvuþrjótur. Þar er á ferð
viss stefnubreyting frá tíð fyrri for-
seta, og læriföður Morenos, Rafael
Correa.
Assange hefur hafst við í sendi-
ráði Ekvador í London undanfarin
fimm ár til að komast hjá handtöku
og mögulegu framsali. Hann var
eftirlýstur í Svíþjóð vegna ásakana
um kynferðisbrot og þá vilja Banda-
ríkjamenn og Bretar hafa hendur í
hári hans. Forsetakosningarnar í
Ekvador snerust að stórum hluta
um veru Ástralans í sendiráðinu.
Guillermo Lasso, andstæðingur
Morenos, hafði heitið því að henda
Assange út úr sendiráðinu. Fyrr-
verandi forsetinn Correa veitti Ass-
ange pólitískt hæli og talaði ávallt
um hann sem blaðamann. Moreno
tók í annan streng bæði í kosninga-
baráttu sinni og eftir að hann tók
við embætti.
„Herra Assange er tölvuþrjótur,“
sagði Moreno við fjölmiðla í heima-
landinu í gær. „Þrátt fyrir það virði
ég þá afstöðu hans að kalla eftir
aukinni virðingu fyrir mannrétt-
indum, en við förum fram á að hann
virði einnig þá stöðu sem Ekvador
er í.“ – jóe
Tölvuþrjóturinn Assange verður að virða stöðu Ekvador
Rafael Correa
tekur í hönd
Lenins Moreno
þegar sá
síðarnefndi sór
embættiseið.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Herra Assange er
tölvuþrjótur
Lenin Moreno, nýkjörinn
forseti Ekvador
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
7
-A
7
0
8
1
C
F
7
-A
5
C
C
1
C
F
7
-A
4
9
0
1
C
F
7
-A
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K