Fréttablaðið - 30.05.2017, Side 16
20.00 Pepsimörk kvenna Sport
Borgunarbikar karla:
19.15 ÍA - Grótta
Í dag
ÍBV - Breiðablik 2-0
1-0 Katie Kraeutner (10.), 2-0 Kristín Erna
Sigurlásdóttir (25.).
Stjarnan - Þór/KA 1-3
1-0 Agla María Albertsdóttir (3.), 1-1 Sandra
Mayor (36.), 1-2 Natalia Gomez (45.), 1-3
Hulda Ósk Jónsdóttir (60.).
Haukar - Valur 1-4
0-1 Ariana Calderon (2.), 0-2 Vesna Smiljko-
vic (36.), 0-3 Elín Metta Jensen (45.), 0-4 Hlíf
Hauksdóttir (68.), 1-4 Marjani Hing-Glover
(89.).
Grindavík - FH 1-3
0-1 Helena Ósk Hálfdánardóttir (2.), 1-1
Rilany da Silva (36.), 1-2 Guðný Árnadóttir
(50.), 1-3 Megan Dunnigan (55.).
Efri
Þór/KA 21
Stjarnan 16
Breiðablik 15
ÍBV 13
Valur 12
Neðri
FH 12
Grindavík 6
Fylkir 4
KR 3
Haukar 1
Pepsi-deild kvenna
NýjastÞór/KA er að stinga af í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu
Atgangur Það gekk mikið á þegar Stjarnan tók á móti Þór/KA en norðanstúlkur höfðu betur að lokum. FréttABlAðið/StEFáN
Handbolti Íslendingaliðið Aalborg
varð á sunnudaginn danskur meist-
ari í handbolta eftir öruggan sigur á
Skjern, 25-32, í seinni leik liðanna í
úrslitaeinvíginu. Liðin skildu jöfn,
26-26, í fyrri leiknum á heimavelli
Aalborg. Aron Kristjánsson er þjálf-
ari Aalborg og með liðinu leika þrír
íslenskir landsliðsmenn; Arnór Atla-
son, Stefán Rafn Sigurmannsson og
Janus Daði Smárason.
„Þetta er frábært og ég er mjög
ánægður að hafa náð að klára titilinn
með frekar ungt lið. Við vorum stöð-
ugir á tímabilinu og það var æðislegt
að ná að klára þetta í lokin,“ sagði
Aron í samtali við Fréttablaðið í gær.
Aalborg var með yfirhöndina í
seinni úrslitaleiknum og leiddi allan
tímann. Staðan í hálfleik var 10-14 en
Skjern minnkaði muninn í eitt mark,
16-17, þegar rúmar 20 mínútur voru
til leiksloka. Þá gaf Aalborg aftur í og
vann að lokum öruggan sigur.
„Við vorum líka betri aðilinn í
fyrri leiknum en þeir komu sér inn í
hann með því að spila með sjö menn
í sókn. Jafnteflið gerði það að verkum
að bæði lið gátu tryggt sér titilinn og
seinni leikurinn bar þess merki. Við
mættum gríðarlega ákveðnir til leiks
og gerðum þetta vel,“ sagði Aron
Urðum alltaf betri og betri
Aron Kristjánsson gerði Aalborg að dönskum meisturum í handbolta á sunnudaginn. Með liðinu leika þrír
Íslendingar. Þetta er í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem Aron stýrir meistaraliðinu í Danmörku.
sem fagnaði titlinum á sínum gamla
heimavelli. Hafnfirðingurinn lék á
sínum tíma með Skjern og var hluti
af eina meistaraliði félagsins árið
1999. Hann er ekki óvanur því að
vinna titla í Danmörku. Aron gerði
Kolding að dönskum meistara 2014
og 2015 og vann titilinn á sínu fyrsta
tímabili hjá Aalborg. Aron hefur
því þjálfað þrjú af síðustu fjórum
meistaraliðum í Danmörku. Auk
þess gerði hann Hauka þrívegis að
Íslandsmeisturum og hefur því unnið
sex landstitla sem þjálfari.
„Fyrir tímabilið var markmið
félagsins að vera í toppbaráttunni og
vera meðal fjögurra efstu liðanna. En
við vissum að ef þetta myndi smella
hjá okkur gætum við farið alla leið og
það tókst. Við urðum betri og betri
eftir því sem leið á veturinn,“ sagði
Aron. Að hans sögn var Aalborg ekki
talið sigurstranglegast fyrir tímabilið.
„Kolding, Bjerringbro/Silkeborg
og Skjern voru talin líklegri. En í
Kolding vorum við taldir sigurstrang-
legastir. Á þann hátt er þetta öðru-
vísi. Aalborg er með frekar ungt lið
og margir að vinna sinn fyrsta titil í
stóru hlutverki,“ sagði Aron. Íslend-
ingarnir þrír höfðu þó allir unnið
titla áður á sínum ferli.
Aron var ánægður með frammi-
stöðu Janusar Daða sem kom til
Aalborg eftir HM í Frakklandi. Sel-
fyssingurinn var öflugur í úrslitaleikj-
unum þar sem hann skoraði samtals
sjö mörk og gaf sjö stoðsendingar.
„Mér hefur fundist hann standa
sig mjög vel. Við byrjuðum á að nota
hann talsvert í hægri skyttustöðunni,
bæði í vörn og sókn. Smátt og smátt
færðist hann svo meira inn á miðj-
una,“ sagði Aron. Arnór og Stefán
Rafn spiluðu minna í úrslitaein-
víginu. „Stebbi hefur verið meiddur
og nánast ekkert getað æft. Hann
var í liðinu til öryggis til að draga
úr álaginu á hinn hornamanninn.
Arnór spilaði 30-40 mínútur í fyrri
leiknum en ekkert í þeim seinni,“
sagði Aron og bætti því við að reynsla
Arnórs hefði reynst ungu liði Aalborg
mikilvæg í vetur. ingvithor@365.is
Það var mikil gleði hjá leikmönnum álaborgar. FréttABlAðið/GEtty
ALLT FYRIR
HEIMILIÐ
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Sex nýliðAr til noregS
Nokkrir af sterkustu handbolta-
mönnum landsins fá frí er A-lands-
lið karla tekur þátt á æfingamóti í
Noregi.
Aron Pálmarsson, Arnór Atlason
og Ásgeir Örn Hallgrímsson fá frí
á mótinu og leikmenn sem spila í
Þýskalandi komast ekki í verkefnið.
Það vantar því flesta af fastamönnum
landsliðsins að þessu sinni.
Landsliðsþjálfarinn Geir Sveinsson
gaf það út fyrir þó nokkru síðan
að þetta mót yrði notað til þess að
skoða aðra leikmenn.
Nýliðarnir eru sex að þessu sinni og
þar á meðal hinn ungi og efnilegi,
Ýmir Örn Gíslason. Nokkra athygli
vekur að annar efnilegur drengur,
Gísli Þorgeir Kristjánsson, er ekki í
hópnum.
Aðrir nýliðar eru Ágúst Elí Björgvins-
son, Daníel Þór Ingason, Geir Guð-
mundsson, Sigvaldi
Guðjónsson, Vignir
Stefánsson og Ýmir.
Mótið fer fram í
Elverum frá 8. til 11.
júní. Ísland spilar
við Noreg, Pólland
og Svíþjóð á mótinu
sem heitir Gjensi-
dige Cup.
Hópinn má sjá í
heild sinni á
Vísi.
vAlverde teKur við bArcA
Barcelona tilkynnti á blaðamanna-
fundi nú síðdegis að félagið væri
búið að ráða Ernesto Valverde sem
þjálfara liðsins. Hann tekur við af
Luis Enrique sem ákvað að hætta
fyrir þó nokkru síðan.
Valverde er 53 ára gamall og Spán-
verji og kemur til Barcelona frá
Athletic Bilbao en því liði hefur hann
stýrt síðan 2013. Hann hóf sinn
þjálfaraferil einnig hjá félaginu árið
2002.
Í millitíðinni fór hann til Espanyol,
Olympiacos, Villarreal og Valencia.
Sem leikmaður spilaði hann 22 leiki
fyrir Barcelona er hann var leik-
maður félagsins frá 1988 til 1990.
Hann náði að spila einn landsleik
fyrir spænska landsliðið. Lengst af
lék hann með Bilbao.
Hann verður kynntur formlega á
blaðamannafundi á fimmtudag.
3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ R i Ð J U d a G U R16 S p o R t ∙ F R É t t a b l a Ð i Ð
sport
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
7
-7
A
9
8
1
C
F
7
-7
9
5
C
1
C
F
7
-7
8
2
0
1
C
F
7
-7
6
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K