Fréttablaðið - 30.05.2017, Side 30
Þetta atvikaðist bara sisvona. Ég var hættur hefðbundnum skrifstofurekstri en tók að mér verk
efni við ráðgjöf, skjalagerð og þess
háttar á sviði lögfræði og fasteigna
sölu en ekkert fast í hendi og bauðst
að prófa að vinna í ferðageiranum
yfir sumartímann við rútuakstur,“
segir Jón Sigfús.
Hann hafði ekki áður unnið við að
keyra stærri farartæki en alltaf verið
talsvert viðloðandi vélar, mest tengt
búskap. „Ég hafði verið að stússast
í frístundabúskap lengi, hesta
mennsku og hrossarækt, heyjað og
slíkt. Ég hafði endurnýjað ökurétt
indin sem voru upphaflega frá 1968
og fór í meiraprófið, allan pakkann,
vorið 2015 og langaði að prófa að
keyra rútur. Ég hef verið að keyra í
lausamennsku hjá SBA síðastliðin
tvö sumur og gripið í þetta líka yfir
vetrartímann en jafnframt sinnt
tilfallandi verkefnum við lögfræðina,
ekki síst fyrir gamla kúnna.“
Þrífst ekki í skrifstofuvinnu
En hvað finnst honum skemmti
legast við starfið? „Það magnaða er
að mér finnst þetta allt skemmtilegt,
líka þegar það er bras, t.d. vegna
veðurs og færðar. Ég er hundvanur
vetrarakstri úti um land og hef búið
stóran hluta ævinnar í dreifbýlinu,
á Norðurlandi og Vestfjörðum,
enda Skagfirðingur í móðurætt og
Vestfirðingur í föðurætt. Ég var við
kennslu og búskap fyrir vestan á
yngri árum og var líka í löggunni.
Reyndar hef ég aldrei þrifist til
lengdar við skrifstofuvinnu eina sér
og alltaf þurft að stússast meðfram í
einhverju, var t.d. talsvert í hesta
ferðum yfir sumartímann með ferða
menn, fyrst um 1990, frá Reykjavík
en einnig fyrir norðan og fyrir vestan
í seinni tíð,“ segir Jón Sigfús.
Á skólabekk í vetur
Síðasta haust settist Jón Sigfús á
skólabekk að læra leiðsögn og stefnir
að útskrift um jólin. „Það kom ein
hvern veginn af sjálfu sér. Þó ég hafi
mestmegnis starfað sem lögfræð
ingur og fasteignasali undanfarna
tvo áratugi var ég áður í líffræðinámi
við HÍ og starfaði aðeins á því sviði
við fiskeldi á yngri árum. Ég hef líka
kennt á öllum skólastigum, m.a. við
háskóla sem stundakennari. Það lá
því frekar beint við að huga að námi
á sviði ferðamennsku þar sem ég
varð alveg heillaður af því að ferðast
með erlenda gesti um þetta einstaka
land okkar. Ég skráði mig í leiðsögu
námið hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands fyrst og fremst til að skerpa
á þekkingu á landinu, jarðfræði,
sögu og menningu þjóðarinnar og
náttúrunni allri. Planið var ekkert
endilega að fara að starfa sem leið
sögumaður. Mér sýnist hins vegar
að það gæti hentað mér ágætlega að
blanda þessu saman og taka að mér
verkefni við ökuleiðsögn, hugsanlega
með skjala og skrifstofustússi.“
Stóri hringurinn í uppáhaldi
Jóni Sigfúsi finnst skemmtilegast að
fara í styttri og lengri ferðir út um
land. „Ég hef farið margar hringferð
ir, síðast um miðjan apríl síðastlið
inn, en tók svo pásu til að sinna verk
efnum og prófum í leiðsögunáminu
og er að byrja að keyra aftur núna.
Stóri hringurinn er dálítið mitt
uppáhald. Þá meina ég þegar einnig
er farið um Vestfirði. Svoleiðis ferð
er ekki styttri en 14 dagar ef eitthvert
vit er í skipulagningunni. Ef ég ætti
að taka eitthvað út fyrir sviga myndi
það vera Snæfellsnes og Vestfirðir en
ég elska að ferðast um allt land og á
erfitt með að gera upp á milli lands
hluta. Hingað til hef ég alltaf verið
bílstjóri í þessum ferðum og oftast
með afbragðsgóða leiðsögumenn.
Ég stefni þó á að prófa ökuleiðsögn í
nokkrum ferðum í sumar.“
Þegar Jón Sigfús er spurður hvort
hann hafi áhuga á bílum og farar
tækjum almennt segir hann að svo
sé. „En ég er samt enginn nörd. Um
tíma var ég á breyttum jeppum og
hafði gaman af ferðum í snjó yfir
vetrarmánuðina og hef alltaf verið
dálítill bíladellu og mótorhjólakall.“
Hann segist í og með spá meira í
slík tæki eftir að hann fór að keyra
rútur. „Ég hef unnið hjá þessu frá
bæra fyrirtæki, SBA, sem er með
höfuðstöðvar á Akureyri en heil
mikinn flota einnig hér syðra og þar
hef ég keyrt rútur af öllum stærðum
og gerðum, allt eftir verkefnum
hverju sinni. Ég hef verið á eldri
bílum sem hafa verið endurbyggðir
og eru meiriháttar en mest verið á
nýjum eða nýlegum bílum, Mercedes
Bens, Tourismo, oftast með öllum
þægindum.“
Jón Sigfús segir að það hafi komið
honum ánægjulega á óvart hvað
þessi vinna er áhugaverð og gefandi.
„Ég hef að vísu verið svo heppinn
að kynnast margs konar útgáfum af
ferðum. Fjölbreytileiki er því snar
þáttur í þessu eins og ég hef kynnst
þessum störfum, misjafnir hópar,
leiðir, árstíðir, veður, færð og birta að
ógleymdum leiðsögumönnunum og
auðvitað bílunum.“
Lögfræðingur við rútustýrið
Jón Sigfús Sigurjónsson lögfræðingur vinnur í ferðageiranum yfir sumar-
tímann við rútuakstur. Honum finnst allt skemmtilegt við starfið.
TROJAN RAFGEYMAR
Endingargóðir, úthaldsmiklir og traustir. Um
langt skeið hafa notendur um allan heim treyst
á Trojan til að skila framúrskarandi afli, en
afkastageta Trojan hefur verið aukin enn frekar
með nýjustu tækni.
fyrir vinnulyftur, gólfþvottavélar
og fleiri smærri vélar
HREIN ORKA Í ALLRA ÞÁGU Sölu- og þjónustuver 515 1100 – pontun@olis.is
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Ég hef farið margar hringferðir, síðast um miðjan apríl síðastliðinn, en tók svo pásu til að sinna verkefnum og prófum í leiðsögunáminu. MYND/STEFÁN
Það magnaða er að
mér finnst þetta allt
skemmtilegt, líka þegar
það er bras, t.d. vegna
veðurs og færðar.
Jón Sigfús Sigurjónsson
10 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
7
-A
B
F
8
1
C
F
7
-A
A
B
C
1
C
F
7
-A
9
8
0
1
C
F
7
-A
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K