Fréttablaðið - 30.05.2017, Síða 42

Fréttablaðið - 30.05.2017, Síða 42
Sigmar Jóhannsson, forsvarsmaður Búminjasafnsins Lindabæ situr á Massey Harris, árgerð 1948. Myndir/BúMinJa- Safnið LindaBæ farmall, a árgerð 1945, Búnaðarfélag Sauðárkróks fékk hana nýja. Snúið í gang með magnettu. deutz, 514 mótor, 15 hestafla, 1 strokks, árgerð 1955 Bautz, árgerð 1955, aðeins 18 vélar komu til landsins, 15 vatnskældar og 3 loftkældar. Á safninu eru einnig smærri tæki frá fyrri tíð eins og þessa skilvinda. Ég hafði safnað dráttarvélum og ýmsum vélum í mög ár og látið gera upp áður en ég byggði yfir þær sýningarsal. Nú er búið að bæta við öðrum sal sem tekur 120 manns, með eldhúsi og snyrtingum. Við erum með litla veitingasölu og vorum með þrjár sortir í fyrra, ætli það verði ekki eitthvað svipað í sumar,“ segir Sigmar Jóhannsson, landpóstur og fyrrverandi bóndi á Lindabæ í Sæmundarhlíð, en hann stofnaði Búminjasafnið Lindabæ fyrir þremur árum. Safnið telur tugi dráttarvéla og eitthvað af minni búvélum svo sem hverfisteina, skilvindur, hestakerru og sleða. Sigmar segir upphafið megi rekja til þess þegar komið var með Farmall Cub á bæinn þegar hann var strákur, árið 1952. Þar með kviknaði áhugi hans á dráttarvélum og seinna leitaði hann uppi eins vél. Boltinn fór að rúlla og í dag á hann um fimmtíu gamlar vélar, þrjátíu þeirra gangfærar og tuttugu er búið að gera upp fyrir safnið. „Sumar vélanna eru einstakar eins og Leyland 154 en hún er sennilega eina eintakið á landinu. Massey Harris 20 á ég einnig, frá árinu 1948. Eigandinn byrjaði að leggja inn á hana einu og hálfu ári áður en vélin var afgreidd. Það þætti skrítið í dag. Ég er með eina Farmall A 1945, sem er snúin í gang og set hana oft í gang fyrir gesti. En hún mengar, ég hef hana ekki lengi í gangi. Hún er lík- lega elsta vélin í safninu, sú yngsta er líklega Leylandinn, frá 1972,“ segir Sigmar. Safnið verður opnað þann 20. júní en hægt er að fylgjast Búminjasafninu Lindabæ á Facebook. farmall Cub kveikti áhugann Sigmar Jóhannsson setti á fót búminjasafn á bænum Lindabæ í Sæmundarhlíð. Þar eru til sýnis yfir tuttugu dráttarvélar og smærri tæki. Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is 22 KynninGarBLað 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ r i ðJ U daG U r 3 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C F 7 -9 D 2 8 1 C F 7 -9 B E C 1 C F 7 -9 A B 0 1 C F 7 -9 9 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 2 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.