Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 42
Sigmar
Jóhannsson,
forsvarsmaður
Búminjasafnsins
Lindabæ situr á
Massey Harris,
árgerð 1948.
Myndir/BúMinJa-
Safnið LindaBæ
farmall, a árgerð 1945, Búnaðarfélag Sauðárkróks fékk hana nýja. Snúið í
gang með magnettu.
deutz, 514 mótor, 15 hestafla, 1 strokks, árgerð 1955 Bautz, árgerð 1955, aðeins 18 vélar komu til landsins, 15
vatnskældar og 3 loftkældar.
Á safninu eru einnig smærri tæki frá
fyrri tíð eins og þessa skilvinda.
Ég hafði safnað dráttarvélum og ýmsum vélum í mög ár og látið gera upp áður en ég byggði
yfir þær sýningarsal. Nú er búið að
bæta við öðrum sal sem tekur 120
manns, með eldhúsi og snyrtingum.
Við erum með litla veitingasölu
og vorum með þrjár sortir í fyrra,
ætli það verði ekki eitthvað svipað
í sumar,“ segir Sigmar Jóhannsson,
landpóstur og fyrrverandi bóndi á
Lindabæ í Sæmundarhlíð, en hann
stofnaði Búminjasafnið Lindabæ
fyrir þremur árum.
Safnið telur tugi dráttarvéla og
eitthvað af minni búvélum svo sem
hverfisteina, skilvindur, hestakerru
og sleða. Sigmar segir upphafið megi
rekja til þess þegar komið var með
Farmall Cub á bæinn þegar hann var
strákur, árið 1952. Þar með kviknaði
áhugi hans á dráttarvélum og seinna
leitaði hann uppi eins vél. Boltinn
fór að rúlla og í dag á hann um
fimmtíu gamlar vélar, þrjátíu þeirra
gangfærar og tuttugu er búið að gera
upp fyrir safnið.
„Sumar vélanna eru einstakar eins
og Leyland 154 en hún er sennilega
eina eintakið á landinu. Massey
Harris 20 á ég einnig, frá árinu 1948.
Eigandinn byrjaði að leggja inn á
hana einu og hálfu ári áður en vélin
var afgreidd. Það þætti skrítið í dag.
Ég er með eina Farmall A 1945, sem
er snúin í gang og set hana oft í gang
fyrir gesti. En hún mengar, ég hef
hana ekki lengi í gangi. Hún er lík-
lega elsta vélin í safninu, sú yngsta er
líklega Leylandinn, frá 1972,“ segir
Sigmar.
Safnið verður opnað þann 20. júní en
hægt er að fylgjast Búminjasafninu
Lindabæ á Facebook.
farmall Cub kveikti áhugann
Sigmar Jóhannsson setti á fót búminjasafn á bænum Lindabæ í
Sæmundarhlíð. Þar eru til sýnis yfir tuttugu dráttarvélar og smærri tæki.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
22 KynninGarBLað 3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ r i ðJ U daG U r
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
7
-9
D
2
8
1
C
F
7
-9
B
E
C
1
C
F
7
-9
A
B
0
1
C
F
7
-9
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K