Fréttablaðið - 30.05.2017, Blaðsíða 62
Okkur langaði að g e r a e i t t hv a ð skemmtilegt nú þegar veturinn hefur kvatt og því efnum við til
tónleika í Seltjarnarneskirkju.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
hjartanlega velkomnir að koma
fagna sumrinu með okkur. Fólk
getur átt von á háklassík og poppi
og öllu þar á milli,“ segir Ragn-
hildur Dóra Þórhallsdóttir, einn
félaganna í Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju sem taka lagið í kirkj-
unni sinni í kvöld klukkan 20.30 á
tónleikunum Úti um mela og móa.
Á dagskránni eru einsöngslög,
dúettar, kvartettar og fjölradda
lög og músíkin verður úr ólíkum
áttum, að sögn Ragnhildar Dóru,
meðal annars finnsk og íslensk
sönglög í bland við Mozart, Verdi,
stríðsáraslagara og lög úr kvik-
myndum.
Friðrik Vignir Stefánsson, organ-
isti kirkjunnar, spilar með bæði á
píanó og harmóníku og einnig
leikur ein kona úr kórnum á flautu.
„Þessir tónleikar eru framtak
okkar söngvaranna,“ segir Ragn-
hildur Dóra. „Við erum átján í
kórnum en nú kemur bara hluti
félaganna fram. Þetta er í annað
sinn sem svona tónleikar eru
haldnir og þeir tókust svo vel í
fyrra að við ákváðum að endur-
taka leikinn,“ lýsir hún og kveðst
sjálf hafa byrjað í kórnum fyrir
þremur árum. Ragnhildur Dóra
segir öfluga kóra æfa í Seltjarnar-
neskirkju, annars vegar Selkórinn
og hins vegar téðan kammerkór
kirkjunnar. „Það er fólk úr kamm-
erkórnum sem sér um söng við
athafnir og guðsþjónustur í kirkj-
unni, yfirleitt eru það fjórir saman
sem mynda kvartett,“ segir hún og
bætir við: „Kórinn var með vortón-
leika 6. maí og þá sungum við Bach
og sálmalög. Oftast er það sem sagt
háalvarleg tónlist sem sungin er
af þessum kór en nú ræður fjöl-
breytnin ríkjum, bæði fyrir áheyr-
endur og okkur sjálf.“
Nú ræður
fjölbreytnin ríkjum
Einsöngvarar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju ætla að flytja dagskrá úr ýms-
um áttum í kirkjunni í kvöld, þriðjudag,
og bjóða öllum á að hlýða án endurgjalds.
Tónleikarnir nefnast Úti um mela og móa.
Sá hluti Kammerkórs Seltjarnarneskirkju sem syngur í kvöld. Ragnhildur Dóra tyllir sér á steininn og er þar lengst til
vinstri. Friðrik Vignir veifar glaðlega.
AðgAngur Er
óKEypiS og Allir
Eru hjArTAnlEgA vElKomnir
Að KomA og fAgnA Sumrinu
mEð oKKur. fólK gETur áTT
von á háKlASSíK og poppi og
öllu þAr á milli.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara.
Taktu þátt í Fésbókarleik Flísabúðarinnar og eigðu
möguleika á að vinna HELIOSA fjarstýrðan hitara
að verðmæti kr. 55.000,- .
Til að eiga möguleika á að vinna þarftu að:
Setja like á síðuna okkar og deila færslunni
(passa að setja like á síðuna okkar, ekki bara færsluna).
HELIOSA hitarar henta bæði innan- og utandyra. Helstu
kostir HELIOSA hitara eru: Hitna strax, vindur hefur ekki
áhrif, vatnsheldir og menga ekki. Margar gerðir til á lager.
3 0 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R22 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð
menning
3
0
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
7
-A
7
0
8
1
C
F
7
-A
5
C
C
1
C
F
7
-A
4
9
0
1
C
F
7
-A
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K