Fréttablaðið - 01.06.2017, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 2 8 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 . j ú n Í 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Þorvaldur Gylfason
skrifar um hágengisfjandann. 19
sport Hörður Björgvin, leik-
maður Bristol City, var settur í
frystikistuna. 31
Menning Áhugavert að skjóta
sig í fótinn og sjá hvað gerist. 38
lÍFið Íslensk
stjórnvöld
hafa mótað
mál-
stefnu til
varðveislu
og eflingar
íslenskri tungu. 48
Laugavegi 178 – sími 568 9955
AFSLÁTTARDAGUR
-20%
SÖFNUNAR
- STELL
&
GLÖS
AÐEINS Í DAG
-10%
plús 2 sérblöð l Fólk
l grunnnáM á biFröst
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Fundað var langt fram á kvöld á Alþingi í gær. Við slíkar aðstæður getur ýmislegt komið upp sem þarf að hvíslast á um við sessunaut sinn. Á meðal þess sem tekið var fyrir var tillaga dóms-
málaráðherra um skipan dómara í Landsrétt. Hugðust Píratar leggja fram vantrauststillögu á ráðherra yrði frávísunarkrafa minnihlutans ekki samþykkt. Fréttablaðið/eyþór
alþingi Að minnsta kosti einn þeirra,
sem hæfnisnefnd mat á meðal þeirra
fimmtán hæfustu til að gegna embætti
dómara við Landsrétt en Sigríður And-
ersen dómsmálaráðherra lagði ekki
til að yrðu skipaðir, íhugar að kæra
íslenska ríkið eða leita til umboðs-
manns Alþingis vegna málsins.
Fordæmi er fyrir því að ríkissjóður
greiði bætur vegna slíks. Var Árna
Mathiesen, sem og ríkissjóði, árið 2011
gert að greiða Guðmundi Kristjáns-
syni hálfa milljón króna fyrir að hafa
gengið framhjá honum við skipan
dómara í Héraðsdóm Norðurlands
vestra og Héraðsdóm Austurlands í
desember 2007.
Fréttablaðið ræddi í gær við nokkra
þeirra fjögurra sem dómsmálaráð-
herra var ósammála hæfnisnefnd
um og var hljóðið í þeim þungt. Einn
þeirra notaði orðið „valdníðsla“ um
vinnubrögð dómsmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, fulltrúa Fram-
sóknarflokksins í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd Alþingis, segir afgreiðslu
tillögunnar úr nefnd rýra traust. „Ég
óttast að þetta rýri traust á þinginu og
að þetta rýri traust á þessu nýja dóm-
stigi,“ segir Lilja.
Katrín Jakobsdóttir, fulltrúi Vinstri
grænna, segir meirihlutann hafa
ákveðið að keyra málið út úr nefnd.
„Andmæli okkar snúast ekki um ein-
staklingana heldur málsmeðferðina
en við teljum það algjört grundvall-
aratriði við þessi tímamót í réttar-
sögunni, þegar nýr réttur er settur og
skipaður í heild sinni, að málsmeðferð
stjórnvalda sé hafin yfir vafa,“ segir
Katrín enn fremur.
Tillagan var tekin fyrir á Alþingi í
gær en Fréttablaðið var farið í prent-
un áður en málið kom til umræðu.
Til stóð að minnihluti nefndarinnar
myndi leggja fram frávísunartillögu.
Yrði hún ekki samþykkt myndu Pírat-
ar íhuga að leggja fram vantrauststil-
lögu á dómsmálaráðherra sem hafði
verið samin fyrr um daginn. – þea
Einn hinna sniðgengnu íhugar málsókn
Einn þeirra sem dómsmálaráðherra lagði ekki til að yrðu skipaðir Landsréttardómarar, þvert á mat hæfnisnefndar, íhugar málsókn.
Minnihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er ósáttur við afgreiðslu tillögunnar úr nefndinni. Málið var til umfjöllunar á Alþingi í gær.
akureyri Alvarleg mistök áttu sér
stað við lagningu nýs reiðvegar
sunnan við golfvöll Akureyringa í
vor.
Jarðvegur sem notaður var í veg-
inn er mjög mengaður af alls konar
postulíni og glerrusli sem er stór-
hættulegt bæði mönnum og dýrum
sem eiga leið um veginn.
„Þetta eru hrikaleg mistök sem
hafa átt sér stað við gerð reiðveg-
arins og bæði mönnum og dýrum
stendur ógn af þessum vegi,“ segir
Sigfús Ólafur Helgason, fram-
kvæmdastjóri hestamannafélags-
ins Léttis á Akureyri.
Reiðvegurinn sem um ræðir
tengir hesthúsahverfi hestamanna
á Akureyri við náttúruperluna
Eyjafjörð og er fjölfarinn alla daga.
– sa / sjá síðu 6
Glerfullur
reiðvegur
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
C
-4
8
0
8
1
C
F
C
-4
6
C
C
1
C
F
C
-4
5
9
0
1
C
F
C
-4
4
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K