Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 12
„Það er rétt að við erum búin að bóka skipið en ég veit ekki til þess að það hafi gerst áður að hingað hafi komið skemmtiferðaskip,“ segir Silja Jóhannesdóttir, verkefnastjóri byggðareflingarverkefnisins „Rauf­ arhöfn og framtíðin“, um áætlaða komu skemmtiferðaskipsins Ocean Diamond til þorpsins þann 8. júní. Silja hefur boðað til íbúafundar á Raufarhöfn næsta þriðjudag þar sem fjallað verður um komu skipsins. Um 180 manns búa á Raufarhöfn en Ocean Diamond er með um 100 manna áhöfn og getur tekið rétt um 200 farþega. Það er 124 metra langt, skráð á Bahama­ eyjum og stoppar í þorpinu í einn dag. Íslenska fyrirtækið Iceland Pro­ Cruises leigir skipið yfir sumartím­ ann og siglir því hringinn í kringum landið, og einnig til Grænlands, með erlenda ferðamenn og þá aðallega Bandaríkjamenn og Þjóðverja. „Við settum af stað verkefni í fyrra sem miðaði að því að fá skemmti­ ferðaskip til Raufarhafnar. Það merkilega við þetta er að markaðs­ setning okkar er ekki farin af stað og þetta skip kom eftir tvo fundi með yfirsamtökum þeirra sem taka á móti skemmtiferðaskipum hér á landi,“ segir Silja. Samtökin sem Silja vísar til heita Cruise Iceland og innan þeirra eru sextán hafnir sem taka á móti skemmtiferðaskipum. Pétur Ólafsson, stjórnarformaður Cruise Iceland og hafnarstjóri hjá Hafnarsamlagi Norðurlands á Akur­ eyri, segir útlit fyrir að farþegum skemmtiferðaskipa sem hingað koma muni fjölga um 25­30 prósent í sumar miðað við árið í fyrra. Skipin séu í auknum mæli farin að sigla á smærri hafnir og nefnir hann meðal annars Grímsey og Hrísey. „Það er búið að bóka skip til Hrís­ eyjar á næsta ári og það er skip sem tekur um 250 farþega. Þar er búið að bóka tvær komur og það er mikil aukning í komum þessara leiðang­ ursskipa sem sigla á margar hafnir. Þetta hefur verið mikil búbót fyrir litlu hafnirnar þar sem er kannski lítið um að vera. Hafnarmannvirkin eru aftur á móti til staðar og skipin greiða hafnargjöld sem eru töluvert há og sérstaklega þegar þau geta lagst upp að bryggju,“ segir Pétur og heldur áfram: „Samtals eru komurnar í ár um 486 á allar hafnir. Þar eru auðvitað sum skip að fara inn á nokkrar hafn­ ir en þetta eru um 60­70 skip sem koma hingað til lands í ár. Reykja­ vík, Akureyri og Ísafjörður eru með vinsælustu hafnirnar. Á Akureyri munu verða 122 komur í sumar en þær voru 92 í fyrra. Oft er talað um að þessir far­ þegar eyði ekki neinu hér á landi en við erum með rannsóknir sem sýna að farþegar sem koma inn á hafnir á Norðurlandi einu skila þjóðhags­ legum tekjum upp á rúma tvo millj­ arða króna,“ segir Pétur. haraldur@frettabladid.is Raufarhafnarbúar taka á móti sínu fyrsta skemmtiferðaskipi Skemmtiferðaskip sigla í auknum mæli með erlenda ferðamenn á minni hafnir og skapa þeim nýjar tekjur. Íbúafundur verður haldinn á Raufarhöfn vegna komu Ocean Diamond en fólksfjöldi í þorpinu mun þá rúmlega tvöfaldast. Skemmtiferðaskipið Ocean Diamond siglir alls átta sinnum hringinn í kringum landið í sumar. MynD/IcelanD PrOcruISeS Síðustu ár hafa tæplega 200 manns búið á raufarhöfn. FréttablaðIð/Pjetur Það merkilega við þetta er að markaðs- setning okkar er ekki farin af stað og þetta skip kom eftir tvo fundi með yfirsamtökum þeirra sem taka á móti skemmtiferðaskipum hér á landi. Silja Jóhannes- dóttir, verkefna- stjóri byggðarefl- ingarverkefnisins Raufarhöfn og framtíðin Opnunartími Bláa lónsins hefur verið lengdur til hálf tólf á kvöldin og síðar í sumar verður opið til hálf eitt að nóttu. Þetta staðfestir Már Másson, yfirmaður markaðsmála hjá Bláa lóninu. „Frá og með 26. maí og til júní­ loka er opið til hálf tólf á kvöldin og frá 30. júní til ágústloka verður opið frá sjö til hálf eitt að nóttu. Þá er selt ofan í lónið til klukkan ellefu á kvöldin en gestir þurfa að vera komnir upp úr klukkan hálf eitt,“ segir Már. „Það er mikil eftirspurn hjá við­ skiptavinum okkar og til dæmis erum við snemma á morgnana að koma til móts við fólk sem er að fljúga svo áfram og er einungis í stoppi fram yfir hádegi. Yfir hásum­ arið eru svo margir sem vilja nýta björt sumarkvöldin. Það er ekki sama verðlagningin yfir allan daginn og fer hún eftir eftirspurn á hverjum tíma.“ Fjöldi heimsókna í Bláa lónið fór í fyrra í fyrsta sinn yfir eina milljón, eins og kom fram Markaðnum, fylgi­ riti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, í gær. Samtals sóttu þá 1.122 þúsund gestir lónið og fjölgaði þeim um liðlega tvö hundruð þús­ und milli ára. Tekjur af sölu í lónið námu 45 miljónum evra, rúmum sex milljörðum króna miðað við meðal­ gengi evru í fyrra, og greiddu gestir því rúmlega 16 milljónir að meðal­ tali á dag í aðgangseyri í fyrra. – hg Bláa lónið verður opið fram yfir miðnætti tekjur bláa lónsins jukust um 43 prósent í fyrra. FréttablaðIð/GVa AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi Sími 557 4848 / www.nitro.is ÁRGERÐ 2017 Á FRÁBÆRU VERÐI! markaðurinn 1 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T A B L A ð I ð 0 1 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F C -9 7 0 8 1 C F C -9 5 C C 1 C F C -9 4 9 0 1 C F C -9 3 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.