Fréttablaðið - 01.06.2017, Blaðsíða 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Armband frá langömmu. „Hún fékk
þetta í fermingargjöf og svo amma
mín. Síðan fékk pabbi þetta að gjöf
við fermingu einnig og síðast ég.
Ég er örugglega duglegust af okkur
öllum að nota það, ég er eiginlega
alltaf með það. Þetta er svo royal
eitthvað. Fíla það. Gaman að vera
með skartgrip sem pabbi minn hefur
gengið með líka.“
Versace
sól-
gleraugu
frá 1996.
„Frænka
mín gaf mér
gleraugun í
jólagjöf en ég
nota þau einungis
yfir hásumarið. Þau eru mjög stór
og glæsileg og passa því bara þegar
sólin er stór og glæsileg líka.“
Ralph Lauren dragt. „100.000 króna
drakt. Fullkomin. En ég nota hana
aldrei, of lessuleg. Ég byrja að nota
hana um leið og ég er komin með
kornunga fyrirsætu upp á arminn.“
Tommy Hilfiger skór. „Skórnir eru
misskilningur sem ég varð fyrir á
flugvelli nýverið. Ég var búin að
bíða rosalega lengi og var hálfslöpp,
mögulega með óráði. Ég sá bara
bleiku litina og fallega mynstrið og
fattaði ekki að þetta væri auðvitað
fyrir 75 plús. Væntanlega nota ég þá
samt, því þeir fara hringinn. Kannski
fara þeir samt einn og hálfan hring?“ Giovanni Versace skyrtan. „Beyoncé á svona skyrtu. Þetta er mikið listaverk
náttúrulega. Elska litlu Medúsu-tölurnar á ermunum.”
Spáir þú mikið í tísku? Já, mér
finnst tíska mjög áhugaverð,
sérstaklega á Íslandi í dag. Hér
ríkir ákveðið kaos í tísku, ýmsum
tískutímabilum er blandað saman,
fólk keppist við að fara í marga
hringi með ljótleika og almenn
fagurfræðileg óþægindi. Ég tók
eftir því þegar Adidas gallinn varð
mainstream hélt fólk að það væri
að klæða sig í eitthvað uppruna-
legt rapparalúkk. En þess má til
gamans geta að tracksuit-ið á í
raun vinsældir sínar upphaflega
ítölsku mafíunni í Bandaríkjunum
1970 að þakka. Þetta er bara eitt
dæmi af mörgum um þann mis-
skilning sem er í gangi á götum
Reykjavíkurborgar.
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? Versace.
Hvar kaupir þú fötin þín? Á netinu.
Eyðir þú miklu í föt? Já.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Lonely bandanærfatasettið mitt.
Uppáhaldshönnuður? Versace.
Hver er helsti veikleiki þinn þegar
kemur að tísku og útliti? Lýta-
aðgerðir. Ég er svag fyrir lýtaað-
gerðum og get ekki beðið eftir því
að byrja.
Notar þú fylgihluti? Nei.
Áttu þér tískufyrirmynd? Dona-
tella Versace.
Hvað er fram undan hjá þér og
Reykjavíkurdætrum? Við erum
að sýna síðustu sýningu okkar í
Borgarleikhúsinu þann 3. júní. Svo
er EP plata væntanleg með fimm
funheitum sumarbangerum. Við
erum að spila erlendis á ýmsum
tónlistarhátíðum í sumar, örfáir
tónleikar hér heima.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Hér ríkir ákveðið kaos
í tísku, ýmsum tísku-
tímabilum er blandað
saman, fólk keppist við að
fara í marga hringi með
ljótleika.
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Smart sumarföt, fyrir smart konur
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN | FERÐAMÁLASKÓLINN | LEIÐSÖGUSKÓLINN
Viðurkenndur bókari
Lykill að góðu starfi
Nám til undirbúnings fyrir próf á vegum atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins skv,
43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald. Kennslan fer fram í samvinnu við KPMG.
Kennt er þrjá daga í viku frá kl. 16:30 – 19:30.
Starfsmennt greiðir skólagjöld sinna félagsmanna.
INNRITUN STENDUR YFIR TIL 9. JÚNÍ. Sjá mk.is
Menntaskólinn í Kópavogi
Sími: 594 4000
Gagn legt og áhugavert nám sem nýt ist þér
Frekari upplýsingar veita:
inga.karlsdottir@mk.is
gardar.vilhjalmsson@mk.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . j ú n Í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-A
0
E
8
1
C
F
C
-9
F
A
C
1
C
F
C
-9
E
7
0
1
C
F
C
-9
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K