Fréttablaðið - 01.06.2017, Qupperneq 32
Á veitingahúsinu XO er ein-göngu boðið upp á gæða hráefni en gestir hafa frá
upphafi borið einróma lof á
matinn. Fyrsti XO staðurinn var
opnaður í JL-húsinu í Vesturbæ
Reykjavíkur sumarið 2015. „Það
varð sprenging þegar við opn-
uðum í Smáralindinni. Við áttum
von á góðum viðtökum en þessi
fjöldi fór fram úr okkar björtustu
vonum,“ segir Gunnar Örn Jóns-
son, framkvæmdastjóri og einn
eigenda XO.
Aðgengið að XO í Smáralind er
mjög gott en staðurinn blasir við
þegar gengið er inn í Norðurturn
Smáralindar. Mjög auðvelt er að
grípa með sér mat en XO selur um
50 prósent af sínum veitingum í
„take away“.
„Viðtökurnar hafa verið frá-
bærar í Vesturbænum, gestir
hafa komið frá öllu höfuðborgar-
svæðinu. Erlendir ferðamenn
hafa í síauknum mæli komið við
á XO enda fær staðurinn lofsam-
lega dóma bæði á TripAdvisor og
á Facebook. Það var því nánast
aldrei spurning hvort við myndum
opna annan veitingastað, heldur
hvenær,“ segir Gunnar.
XO er hollur skyndibitastaður
sem framreiðir mat í fusion-stíl þar
sem asísk og evrópsk matreiðsla
renna saman. Maturinn er eldaður
frá grunni og XO kappkostar við
að gera bragðið af matnum ein-
stakt. XO styðst eingöngu við topp
hráefni en veitingastaðurinn er
þekktur fyrir frábæran mat, fersk-
leika og gæði. Á nýjum og endur-
bættum matseðli XO má meðal
annars finna salöt, súpur, döner-
samlokur, kjúklingarétti, vinsælar
heilkorna súrdeigsflatbökur og
ferskan djús.
„Að okkar mati er hollur
skyndibiti það sem koma skal. Við
trúum því að bylgjan sé byrjuð á
Norðurlöndum og norðarlega á
meginlandi Evrópu. Fólk er orðið
mjög upplýst nú til dags og það
lætur ekki bjóða sér hvað sem er.
Við vonumst til að hollur skyndi-
biti verði í kringum 50 prósent af
skyndibitamarkaðinum fyrir árið
2030. XO fór af stað með háleit
markmið og eftir rúmlega eitt og
hálft ár í rekstri sjáum við bersýni-
lega þörfina þótt eini XO staðurinn
fram til þessa hafi nánast verið
staðsettur á jaðarsvæði, í JL-húsinu
við Hringbraut.
Með nýju staðsetningunni í
Smáralind er XO einnig komið á
mitt höfuðborgarsvæðið og fleiri
geta því notið veitinganna. Við
leggjum okkur öll fram við að elda
framúrskarandi mat úr hágæða
hráefnum og fólk kann virkilega
að meta slíka viðbót á skyndi-
bitamarkaðinn,“ segir Gunnar
ennfremur.
Allar upplýsingar um XO og mat-
seðilinn má sjá á heimasíðu XO,
www.xofood.is
XO heilsustaður nú í Smáralind
Glæsilegur XO veitingastaður hefur verið opnaður í Smáralind. Íslending-
ar kjósa heilsusamlegan skyndibita en aðsóknin hefur verið frábær.
Gunnar Örn
Jónsson segir að
Íslendingar taki
heilsumat og
-drykk fagnandi.
Brjálað hefur
verið að gera
hjá XO í Smára-
lind frá opnun.
MYND/ERNIR
Boltinn er alltaf í beinni á XO. Hægt er að kynna sér matseðilinn sem er fjölbreyttur á heimasíðu XO.
Sundfatatískan 2017 til 2018 er á köflum efnismeiri en oft áður.
Það kom bersýnilega í ljós á
Mercedes-Benz tískuvikunni
sem haldin var í Sydney um
miðjan maí. Bikiníbuxurnar náðu
sumar upp á miðjan maga og
minntu um margt á sixtís-sundföt
og sundbolirnir voru jafnvel með
ermum, sem er sjaldséð. Þar var
líka talsvert um útskorna sund-
boli og toppa sem ná upp í háls.
Sömuleiðis blúndusundföt og
sundföt með kögri. Símunstur
voru líka nokkuð áberandi.
Efnismeiri en oft áður
Þessi bolur er frá
Aqua Blu.
Þessi var
til sýnis á
Mercedes-
Benz tísku-
vikunni í
Sydney fyrir
skemmstu.
Hann er frá
Aqua Blu.
Nokkur ummæli
af TripAdvisor og
Facebook
l „Amazing food.“
l „It is a very nice place, the food
is very good and the service is
really fast and you get somet-
hing worth your money.“
l „Snilldar staður, gott starfsfólk,
frábær og hollur matur. Mæli svo
mikið með þessum stað að það
hálfa væri nóg.“
l „Nice atmosphere, great service,
inexpensive and really, really
tasty!!“
l „Hrikalega góður matur og
frábær þjónusta. Mæli eindregið
með XO.“
Þeir sem kjósa
efnismeiri sund-
föt geta tekið
gleði sína. Tískan
er þeim í hag.
Víða mátti sjá kögur, blúndur og göt.
Þetta bikiní er frá Skye & Staghorn.
Þessi er frá
Duskii. Hann
er skorinn út
í miðjunni. Á
sýningunni
var líka
mikið um
boli sem
voru skornir
út í hlið-
unum.
Margar konur
kunna eflaust
að meta
sundbuxur
sem þessar.
Þær eru frá
Duskii.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . j ú N Í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
1
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
C
-8
D
2
8
1
C
F
C
-8
B
E
C
1
C
F
C
-8
A
B
0
1
C
F
C
-8
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K