Fréttablaðið - 17.06.2017, Side 64
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Popp-elektró dúettinn PASHN samanstendur af Ragnhildi Veigarsdóttur og Ásu Bjart-
marz en þær kynntust á síðasta
ári í Listaháskóla Íslands þar sem
þær stunda báðar nám. Þær lýsa
tónlist sinni sem djúpu dökku
rafpoppi eða jafnvel popptónlist
með dökku ívafi sem fangi einstakt
samband hljóma andrúmslofsins
og kristaltærra radda þeirra beggja.
PASHN (sem er borið fram eins
og enska orðið passion) kemur
fram á tónleikum í Hljómskála-
garðinum í dag kl. 15.30 en fjöldi
listamanna kemur fram þar í dag.
„Við byrjuðum að semja saman í
mars á síðasta ári til að geta tekið
þátt í Músíktilraunum. Upphaflega
vorum við fimm í sveitinni og við
komumst í úrslit, þrátt fyrir lítinn
tíma til að undirbúa okkur og það
var mjög gaman að taka þátt,“ segir
Ragnhildur.
Eftir keppnina var liðskipan
sveitarinnar svolítið í lausu lofti að
sögn Ásu. „Við tvær vissum að við
vildum halda áfram og taka þetta
aðeins lengra. Hinar stelpurnar
höfðu ekki eins mikinn tíma til að
sinna þessu og eru sumar í annars
konar námi en við. Því ákváðum
við tvær að halda áfram og sjá hvað
myndi gerast.“
Ólust upp í útlöndum
Þær eiga báðar að baka langt tón-
listarnám en ólust þó hvorugar
upp á Íslandi. Ragnhildur ólst upp
í Bandaríkjunum og hefur lagt
stund á fiðlu- og píanónám áður
en hún settist á skólabekk hér á
landi 18 ára gömul. Ása ólst upp í
Svíþjóð þar sem hún lærð á þver-
flautu og píanó auk þess að stunda
söngnám. Hún flutti til Íslands
tvítug.
Saman eru þær búnar að semja
fullt af nýju efni og hafa haldið
áfram að þróa eigin stíl. „Þegar
við tókum þátt í Músíktilraunum
á síðasta ári var Ása eina söng-
konan en núna erum við að vinna
í að syngja jafn mikið. Ég syng í
nokkrum nýja laga okkar og bráð-
lega verðum við búnar að jafna út
sönghlutverkin,“ segir Ragnhildur.
Lögin semja þær flest öll saman
segir Ása. „Algengasta skiptingin er
sú að Ragnhildur semji lagið sjálft,
ég laglínu og grunnpróduseringu,
og svo vinnum við textana saman.
Svo klárum við lögin með Guðna
Einarssyni upptökustjóra.“
Góðar viðtökur
Nú þegar hafa tvö lög sveitarinnar
fengið spilun, Weathering a Storm
og Down. „Bæði lögin hafa fengið
mjög góðar viðtökur. Weathering
a Storm var fyrsta lagið sem við
deildum og hefur verið spilað
nokkrum sinnum í útvarpinu.
Eftir að bæði lögin fóru í spilun
hafa margir haft samband til að fá
okkur til að spila á tónleikum og
við erum búnar að vera að spila á
fullu síðan í lok mars.“
Sveitin spilar á litla sviðinu í
Hljómskálagarðinum milli kl. 15.30
og 16.15. „Við ætlum að spila sex lög
fyrir tónleikagesti. Það má búast við
ljúfum tónum og góðri stemningu.
Við verðum með alls konar
skemmtilegar græjur á sviðinu og
ætlum bara að hafa gaman.“
Frekari spilamennska
Fram undan er frekari spila-
mennska og verður nóg að gera í
sumar. „Við vorum að senda inn
umsókn vegna Iceland Airwaves
og komumst vonandi að. Annars
erum við núna að vinna sem list-
hópur Hins hússins og spilum oft í
borginni í sumar. Planið er svo að
gefa út tvö ný lög í sumar og svo EP
plötu stuttu fyrir Airwaves í haust.
Fyrstu tvö lögin okkar fengu svo
góðar viðtökur og gáfu okkur spark
í rassinn varðandi að klára önnur
lög og gefa nýju lögin út í sumar.
Lögin fara inn á Spotify og helstu
tónlistarveitur þegar platan kemur
út.
Annars erum við virkar á
Facebook (pashnofficial) og Insta-
gram (pashnofficial) auk þess sem
hlusta má á lögin okkar á YouTube
rás sveitarinnar (PASHN).
Popp með dökku ívafi
Dúettinn PASHN kemur fram á tónleikum í Hljómskálagarðinum í dag.
Hann skipa tvær ungar konur með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist og söng.
Ragnhildur Veigarsdóttir (t.v.) og Ása Bjartmarz skipa dúettinn PASHN sem kemur fram á tónleikum í Hljómskálagarð-
inum í dag. MYND/ERNIR
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Síðir sumarkjólar
Str. S-XXL
Kjóll
Kr. 5.990.-
Litir, svart og blátt
Kjóll
Kr. 6.990.-
Bæði lögin hafa
fengið mjög góðar
viðtökur. Weathering a
Storm var fyrsta lagið
sem við deildum og hefur
verið spilað nokkrum
sinnum í útvarpinu. Eftir
að bæði lögin fóru í
spilun hafa margir haft
samband til að fá okkur
til að spila á tónleikum.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . j ú N í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
D
-9
7
1
8
1
D
1
D
-9
5
D
C
1
D
1
D
-9
4
A
0
1
D
1
D
-9
3
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K