Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 11

Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur ráð- ið tvo aðstoðarmenn til starfa í velferðarráðuneytinu, þau Þor- björgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Karl Pétur Jónsson. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Þorbjörg Sigríður sé fædd 23. maí 1978. Hún er með lög- fræðipróf og diplóma í afbrota- fræði frá HÍ og LL.M.-gráðu frá Columbia-háskóla í New York í Bandaríkjunum. Hún hefur verið deildarstjóri lagadeildar Háskól- ans á Bifröst frá 2015 og starfaði sem aðstoðarsaksóknari og deild- arstjóri afbrotadeildar hjá lög- reglustjóranum á höfuðborgar- svæðinu. Þá var hún aðstoðarmaður dóm- ara í Héraðsdómi Reykjavíkur, hún hefur skrifað pistla í Við- skiptablaðið og Fréttablaðið og unnið við ýmis rannsóknarstörf. Karl Pétur er fæddur 30. ágúst 1969, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ og MBA- gráðu frá HR 2008. Karl Pétur starfaði á markaðsdeild Frjálsrar fjölmiðlunar og var stofnandi og ráðgjafi hjá almannatengslafyrir- tækinu Inntaki. Hann starfaði hjá fjárfestingar- bankanum Askar Capital og hefur frá þeim tíma verið ráðgjafi í al- mannatengslum ásamt því að framleiða leikverk og sjónvarps- þætti. Karl Pétur er varabæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi og situr þar í skólanefnd og jafnréttisnefnd. Þorbjörg og Karl aðstoða Þorstein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Karl Pétur Jónsson Borgar Þór Ein- arsson hæsta- réttarlögmaður hefur verið ráð- inn aðstoðar- maður Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar utanríkis- ráðherra. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu að Borgar Þór hafi starfað sem lögmaður frá árinu 2004, síð- ast hjá CATO lögmönnum, þar sem hann hefur verið einn af eigendum frá 2014. Hann var eigandi að lög- mannsstofunni OPUS á árunum 2010-2014 en þar áður starfaði hann sem lögfræðingur í Lands- bankanum og á lögmannsstofunni LEX. Borgar Þór var aðstoðarmaður menntamálaráðherra 2003-2004 og hefur gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum í gegnum tíðina, stýrði meðal annars starfshópi heil- brigðisráðherra um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleið- ingum og hliðarverkunum vímu- efnaneyslu. Borgar Þór Einarsson Borgar Þór aðstoðar Guðlaug Laugavegi 52 | 101 Reykjavík Sími 552 0620 | gullogsilfur.is Vertu upplýstur! blattafram.is Á HVERJUM DEGI STUÐLUM VIÐ MÖRG AÐ KYNFERÐISOFBELDI MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA Í HINA ÁTTINA. Í HVAÐA ÁTT HORFIRU? Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Útsala Buxur frá kr. 2.900 til 7.950 50% afsláttur Str. 36-56 j | S ími 553 8282 | www.he i l sudrek inn. is Útsala í tilefni kínverskra áramóta Vasar · Diskar · Lampar · Pottar · Tesett · Myndir · o.m.fl. e i fan 3 30-60% asláttur Kínverskar gjafavörur H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA K R A F T U R FÉLAG UNGS FÓLKS SEM GREINST HEFUR MEÐ KRABBAMEIN OG AÐSTANDENDUR STYRKTU KRAFTMEÐ MÁNAÐARLEGU FRAMLAGI Skráðu þig á www.lifidernuna.is LÍFIÐ ER NÚNA! ÞAÐ ÞARF KRAFT TIL AÐ TAKAST Á VIÐ KRABBAMEIN Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Frá því endurupptökunefnd tók til starfa í júní árið 2013 hefur nefnd- in eingöngu samþykkt endur- upptöku í fimm málum en nefndin úrskurðaði í 53 málum á þessu sama tímabili. Kröfu um endur- upptöku var hafnað í 45 málum og í þremur málum vísaði nefndin kröfu um endurupptöku frá. Endurupptaka hefur því ein- göngu verið veitt í tæplega tíu prósentum tilvika. Hafa verður þó í huga að um er að ræða endur- upptöku á máli sem þegar hefur verið dæmt í fyrir héraðsdómi eða Hæstarétti. Nýlega hafnaði nefndin beiðni manns um að hæstaréttarmál gegn honum verði endurupptekið. Maðurinn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi árið 2008 fyrir kyn- ferðisbrot gegn sex ára stúlkum. Maðurinn var einnig dæmdur fyr- ir áfengislagabrot. Innanríkisráðherra skipar í endurupptökunefnd í samræmi við lög um dómstóla en hlutverk nefndarinnar er að taka ákvörðun um hvort heimila skuli endur- upptöku dómsmáls sem dæmt hefur verið í héraði eða Hæsta- rétti. Fá mál fá endur- upptöku  Um 90 prósent mála er hafnað Morgunblaðið/Ernir Réttarkerfi Endurupptökunefnd hafnar beiðni í flestum tilvikum. mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.