Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 13
Hreyfing Vinkonurnar munu bjóða uppá fjölbreytta hreyfingu sem hentar ólíkustu einstaklingum í ferðinni.
hreyfingu á móti, teygjur og slökun.
Þess á milli ætlum við svo bara að
njóta þess að borða góðan mat, hvíl-
ast, sóla okkur og vera saman, svo að
það sé vissulega val hvers og eins, og
auðvitað bara að vera til.“ Anna segir
svo auðvitað hægt að skjótast í búðir
sé áhugi fyrir því.
Paraferðir í skoðun
Anna segir augljóslega markað
fyrir ferðir af þessum toga þar sem
að þær hafi fengið mikil og góð við-
brögð við ferðinni. „Það langar allar
konur í kringum okkur með, svo er
bara að láta drauminn verða að veru-
leika.“
Hún segist einnig hafa fengið
fyrirspurnir frá pörum.
„Kannski við skellum í paraferð
næst, hver veit. En við ætlum að
byrja á konunum að þessu sinni.“ Fegurð Umhverfið er ævintýralegt í sveitaþorpinu í Ungverjalandi.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Vinnuvistvænt
• Minni vatnsnotkun Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði, sími 555 1515, enjo.is
Heimilispakkinn
Fyrir gólfin
Fyrir þvottinnFyrir glugganaFyrir
heimilið
Við kennum þér
að þrífa heimilið
með köldu vatni
2ja ára
ábyrgð
Komið í verslun
okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Fyrir eldhúsiðFyrir baðherbergið
Nú þegar allir eru svo óskaplega upp-
teknir af holdafari sínu, heilsu og
öðru slíku sem tilheyrir á þessum
árstíma, er um að gera að breyta til
og tileinka sér nýja tegund af líkams-
rækt, vera ekki að hjakka alltaf í
sama farinu og lyfta sömu lóðunum í
þúsundasta skiptið eða hlaupa sama
hringinn eða brettið. Margt er í boði
en eitt af því sem gæti verið gaman
að prófa er svokallað magadans-
fitness sem magadansmærin og
kennarinn Anna Linda Bjarnadóttir
býður upp á.
Í tilkynningu segir að þetta sé æf-
ingakerfi sem styrki kjarnavöðva,
kvið, bak og mjaðmir og að tímarnir
byggist upp á danssporum og hreyf-
ingum tengdum magadansi.
Magadans ku vera elsti dans í sögu
mannkyns sem enn er dansaður og
um víða veröld dansa konur maga-
dans til að halda við kroppi sínum og
njóta hreyfingarinnar. Magadans
hentar konum á öllum aldri og af öll-
um stærðum og gerðum. Þær sem
reynt hafa segja hann efla sjálfs-
traustið og skemmtanagildið er ótví-
rætt.
Anna Linda ætlar að bjóða bæði
upp á byrjenda- og framhalds-
námskeið og ætlast er til að byrj-
endur hafi einhvern grunn í dansi og
geti fylgt eftir. Á framhaldsnám-
skeiðinu er farið í flóknari æfingar og
kenndir lengri dansar og flóknari, t.d.
arabískur tabla-dans.
Kennsla fer fram í World Class,
Smáralind, og nánari upplýsingar
veitir Anna Linda í s. 777 6880.
Magadans er elsti dans í sögu mannkyns sem enn er dansaður
Margar eru leiðirnar til að
stunda líkamlega hreyfingu
Reuters
Magadans Þokkafullur er hann og bæði gaman að dansa og horfa á.