Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 14

Morgunblaðið - 13.01.2017, Page 14
SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ferðamenn sem hlaupa hlæjandi að sjónum og svo undan öldunum var það fyrsta sem blasti við blaðamanni og ljósmyndari þegar þeir heimsóttu Reynisfjöru í gær. Ferðamennirnir komu frá Singa- púr og sögðust aðspurðir ekki hafa vitað um hættur í fjörunni en sæju að öldurnar væru stórar og kraftmiklar og því hefðu þeir hlaupið undan þeim til þess að blotna ekki. Eftir banaslys í fjörunni í fyrra og í Kirkjufjöru, sem er þar við hliðina, á mánudaginn hafa margir velt fyrir sér hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig reglulega. Þeg- ar gengið er af bílaplaninu við Reynisfjöru blasa tvö aðvörunar- skilti við, þau eru áberandi en ekki nóg því fáir staldra þar við, fegurð fjörunnar dregur alla at- hygli að sér. Sjórinn á þessum stað hefur ógnvekjandi aðdráttar- afl, rymur og hvæsir að gestum á meðan hann sendir þeim litlar og leikandi öldur að því er virðist til að skella svo einni stórri og kraft- mikilli á eftir. Líta á sjóinn sem grín Á þeim stutta tíma sem blaða- maður og ljósmyndari stoppuðu í fjörunni í gær lögðu nokkrir sig í lífshættu að því er virtist. Mis- jafnt er hvort þeir ferðamenn sem teknir eru tali hafa lesið skiltin eða átta sig á hættunni. Veðrið er dásamlegt og í fjöru- kambinum sátu fjórir ferðamenn og gæddu sér á nesti. Þeir lásu á skiltin áður en þeir fóru að sjón- um og þá brýndi leiðsögumaðurinn þeirra fyrir þeim að fara varlega. Þeir höfðu heyrt um banaslysið fyrr í vikunni. Einn þeirra kemur frá Ástralíu og er reyndur brim- brettakappi, hann segist strax hafa áttað sig á hættunum þarna og gætt að því að hinir færu ekki of nærri. Ungt par frá Englandi og Ástr- alíu var varað við hættunum í Reynisfjöru af leiðsögumanninum sínum. Þeim fannst margir ferða- menn á staðnum líta á sjóinn sem grín. Fjórir vinir frá Ungverjalandi sögðust ekkert þekkja til sjósins enda byggju þau í miðri Evrópu. Þau hefðu lesið á aðvörunarskiltin áður en þau gengu niður í fjöruna og vissu því að öldurnar væru hættulegar. Einn þeirra var nýbú- inn að bjarga konu frá því að lenda í öldu en hún hafði snúið baki í sjóinn og bakkað of nærri honum fyrir myndatöku. Varfærni skemmir fríið Á veitingastaðnum Svörtu fjör- unni í Reynisfjöru hefur Antonio frá Spáni starfað í bráðum tvö ár og Piotr frá Póllandi í eitt. Þeir segja ferðamönnum ekki viðbjarg- andi og það hafi ekki skipt neinu máli þótt aðvörunarskiltum hafi verið bætt við eftir slysið í fyrra, fáir skoði þau. „Mér virðist fólk færast nær sjónum í hvert skipti. Eftir banaslysið á mánudaginn setti lögreglan upp gulan borða á ströndinni svo fólk gætti þess að fara ekki of nálægt sjónum, því öldurnar voru mjög stórar þá, en ferðamenn fóru samt yfir borðann til að komast inn í hellinn,“ segir Antonia. Piotr segir ferðamenn ekki hafa hugmynd um hversu hættulegt þetta er. Þeir hlaupa báðir reglulega út í fjöru til að vara fólk, sem þeim finnst fara glannalega, við og fá þá oft skít og skömm fyrir. „Þau koma þá fram eins og ég ætli að skemma fríið þeirra. Þau eru í fríi og komu hingað til að taka mynd, sama hvað,“ segir Piotr. Þeir eru á því að það verði bara að treysta fólki til að taka ábyrgð á sjálfu sér en það versta sé að það muni aldrei gera það. Fáir ferðamenn skoða skiltin  Náttúrufegurðin virðist skyggja á tvö aðvörunarskilti í Reynisfjöru  Misjafnt hvort ferðamenn skoða skiltin eða hafa heyrt af hættunum  Sakaðir um að vilja skemma fríið ef þeir vara fólk við Morgunblaðið/Eggert Í Reynisfjöru Fjöldi ferðamanna, frá ýmsum löndum, var í Reynisfjöru í gær í fallegu, en köldu, veðri. Vinahópur F.v. Balazs, Csaba Faix, Thomas og Shila frá Ung- verjalandi höfðu lesið sér til um hætturnar í fjörunni. Í fjörunni Ferðamennirnir Ashley Castle frá Ástralíu og Ryan Lukas frá Englandi. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Kirkjufjara í Dyrhólaey er lokuð með keðjum og lögregluborða en miðað við nýleg fótspor í sand- inum í gær hafa ekki allir virt þá lokun. Þegar útsendarar Morg- unblaðsins stoppuðu í Dyrhólaey í gær virtu allir ferðamenn á staðn- um lokanir í fjöruna en tveir fóru yfir keðjur sem afmarka merkta útsýnisstaði til að láta taka mynd- ir af sér. Dyrhólaey er friðuð og í umsjón Umhverfisstofnunar. Landvörður starfar þar á sumrin en eingöngu er farið í eftirlits- ferðir yfir vetrartímann. Hákon Ásgeirsson, sérfræð- ingur Umhverfisstofnunar á Suð- urlandi, segir að farið sé reglu- lega í eftirlitsferðir í Dyrhólaey þessa dagana og hann hafi orðið var við að fólk fari yfir bannborða og út í fjöru þrátt fyrir slys þar fyrr í vikunni. Nú er verið að vinna að leng- ingu og styrkingu girðingar sem afmarkar útsýnissvæði og göngu- leiðir og setja upp nýtt og stærra aðvörunarskilti. „Við erum að loka fjörunni alveg núna með því að lengja girðinguna, hún mun þá loka hringnum alveg en núna er opið á einum stað þar sem hægt er að príla niður,“ segir Hákon. Langflestir fari eftir reglum á svæðinu en daglega sé samt alltaf ákveðinn hópur sem brýtur þær. Við bannborðann Ferðamaður tek- ur mynd í Kirkjufjöru. Bannað Þessir vinir fóru yfir keðju í Dyrhólaey til að taka myndir. Fótspor í sandinum í Kirkjufjöru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.