Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ragnheiður H. Magnúsdóttir,
stjórnarformaður Samtaka upplýs-
ingatæknifyrirtækja, segir að það
sé ótækt að útboðsferli hins op-
inbera taki jafnvel eitt til tvö ár,
sérstaklega þegar kemur að tækni-
verkefnum. „Nú
erum við komin á
fullt í fjórðu iðn-
byltinguna, með
sýndarveruleika,
gervigreind og
fleiru. Hlutirnir
gerast alveg
gríðarlega hratt
og því gengur
það ekki að út-
boðsferli hins op-
inbera taki jafn-
vel eitt til tvö ár að klárast,
sérstaklega hvað tækniverkefni
varðar. Það er komin alveg ný
tækni á markaðinn þegar loksins er
búið að ljúka ferlinu,“ segir Ragn-
heiður í samtali við Morgunblaðið.
Ragnheiður var einn frummæl-
enda á fundi Samtaka iðnaðarins í
gær um opinber innkaup.
„Ef við ætlum að sjálfvirknivæða
opinbera þjónustu þá verðum við að
flýta okkur til að missa ekki af
þessari fjórðu iðnbyltingu.“
Hún segir að innkaupaferlið sé
hægt og „lögfræðingasinnað“, ríg-
bundið í reglugerðafargan. „Þetta
tekur allt gríðarlegan tíma og ég er
ekki viss um að við höfum þennan
tíma.“
Hún segir að innkaupaferlið sé
ekki nógu aðgengilegt fyrir nýsköp-
unarfyrirtæki og aðra minni aðila.
„Það er ákveðið orðfæri sem menn
þurfa að setja sig inn í. Sprota-
fyrirtæki hafa engan áhuga á að
aðstoða hið opinbera við að leysa
þarfir þess, því allt ferlið er svo
þungt, erfitt og óskiljanlegt. Við
þurfum að opna á samstarf á milli
fyrirtækjanna og hins opinbera og
hafa þetta á mannamáli. Við þurf-
um að hugsa hlutina alveg upp á
nýtt.“
Innkaupastjórar
einsleitur hópur
Á fundinum í gær kom Ragnheið-
ur inn á einsleitni innkaupastjóra í
stofnunum hins opinbera. „Þetta er
rosalega einsleitur hópur. Mjög
mikið eldri karlmenn. Það er ekki
bara að það vanti konur í þennan
hóp, heldur þarf meiri aldursdreif-
ingu.“
Á fundinum kom einnig fram að
ríkið kaupir árlega vörur og þjón-
ustu fyrir rúmlega 90 milljarða
króna, en þrátt fyrir það fari minna
en helmingur innkaupa ríkisins í
gegnum útboð. Á fundinum var
jafnframt bent á að árlegur sparn-
aður ríkisins gæti numið hátt í 10
milljörðum með breyttu fyrirkomu-
lagi í opinberum innkaupum.
Theodóra Þorsteinsdóttir, þing-
maður Bjartrar framtíðar og for-
maður bæjarráðs Kópavogs, fór á
fundinum yfir hvernig opinber inn-
kaup í Kópavogi væru virkjuð sem
mikilvægt stjórntæki til að auka
hagkvæmni og gagnsæi í rekstri
bæjarins en þar hefur bókhald bæj-
arins verið opnað.
Hún sagði að opnun bókhaldsins
stuðlaði að bættum stjórnsýsluhátt-
um og fleiri útboðum en drægi jafn-
framt úr því að stjórnmálamenn
hygluðu tengdum aðilum og gæti
almennt dregið úr líkum á spillingu.
Annar frummælandi, Arnhild
Gjönnes, lögmaður systursamtaka
Samtaka atvinnulífsins í Noregi,
hreifst af opnu bókhaldi Kópavogs.
„Þetta mun ég taka með mér til
Noregs,“ sagði Gjönnes í samtali
við Morgunblaðið, en hún er sér-
fræðingur á sviði opinberra inn-
kaupa og leiðir þann málaflokk hjá
Business Europe, sem eru samtök
evrópskra atvinnurekenda.
Á fundinum var ennfremur vakin
athygli á því að með nýrri Evrópu-
löggjöf sem samþykkt var á Alþingi
síðastliðið haust gæfust mörg tæki-
færi til betrumbóta, en með henni
ættu minni fyrirtæki að geta átt
greiðari aðgang að opinberum verk-
efnum í gegnum útboð.
Tæknin orðin gömul þegar
opinbera útboðinu lýkur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Innkaup Ríkið kaupir árlega vörur og þjónustu fyrir um 90 milljarða króna.
Gegnsæið vakti athygli
» Minna en helmingur inn-
kaupa ríkisins fer í gegnum
útboð.
» Auðvelda þarf nýsköpunar-
fyrirtækjum að taka þátt í
opinberum útboðum. Ferlið er
ekki nógu aðgengilegt.
» Innkaupastjórar í opinber-
um stofnunum eru einsleitur
hópur og nauðsynlegt er að
breyta aldursdreifingunni.
» Opið bókhald Kópavogs-
bæjar vakti mikla athygli á
fundinum og Arnhild Gjönnes
hyggst kynna hugmyndina í
heimalandi sínu, Noregi.
Stjórnarformaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja gagnrýnir seinagang
Ragnheiður H.
Magnúsdóttir
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
Lagerhreinsun
Bankastræti 12, 101 Reykjavík, sími 551 4007, www.skartgripirogur.is
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 11-17
Gott úrval - gott verð
Ásamt fleiri góðum tilboðum
Fylgist með facebook síðu okkar
Adidas 50% afsláttur
Casio 20-40% afsláttur
G-Shock 30% afsláttur
Certina 30-40% afsláttur
Festina 30-50% afsláttur
Michael Kors 20-50% afsláttur
Raymond Weil 20-40% afsláttur
Daniel Wellington 20% afsláttur
Morellato 50% afsláttur
Silfurskartgripir 20-50% afsláttur
13. janúar 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.99 114.53 114.26
Sterlingspund 139.8 140.48 140.14
Kanadadalur 87.22 87.74 87.48
Dönsk króna 16.281 16.377 16.329
Norsk króna 13.384 13.462 13.423
Sænsk króna 12.74 12.814 12.777
Svissn. franki 112.87 113.51 113.19
Japanskt jen 0.9967 1.0025 0.9996
SDR 153.84 154.76 154.3
Evra 121.06 121.74 121.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.6558
Hrávöruverð
Gull 1206.65 ($/únsa)
Ál 1757.0 ($/tonn) LME
Hráolía 53.8 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Velta á milli-
bankamarkaði með
gjaldeyri jókst á
síðasta ári um
42% frá árinu á
undan. Hlutur
Seðlabankans í við-
skiptunum var
55% og keypti
bankinn gjaldeyri
af viðskiptavökum
fyrir 386 milljarða
króna á árinu. Gjaldeyrisforði Seðla-
bankans jókst um 163 milljarða króna
og nam í árslok 815 milljörðum. Svar-
aði gjaldeyrisforðinn til 34% af vergri
landsframleiðslu og dugði fyrir innflutn-
ingi á vörum og þjónustu í 11 mánuði.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum seg-
ir að framan af ári hafi bankinn keypt
gjaldeyri með það einkum að markmiði
að koma gjaldeyrisforða í æskilega
stærð í aðdraganda almennrar losunar
fjármagnshafta. Eftir að það markmið
náðist vó þyngra að draga úr sveiflum í
gengi krónunnar.
Forðinn dugar fyrir 11
mánaða innflutningi
Forði Kominn í
þriðjung af VLF.
STUTT
Hagnaður Haga nam 874 milljónum
króna á þriðja fjórðungi fjárhagsárs
fyrirtækisins, en hann nam 845 millj-
ónum á sama tímabili árið á undan.
Þriðji fjórðungur fjárhagsárs Haga
er frá september til nóvember.
Hagnaður Haga á fyrstu níu mán-
uðum fjárhagsársins, þ.e.a.s. frá
mars til nóvember, nam liðlega 3,0
milljörðum króna og var 5,1% af
veltu.
Vörusala fyrstu níu mánuðina nam
59,7 milljörðum króna og var sölu-
vöxtur 4,3% á tímabilinu. Framlegð
nam 14,9 milljörðum króna og var
24,9%, samanborið við 24,5% á sama
tímabili árið á undan. Hagnaður
Haga fyrir afskriftir, fjármangsliði
og skatta (EBITDA) var 4,6 millj-
arðar króna frá mars til nóvember.
EBITDA-framlegð var 7,7%, saman-
borið við 7,2% árið á undan.
Heildareignir Haga-samstæðunn-
ar námu 30,8 milljörðum króna í lok
nóvember og þar af voru fastafjár-
munir 17,2 milljarðar. Eigið fé var
16,4 milljarðar króna í lok tímabils-
ins og var eiginfjárhlutfall 53,3%.
Handbært fé frá rekstri á tíma-
bilinu nam 4,0 milljörðum króna.
Handbært fé Haga í lok nóvember
nam liðlega 3,0 milljörðum króna.
Í tilkynningu Haga til Kauphallar
kemur fram að drög að uppgjöri des-
embermánaðar, sem er veltumesti
mánuðurinn hjá félaginu, liggi fyrir
og að niðurstaðan sé sambærileg
fyrra ári. Horfur næstu mánaða séu í
takti við áætlanir, sem gera ráð fyrir
sambærilegri niðurstöðu og á fyrra
ári.
Morgunblaðið/Kristinn
Verslun Hagar segja niðurstöðu í
desember sambærilega og ári fyrr.
Hagar hagnast
um 874 milljónir
Handbært
fé 3 milljarðar
í lok nóvember