Morgunblaðið - 13.01.2017, Side 28

Morgunblaðið - 13.01.2017, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 ✝ Kristján Egils-son fæddist í Reykjavík 31. des- ember 1942. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 5. janúar 2017. Foreldrar hans voru hjónin Egill Kristjánsson stór- kaupmaður, f. í Hliði á Vatnsleysu- strönd 26. apríl 1909, d. 5. júlí 1981, og Anna Margrjet Þuríður Ólafsdóttir Briem húsfreyja, f. í Viðey 24. desember 1912, d. 12. ágúst 1994. Bróðir Kristjáns er Ólafur, f. 20. ágúst 1936. Kristján kvæntist 4. septem- ber 1965 Margréti Ósk Sig- ursteinsdóttur kennara, f. 5. mars 1945, dóttur Sigursteins R. Árnasonar húsa- og húsgagna- smíðameistara, f. 19. desember 1905, d. 30. júlí 1998, og konu hans Sigríðar Ólafsdóttur hús- freyju, f. 4. ágúst 1911, d. 23. mars 2004. Þau Kristján og Margrét eignuðust tvær dætur sem eru: 1) Anna Sigríður við- skiptafræðingur, f. 20. sept- ember 1967, sambýlismaður Magnús Ragnarsson fram- kvæmdastjóri, f. 16. maí 1963. Dætur hennar eru Margrét Mist, f. 13. júlí 1996, Ragnheiður Sóllilja, f. 7. mars 1999, og Snæ- fríður Blær, f. 22. febrúar 2001. 2) Ásta lögfræðingur, f. 21. maí manna (FÍA) 1979, 1980, 1989, 1990, 1995-1998, hafði þá áður setið í stjórn sem gjaldkeri og meðstjórnandi 1969-1973 og varaformaður 1976 og 1977. Hann sat í trúnaðarmannaráði og samninganefndum í fjölda ára, einnig starfsráði FÍA og Flugleiða, samstarfsnefndum sömu aðila og í Öryggisnefnd FÍA, m.a. sem formaður þeirrar nefndar. Fulltrúi í Samtökum Evrópuflugmanna (Europilote) 1974-1985. Sótti nokkur ársþing Alþjóðasamtaka flugmannafé- laga (IFALPA). Starfaði í Flug- ráði um skeið sem varamaður 1985-1995. Var skipaður af sam- gönguráðherra í nefnd til að annast skipulag og samræm- ingu aðgerða til varnar flug- ránum 1978-1984 og í nefnd til að vinna að tillögugerð um framkvæmdir í flugmálum 1984-1986. Í stjórn Eft- irlaunasjóðs atvinnuflugmanna um árabil til æviloka. Í stjórn Flugminjasafns Egils Ólafs- sonar að Hnjóti 1994-2000. Auk starfa að málefnum stéttar sinn- ar sat Kristján einnig m.a. í sóknarnefnd Neskirkju í nokkur ár. Þau Kristján og Margrét bjuggu fyrst í stað á Seltjarnar- nesi, en lengst af við Einimel í Reykjavík og loks nú síðustu ár- in að Efstaleiti í Reykjavík. Þá reistu þau sér fyrir mörgum ár- um sumarbústað austanfjalls í landi Lækjar á Rangárvöllum þar sem þau dvöldu oft. Útför Kristjáns fer fram frá Neskirkju í dag, 13. janúar 2017, klukkan 13. 1971, sambýlis- maður Bragi Gunn- arsson lögfræð- ingur, f. 1. janúar 1964. Börn hennar eru Kristján Eldur, f. 18. desember 1996, og Eva Sól- dís, f. 13. mars 2003. Kristján ólst upp við Skólavörðuholt- ið, gekk í Miðbæj- arskólann og lauk versl- unarprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1961. Hann hóf flugnám við Flugskólann Þyt 1962 og lauk þaðan atvinnuflugmanns- prófi 1964, próf í loftsiglinga- fræði tók hann 1963 frá skóla Skapta Þóroddssonar; meðfram náminu var hann flugaf- greiðslumaður hjá Loftleiðum hf. Að flugprófi loknu gerðist hann flugmaður og flugkennari hjá Þyt hf, uns hann 1. janúar 1965 réðist til Flugfélags Íslands hf, síðar Flugleiða/ Icelandair, þar var hann flug- maður á Douglas DC-3, Fokker Friendship F-27, Douglas DC-6B og Boeing 727. Flug- stjóri varð Kristján í febrúar 1981 og flaug á löngum flug- stjóraferli m.a. Boeing 737 og Boeing 757 þotum í hinum sífellt vaxandi umsvifum Icelandair. Kristján lét málefni flugmanna mjög til sín taka, var formaður Félags íslenskra atvinnuflug- Í dag er kvaddur mætur mað- ur, Kristján tengdafaðir minn, sem lést nú í ársbyrjun eftir erf- iða sjúkdómslegu. Kristján var hár maður og glæsilegur, með hæglátt fas og þægilega nærveru. Mannkostir hans duldust engum sem honum kynntust. Þar fór heilsteyptur, traustur og sann- gjarn maður í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var ráðagóður, örlátur og einstaklega bóngóður og ósérhlífinn þegar kom að því að leggja öðrum lið. Átti það jafnt við um góð ráð og leiðbeiningar, lán á öllu mögulegu hvort heldur það var bíll, veiði- græjur eða verkfæri eða hvers konar viðvik – hjálpsemi hans og örlæti voru fá takmörk sett. Kristjáns verður ekki minnst nema getið sé sérstaklega um samband hans og eftirlifandi eig- inkonu hans Margrétar, tengda- móður minnar. Þau kynntust sem unglingar og voru ástfangin og óaðskiljanleg frá þeim tíma, í rúma hálfa öld. Þar sem annað þeirra fór mátti nánast ganga að því vísu að hitt væri skammt und- an. Þau voru sem eitt í sérhverju því sem þau tóku sér fyrir hend- ur. Í mínum huga eru þau ímynd fyrirmyndarhjóna. Kristján var farsæll flugmaður og flugstjóri hjá Flugfélagi Ís- lands og síðar Flugleiðum og Ice- landair. Flugmál voru hans helsta áhugamál og starfaði hann lengi að félagsmálum starfsstéttar sinnar og var valinn þar til ýmissa trúnaðarstarfa. Þar hygg ég að hans helstu persónueinkenni hafi nýst vel, þ.e. heiðarleikinn, rétt- sýnin og hæfileikinn til að standa vörð um grundvallaratriði. Hann var sanngjarn prinsippmaður – og slíkir menn eru því miður allt of fágætir. Kristján var laghentur og nut- um við Ásta oft góðs af því. Þegar við festum kaup á húsinu okkar við Hringbraut fóru mörg hand- tök í endurbætur á húsinu og er mér sérstaklega minnisstæður dugnaður tengdaforeldra minna og hagleikur þeirra beggja. Það skipti engu hvort Kristján tók sér hlutverk málara, múrara, pípara eða smiðs, allt var unnið af alúð og vandvirkni þannig að lærðir iðnaðarmenn væru stoltir af. Þegar leið að starfslokum Kristjáns reistu þau hjón sér sumarbústað á Rangárvöllum, þar sem Hróarslækur á upptök sín undan hraunbreiðu Heklu. Í sveitinni undu þau sér vel og ræktuðu sinn garð vel sem endra- nær, en ég hygg að þar hafi þau gróðursett á annan tug þúsunda trjáplantna. Með tengdaföður mínum er genginn heiðursmaður og fyrir- mynd sem kvaddi allt of snemma. Eftir lifir minning um vænan mann sem gerði fólkið í kringum sig betra. Söknuður okkar sem eftir stöndum er mikill og er hug- ur minn nú ekki hvað síst hjá eft- irlifandi eiginkonu Kristjáns – hennar missir er mestur. Bragi Gunnarsson. Kveðja frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna FÍA Fallinn er frá einn helsti bar- áttumaðurinn í kjara- og rétt- indamálum íslenskra atvinnuflug- manna eftir harða viðureign við illvígan sjúkdóm. Kristján Egils- son var ávallt með hugann við fé- lagsmálin og hagsmunabaráttu flugmanna fyrir utan að sinna starfi sínu sem flugstjóri hjá Ice- landair með sóma. Hann var ráðinn flugmaður hjá Flugfélagi Íslands, síðar Flug- leiðum og Icelandair, árið 1965 og starfaði fyrir það félag til ársins 2006 þegar hann lét af störfum. Kristján var formaður FÍA í samtals átta ár á árunum 1979- 1999. Hefur enginn gegnt því embætti í fleiri ár í sögu FÍA. Jafnframt sinnti hann öðrum stjórnarstörfum í FÍA í fjögur ár á áttunda áratugnum, þar af vara- formennsku í tvö ár. Fjölmörgum öðrum störfum gegndi hann einn- ig fyrir stéttarfélagið og hafði set- ið í stjórn Eftirlaunasjóðs FÍA frá 2010. Það má því með sanni segja að FÍA hafi skipað stóran sess á ævi Kristjáns og vann hann af dugnaði og elju óeigingjörn störf í þágu félagsmanna. Á 60 ára afmæli FÍA árið 2006 var Kristján gerður að heiðurs- félaga fyrir áralanga baráttu sína fyrir hagsmunum íslenskra at- vinnuflugmanna. Kristján var hæverskur í fasi og lá lágt rómur. Þægilegur í um- gengni og kurteis en harður í horn að taka ef svo bar undir. Var sanngjarn og réttsýnn en gat ver- ið dómharður um andstæðinga sína í kjaramálunum með réttu eða röngu. Hann hafði mikinn stuðning í eiginkonu sinni, Margréti. Allur þessi tími sem fór í félagsstörfin og samfara því fjarveru frá fjöl- skyldunni auk þess að sinna fullu starfi sem flugstjóri hlýtur að hafa reynt á. Þau voru hins vegar mjög samrýnd og hún stóð þétt við bakið á honum í þessum verk- efnum. Ég vil fyrir hönd Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna votta fjölskyldu Kristjáns innilega samúð. Við íslenskir atvinnuflug- menn eigum honum mikið að þakka. Blessuð sé minning hans. Örnólfur Jónsson, formaður FÍA. Við Kristján vorum samstarfs- félagar í hartnær 20 ár og tengd- umst betur sem árin liðu, sér í lagi eftir sameiginlega stjórnar- setu í Eftirlaunasjóði FÍA síðast- liðin sjö ár. Hann kom mér strax fyrir sjónir sem traustur, yfirvegaður og heiðarlegur einstaklingur og eftir því sem vinskapur okkar jókst varð mér ljóst að þetta voru einmitt þeir eiginleikar sem Kristján hafði að geyma. Kristján var einnig hæverskur og kurteis, lét ekki raska ró sinni en hafði þó ákveðnar skoðanir og kunni vel að koma þeim á framfæri á sinn einstaka hátt. Hann var einstak- lingur sem ég leit upp til og það var gott að leita til hans. Það er rétt um ár síðan ég fékk símtal um að Kristján væri orðinn veikur. Strax var nokkuð ljóst að þar var við erfiðan andstæðing að etja sem hafði svo betur að lok- um. Frá þeim tíma áttum við mörg góð samtöl, bæði í síma og heima hjá þeim hjónum í Efsta- leiti, en þangað var gott að koma og eiga góða stund. Kristján tók veikindum sínum af hógværð og var ávallt yfirvegaður og ræðinn, þótt dregið hafi af honum með tímanum. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Kristjáni og votta ég Margréti, Önnu Siggu, Ástu og fjölskyldum þeirra dýpstu samúð mína og bið Guð að vaka yfir þeim á þessum erfiðu tímum. Sturla Ómarsson, stjórn EFÍA. Eigi má sköpum renna þegar líkaminn getur ekki meir í barátt- unni við illvígan sjúkdóm. Ekki datt mér þó í hug þegar ég heim- sótti Kristján á líknardeild Land- spítalans fyrir viku að hans tími kæmi að kvöldi þess sama dags. Þegar það svo gerðist flugu gegnum huga mér margar af þeim gefandi og skemmtilegu stundum sem ég hef átt með Kristjáni, bæði í leik og starfi, oft í góðra vina hópi en líka með Mar- gréti og dætrunum á Eini- melnum. Þær eru ógleymanlegar gleði- stundirnar sem við mörg höfum átt á heimili þeirra hjóna. Þó að oft hafi mikið verið hlegið og gleðin risið hátt skynjaði ég, sem og fleiri, jafnframt þá festu og ró- semi sem ríkti á þessu heimili. Þangað var gott að koma. Það eru ekki ýkjur að Kristján hafi á árum áður gjarnan verið mörgum okkar, þá yngri flug- mönnum Icelandair, sem lærifað- ir þegar kom að samskipta- og fé- lagsmálum, jafnt innan hópsins sem og út á við. Kristján þreyttist aldrei á að ræða við og leiðbeina okkur sam- starfsmönnum sínum varðandi hin ýmsu málefni sem upp komu og taka þurfti afstöðu til, en hann var formaður FÍA stéttarfélags atvinnuflugmanna til margra ára. Þannig öðlaðist hann óskipta virðingu meðal okkar flugmanna sem og yfirmanna og viðsemj- enda atvinnurekenda okkar. Hann var rökfastur og gat verið fastur fyrir, en ætíð sanngjarn gagnvart öðrum. Ég er forsjóninni þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast og vera samferðamaður Kristjáns um nær fjögurra áratuga skeið. Kæra Margrét, Anna Sigríður, Ásta og fjölskyldur ykkar. Það er einlæg von mín að allar góðu stundirnar og minningarnar um þann trausta og heilsteypta eig- inmann og föður sem Kristján var, veiti ykkur styrk og huggun í sorg ykkar. Blessuð sé minning góðs fé- laga. Tryggvi Baldursson. Kær vinur er horfinn, allt of snemma, eftir tæplega árs bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Erfið leið lá inn og út af sjúkrahúsum. Hann háði þetta stríð ekki einn. Magga æskuvinkona mín studdi hann alla leið og vék varla frá honum. Hún annaðist hann af natni og þolinmæði. Árin, sem við höfum þekkst, eru orðin ansi mörg. Fyrstu kynni voru þegar nokkrar Kvennaskólastúlkur létu sér detta í hug að fara í útilegu til Þingvalla. Þegar búið var að drösla tjald- inu niður að vatni, kom í ljós að tjaldhælarnir höfðu orðið eftir heima. Piltar, sem höfðu fengið sömu hugmynd, komu okkur til bjargar og reyndust sannir ridd- arar. Kiddi var einn þeirra. Hár, grannur og ljúfur, eins og hann hefur alltaf verið. Kynni voru endurnýjuð í dansskóla Her- manns Ragnars. Þar var Keli minn einnig mættur. Hann og Kiddi könnuðust hvor við annan. Þeir höfðu alist upp nálægt hvor öðrum á Skólavörðuholtinu og stunduðu báðir nám í Versló. Smám saman þróaðist samband Kidda og Möggu í hjónaband. Heimili vina okkar hefur alltaf verið hlýlegt og fallegt, þar sem handtök þeirra og smekkvísi vega þungt. Bæði voru laghent og sam- taka. Ef eitthvað þurfti að bæta eða laga hjá fjölskyldunni lágu þau ekki á liði sínu. Þau eignuðust tvær yndislegar stúlkur, Önnu Siggu og Ástu og fimm barna- börn. Kiddi var farsæll flugmaður og flugstjóri. Hann var mikils met- inn af félögum sínum, sem treystu honum fyrir formennsku í félagi sínu og stjórnarsetu í líf- eyrissjóði flugmanna. Hann gegndi fleiri trúnaðarstörfum, sem tengdust flugi. Hann var gerður að heiðursfélaga í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Hjónin reistu sér sumarhús á Rangárvöllum og hófu þar skóg- rækt. Þau komu miklu af plöntum til sjálf og eru nánast búin að full- planta í landið. Lífið er undarlegt ferðalag. Það kemur og fer, með gleði og sorg. Við geymum góðar minn- ingar, sem ylja okkur um hjarta- rætur. Almættið vakir yfir öllum og breiðir út sinn huggandi faðm. Megi þið, Magga mín, og fjöl- skyldan öll finna þar frið og hugg- un. Við þökkum Kidda fyrir árin öll. Innilegar samúðarkveðjur. Ása og Þorkell. Ég man fyrst eftir Kristjáni koma gangandi niður með Vall- arbraut 4, ungur nágranni okkar flugmaðurinn, rétt hálfþrítugur. Þau Margrét voru nýflutt inn í húsið hálfkarað eins og þá tíðk- aðist. Þarna á lóðinni, sem líktist frekar vígvelli en húsalóð, rétti hann mér pakka. Þetta var sum sé flugmódel, sem ég átti eftir að setja saman. Flugvélin sú varð ekki langlíf, margvíslegar flug- prófanir sáu til þess, en ég fékk flugdellu. Árin liðu og smátt og smátt kláruðu fjölskyldurnar á efri og neðri hæð húsið, garðinn, bílskúr og viðbyggingu. Þessi tími samvinnu, sam- gangs fjölskyldna og stundum þrælapúls, að mér unglingnum fannst, var gefandi. Kristján byrjaði snemma að starfa fyrir FÍA, þetta tók mikinn tíma og oftast var hann í símanum ef ég leit við. Flugmenn virtust hafa mikla þörf til að tjá sig, þá var og er vissara fyrir formann að hlusta! Kristján var fyrir sína kynslóð sem og mína einskonar samnefn- ari fyrir FÍA og það sem félagið stendur fyrir. Fyrir störf sín í þágu félagsmanna var hann gerð- ur að heiðursfélaga FÍA. Þegar ég dembdi mér út í félagsmál FÍA vorum við Krist- ján langoftast sammála um stefnu og aðferðir, en ekki alltaf. Þá reyndi á áratuga vináttu og hon- um sjálfsagt fundist eggið vera farið að kenna hænunni. En eins og hans var von og vísa erfði Kristján það ekki við mig. Það er lukka mín að hafa frá barnsaldri umgengist Kristján. Hann var fyrirmynd mín og margra annarra í félagsmálum og helsta ástæða þess að ég hef feng- ið að taka þátt í þessu ævintýri sem flugið er. Margrét, Anna Sigga og Ásta, innilegustu samúðarkveðjur, takk fyrir mig. Franz. Kristján Egilsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGURLÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR ljósmóðir, Hofakri 7, Garðabæ, sem lést fimmtudaginn 5. janúar, verður jarðsungin frá Garðakirkju, Álftanesi, föstudaginn 13. janúar klukkan 15. . Ásgeir Valhjálmsson, Gísli Ásgeirsson, Karen Þórólfsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUTTORMUR SIGBJARNARSON jarðfræðingur, Skaftahlíð 8, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum 10. janúar. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 16. janúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Landverndar. . Áslaug Kristjánsdóttir, Anita Oddsdóttir, Hjörleifur Guttormsson, Erna Jónasdóttir, Margret Guttormsdóttir, Þóra Hafsteinsdóttir, Vigfús Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA H. SVEINBJÖRNSDÓTTIR ljósmóðir, Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ, andaðist aðfaranótt 9. janúar á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Nesvöllum. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði fimmtudaginn 19. janúar klukkan 13. . F.h. aðstandenda, Sigríður Hvanndal Hannesdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Hofi á Eyrarbakka, lést 9. janúar. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 17. janúar klukkan 13. . Ásta, Svala, Kristjana og Þorvaldur Ólafsbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.