Morgunblaðið - 13.01.2017, Side 33

Morgunblaðið - 13.01.2017, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. janúar 2017, kl. 14:00 í húsnæði félagsins að Völuteig 6 í Mosfellsbæ. Dagskrá: 1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein samþykkta félagsins. 2. Heimild aðalfundar til handa félags- stjórntil kaupa á eigin hlutabréfum. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofunni í Mosfellsbæ viku fyrir aðalfund hluthöfum til sýnis. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins að Völuteig 6 í Mosfellsbæ á fundardag. Mosfellsbæ 11. janúar 2017. Stjórn ÍSTEX hf. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, bingó kl.13.30. Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16, opið innipútt kl. 11-12, opið hús kl. 13-16, bókabíllinn, kemur við Árskóga 6-8, kl. 16.15-17. Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9. Línudans fyrir byrjendur kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi kl. 10. Komið og fáið ykkur kaffi í góðum félagsskap, fréttaklúbbur kl. 10.40, rætt um helstu fréttir og málefni líðandi stundar, allir velkomnir. Hægt er að fá nánari upplýs- ingar um dagskrá félagsmiðstöðvarinnar í síma 535-2760. Bólstaðarhlíð 43 Botsía kl. 10.40, bókband með Jean kl. 13-16, laus pláss í bókbandi, allir velkomnir. Hringið í síma 535-2760 til að skrá ykkur, kaffihús frá 14.30-15.30 og bókabíllinn er á svæðinu kl. 14.30- 15.30. Verið öll velkomin. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Lindargötu 59 / Vitatorg Handavinna og kaffi- spjall í vinnustofu kl. 10-12, bingó kl.13.30-14.30. Allir hjartanlega vel- komnir. Athugið að á Vitatorgi er hádegisverður alla daga kl. 11.30 - 12.30 Kaffiveitingar alla virka daga kl. 14.30-15.30. Vefslóðir: http://rey- kjavik.is/stadir/lindargata-59-felagsstarf http://reykjavik.is/thjo- nusta/heimsendan-mat-og-hádegisverð. Garðabær Opið og heitt á könnuni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16, vatns- leikfimi kl. 8, 8.50 og 13, félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20 ef óskað er, frá Hleinum kl. 12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að loknum spilum. Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 glervinnu- stofa með leiðbeinanda, kl. 10-12 prjónakaffi, kl. 10-11 leikfimi göngu- hóps - stafaganga, kl. 13-16 bókband með leiðbeinanda, kl. 13-15 kóræfing. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 14 eftirmiðdagsdans með Heiðari. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í kaffi kl. 9–10.30, opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–12, útskurður kl. 9. Morgunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10-11, hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Klukkan 13.30 kemur fram- sagnarhópur undir stjórn Soffíu Jakobsdóttur leikkonu og verður með með upplestur úr verkinu ,,Sálin hans Jóns míns´´ allir velkomnir, kaffisala kl. 14.30. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, frjáls tími í Listasmiðju frá kl. 9-12, thai chi kl. 9, botsía kl. 10.15, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zóphoníasd. kl. 12.30, sönghópur Hæðargarðs kl. 13.30, Hæðargarðsbíó kl. 15. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Íþróttafélagið Glóð Línudans í Kópavogsskóla kl. 18 framhald 3. stig og framhald 2. stig kl. 19. Korpúlfar Brids kl. 12.30 í dag í Borgum, hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í dag í Borgum, Skapandi skrif með Þórði Helgasyni kl. 13 í dag í Borgum. Vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30 í Borgum. Góða helgi. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, föstudagsbingó kl. 14. Uppl. í s. 4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Kaffi, spjall og blöðin kl. 10, ganga kl. 10, hádegismatur kl. 11.30 og botsía kl. 13. Á föstudögum er opið kl. 10-14 í Selinu. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, jóga salnum Skólabraut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30, syngjum saman með Friðriki og Ingu Björgu í salnum á Skólabraut kl. 14.30. Stangarhylur 4, Dansað sunnudagskvöld 15. janúar kl. 20-23, Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Vesturgata 7 Enska kl. 10-12 Peter R.K.Vosicky, sungið við flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson, kaffiveitingar kl. 14-14.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Til sölu Óska eftir Staðgreiðum og lánum út á: gull, demanta, vönduð úr og málverk! Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kost- naðar-lausu! www.kaupumgull.is Opið mán.– fös. 11–16. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 782 8800 Þjónusta ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD              Uppl. í s: 788 8870 eða murumogsmidum@murumogsmidum.is Múrum og smíðum ehf Ýmislegt LAGERHREINSUN 40-70% AFSLÁTTUR AF SKÓM Á KONUR OG KARLA Laugavegi 178 Sími 551 2070. Opið mán.–fös. 10–18, opið 10–14 laugardaga. Sendum um allt land Erum á Facebook. Til leigu Til leigu 50 fermetrar í Vesturbergi, jarðhæð, sér inngangur. Innifalið í leigu raf- magn og hiti. Langtímaleiga kr. 130.000. Við gerð leigusamnings þarf að greiða fyrsta og síðasta mánuð leigunnar + 50.000 tryggingu vegna skemmda. Senda póst osbotn@gmail.com atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Sigrún Hauks-dóttir fæddist í Garðshorni í Kinn 30. desember 1927. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Greni- lundi á Grenivík 2. janúar 2017. Hún var dóttir hjónanna Hauks Ingjaldssonar og Nönnu Gísladóttur og ólst upp hjá þeim í Garðshorni. Hún var fimmta í röð sex systra, en þær eru í aldursröð: Ásta, Þorgerð- ur, María og Helga, sem eru látnar, og Inga, búsett á Kambs- stöðum í Ljósavatnsskarði. Sig- rún giftist 25. desember 1959 Friðfinni Jósefssyni frá Húsa- vík, f. 12. desember 1936, d. 6. maí 2001. Kjörsonur þeirra er Þröstur, f. 26. ágúst 1961, kvæntur Elínu Sigurðardóttur, f. 9. október 1960. Börn þeirra eru; Íris Björk, Atli Freyr, Ívar Örn og Friðfinnur Már, barna- börn þeirra eru fjögur. Sigrún ólst upp við almenn sveitastörf, lauk fullnaðarprófi og síðar stundaði hún nám við Héraðsskólann á Laugum einn vetur. Hún vann við bú foreldra sinna í Garðshorni fram á þrítugsaldurinn, þar sem hún sinnti útiverkum ekki síð- ur en inni. Hélt þá suður, vann ýmis störf í Reykjavík og á vertíð í Vest- mannaeyjum. Þau Friðfinnur bjuggu fyrst um tíma í Garðshorni og sinntu bústörf- um en frá 1963 bjuggu þau á Húsavík. Þar vann Sigrún m.a. við síldarsöltun og saumastörf en lengst í þvottahúsi sjúkra- hússins, sem hún veitti forstöðu um árabil þar til hún hóf töku lífeyris. Sigrún tók þátt í félags- störfum í Kvenfélagi Húsavíkur, söng í kvennakórnum Lissý og kór aldraðra. Jafnréttismál voru henni hugleikin og vann hún einarðlega að framgangi kvenna í stjórnmálum. Útför Sigrúnar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 13. jan- úar 2017, klukkan 14. Hún var viðstödd fæðingu mína hún Día, eins og ég kallaði Sigrúnu sem ég verð að kveðja núna í byrjun árs. Og ég er ekki tilbúin til þess og verð aldrei. Að kveðja þá sem ég elska, þeir fara alltaf, alltof snemma. Og það gerðir þú, Día mín, sem varst mér sem guðmóðir allt líf mitt. Ég ein mátti ætíð kalla þig Díu og þú varst eina manneskjan sem hafðir skoðun á persónu minni strax við fæðingu mína, já, það var auðvelt að elska þig. Þú varst svo einlægur og traustur vinur en mættir sjálf oft miklu mótlæti fyrir að fæðast sem stelpa eins og við gerum svo margar. Þú varst því ekki bara jafnréttiskona í orði, heldur líka á borði. Eins og þú sagðir sjálf. Nokkurs konar leiðtogi og slíkt fólk hefur oft engan fyrir sig, sér til stuðnings er haustar að hjá því sjálfu. Þú varst í svo allt öðru hlutverki í lífi okkar flestra. Mig passaðir þú sem au pair á heimili foreldra minna á Þórðarstöðum og oft bjó ég hjá þér tímunum saman á Húsavík. Þitt heimili var líka mitt. Ég fór ung í neyslu og þá hafðir þú nógan kjark og þor til að skipta þér af því. Þú varst svo oft í slíku hlutverki, að tala þar sem aðrir þögðu, eða vinna þar sem aðrir gerðu ekkert! Já, líka í lífi systra þinna. Þú varst í erfiðri vinnu, ung heima í sveitinni, þú varst svo sterk og hraust. Ég var svo montin af þér, þú keyrðir bíl sem fáar konur gerðu þá og reyktir, hvað sem öðrum fannst. Þú þurftir ekkert lófaklapp fyrir hvert orð þitt eða skref, þú varst þú sjálf með stæl. Ég gat alltaf treyst því. Og er ég missti börnin mín frá mér mættir þú heima hjá mér á Langholtsveginum, þótt enginn annar þyrði það. Þú varst ekkert smáflott þá, með hatt, og þú varst komin til að snúa lífi mínu aftur til sigurs, já, þótt ég væri stúlka, ómenntuð verkakona í AA-samtökunum. Sem sumum þykir fínt að ráðast á, ef enginn karlmaður er til að verja þær. Og þú hættir ekki fyrr en þú fékkst mig til að borða á ný. Ég fæ tár í augun er ég hugsa um þennan tíma. Og þú mættir líka í Dreka- vog til að hjálpa mér til að hefja störf mín sem dagmóðir aftur, hvernig sem á mig hafði verið ráðist. Þú gafst mér ekki bara trú á mig á ný, heldur allt lífið sjálft … Örlögin voru þér oft hörð, þér eða ykkur Finna varð aldrei barna auðið en samt áttuð þið börn já, ekki bara hann Þröst okkar, heldur fleiri, alla vega mig. En samt skildu fáir sorg mína betur en þú er ég missti fjögur lifandi börn mín frá mér, 8, 9, 13 og 14 ára vegna upploginna sagna um ástarsamband mitt við erlendan mann sem aldrei hefur sést. Og barátta mín varð barátta þín líka. Börnin mín minnast þín sérstaklega. Síðast í sumar sat ég hjá þér á Húsavík, við áttum svo góðan dag saman. Vorum að leika okkur stelpurnar á Safninu og skoða málverk. Við hlógum eins og við gerðum líka er þú passaðir mig eins árs. Svo sungum við saman afar oft, þú raddaðir svo fallega alt-rödd, já, bara samdir hana jafnóðum. Líka fyrir systur þínar, þér var svo margt gefið af hæfileikum. Oft fannst mér þú vita alla skapaða hluti. Og ég þakka Guði fyrir hlutverk þitt í lífi mínu og vonandi ertu núna að radda gömlu lögin með systrum þínum í englakórnum ykkar á himnum. Þeim Ástu, Doddu, mömmu og Helgu. Kannski er afi að spila undir á fiðlu, já, eða Ásta á orgelinu eins og þegar þú varst barn í Garðshorni og amma syng- ur með. Og ég er viss um að þú ert þarna einhvers staðar, eins og þú ætlaðir þér. Og einn góðan veðurdag tekur þú á móti mér aftur, já, aftur til nýs lífs, þá á himninum. Megi Guð geyma þig, þangað til. Þín dóttir Guðný María Arnþórsdóttir. Sigrún Hauksdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.