Morgunblaðið - 13.01.2017, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
Jón Dalbú Hróbjartsson, prestur og fyrrverandi prófastur íReykjavíkurprófastsdæmi vestra, á 70 ára afmæli í dag. Hannvar prestur í Laugarneskirkju í 18 ár. Jón Dalbú starfaði síðan í
Gautaborg í þrjú ár og sinnti þar þjónustu við íslenska sjúklinga sem
komu m.a. í líffæraskipti. Á þeim tíma stofnaði hann íslenskan söfnuð
í Gautaborg og Ósló. Eftir heimkomuna, frá árinu 1998, þjónaði hann
í Hallgrímskirkju í 17 ár. Jón Dalbú var enn fremur prófastur í 20 ár.
„Það var mjög áhugavert að sinna prófastsstarfinu og kynnast náið
því góða starfi sem unnið er í söfnuðum Reykjavíkurborgar. Eftir að
ég hætti störfum hjá Hallgrímskirkju 2014 hef ég verið að leysa af hér
og þar, á Eyrarbakka og Stokkseyri, í Langholtskirkju, Bústaða-
kirkju og Hallgrímskirkju.
Núna nýt ég þess að taka það rólega, það er ágætt að slappa aðeins
af eftir langt ævistarf. Ég sinni fjölskyldu minni og vinum og les auð-
vitað mikið. Ég var að ljúka við síðustu bók Arnaldar og nú er ég á
kafi í þykkum doðranti sem heitir Stríðið mikla 1914-1948 og er eftir
Gunnar Þór Bjarnason. Það er mikil saga. Einnig nýt ég þess að
hlusta á góða tónlist, dvelja í Borgarfirðinum þar sem við eigum lítið
sumarhús og hafa rýmri tíma til útivistar og ferðalaga.“
Jón Dalbú hélt upp á afmælið milli jóla og nýárs. „Ein dóttir okkar
býr í Noregi með fimm manna fjölskyldu og eitt barnabarnið er í námi
úti. Þau komu öll heim um jólin svo við ákváðum að halda smá veislu í
tilefni af afmælinu. Í dag verð ég heima en kvöldinu eyði ég á góðum
veitingastað ásamt eiginkonunni. “
Eiginkona Jóns Dalbús er Inga Þóra Geirlaugsdóttir, sérkennslu-
ráðgjafi og markþjálfi. Börn þeirra eru Árni Geir, Ingibjartur, Heið-
rún Ólöf og Margrét, barnabörnin eru þrettán og barnabarnabörn
eru orðin tvö.
Fjölskyldan Frá vinstri: Árni Geir, Heiðrún Ólöf, Jón Dalbú, Inga
Þóra, Margrét og Ingibjartur, saman komin um jólin.
Prófastur í Reykja-
vík í tuttugu ár
Jón Dalbú Hróbjartsson er sjötugur í dag
S
igrún Eðvaldsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 13.1. 1967
en ólst upp í Faxatúni í
Garðabæ. Hún gekk í
Flataskóla.
Sigrún lærði á fiðlu í Barnamúsík-
skólanum hjá Gígju Jóhannsdóttur,
síðan í eitt ár hjá Rut Ingólfsdóttur í
Tónlistarskóla Reykjavíkur, síðan hjá
Guðnýju Guðmundsdóttur og útskrif-
aðist með einleikarapróf 1984. Hún
hélt síðan í Tónlistarháskólann The
Curtis Institute of Music í Fíladelfíu
1988 þar sem hún hlaut Bachelor-
gráðu í fiðluleik eftir nám hjá Jascha
Brodsky og Jaimee Laredo.
Sigrún var á sumarnámskeiðum í
Lundi í Svíþjóð 1978-81 og eftir að
hafa sigrað í keppni um að leika með
Nordiska Ungdomsorkestern var
hún valin til þess að leika í heimild-
armynd um námskeiðið og lék Rondo
Capriccioso, eftir Saint-Saëns, fyrir
fiðlu og hljómsveit í beinni útsend-
ingu sem sýnd var um gjörvalla Sví-
þjóð. Hún tók þátt í sumarnámskeið-
inu í Interlochen í Michigan 1981-83
og var konsertmeistari World Youth
Symphony Orchestra: „Þar hitti ég
fiðlukennarann Almitu Vamos, fyrst
Íslendinga, en hún og maður hennar
tóku mig undir sinn verndarvæng og
undirbjuggu mig fyrir prufuspil inn í
tónlistarháskóla ytra. Ég gat alltaf
leitað til þeirra hjóna og þau voru mér
ómetanleg hjálp og stuðningur.“
Sigrún lék Dvorak-fiðlukonsertinn
fyrir hönd Íslands á Young Nordic
Soloist útvarpshátíð í Stokkhólmi
1985 og var valin 1986 til að leika á
Helsinki Biennale sem var einleik-
arahátíð Norðurlanda. Hún tók þátt í
Marlboro-tónlistarhátíðinni í
Vermont 1985-86, lék Poemi eftir
Hafliða Hallgrímsson sem var skrifað
fyrir kennara hennar 1986, lék í Osló
á Norrænni samtímahátíð og lék í
masterklassa fyrir Isaac Stern á ár-
um hennar við Curtis-tónlistar-
háskólann.
Sigrún hlaut 2. verðlaun í Leopold
Mozart-fiðlukeppninni 1987 í Augs-
Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari – 50 ára
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Einbeitni Sigrún er víðfræg og virtur tónlistarmaður sem hefur sópað til sín verðlaunum og viðurkenningum.
Fiðlusnillingurinn
Systur Sigurlaug og Sigrún.
Reykjavík Róbert Leó
Hall fæddist 13. janúar
2016 kl. 12.11. Hann vó
3.775 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans
eru Hulda María Her-
mannsdóttir og Davíð
Leó Hall.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Ármúli 8, 2. hæð - 108 Reykjavík
Sími: 414-4466 - www.draumahus.is
Föst söluþóknun - Allt innifalið *
399.900
Föst söluþók - Allt innifalið
AnnaTeitsdóttir
Nemi til löggildingar
787-7800
Lárus Óskarsson
Fasteignasali
823-5050
Ólafur Sævarsson
Nemi til löggildingar
820-0303
*
* gildir fyrir eignir
undir 60.000.000 kr.
í einkasölu.