Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017
–– Meira fyrir lesendur
Þorrinn
SÉRBLAÐ
Eitt og annað sem tengist þorranum verður
til umfjöllunar í blaðinu s.s:
Matur, menning,
hefðir, söngur,
bjór, sögur
og viðtöl.
Þann 20. janúar gefur
Morgunblaðið út sérblað
tileinkað þorranum
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 16. janúar.
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsta kvikmynd Guðmundar Arn-
ars Guðmundssonar í fullri lengd,
Hjartasteinn, verður frumsýnd í ís-
lenskum kvikmyndahúsum í dag en
hún hlaut fjölda verðlauna á nýliðnu
ári og á eflaust eftir að hljóta mörg
til viðbótar. Kvikmyndin var forsýnd
boðsgestum í Háskólabíói þriðjudag-
inn sl. og var ofanritaður þeirra á
meðal og hreifst sérstaklega af
frammistöðu ungra aðalleikara
myndarinnar. Í Hjartasteini er rak-
in vináttu- og þroskasaga tveggja
drengja á táningsaldri í sjávarþorpi
að sumri til. Drengirnir, Þór og
Kristján, eru að uppgötva kynhvöt-
ina og kynnast ástinni en Kristján
áttar sig fljótlega á því að tilfinn-
ingar hans í garð Þórs eru eitthvað
annað og meira en vinátta. Í mynd-
inni er fjallað um það öldurót tilfinn-
inga sem einkennir táningsárin,
þetta merkilega millistig æsku og
fullorðinsára og hversu sársauka-
fullt það getur verið að vera öðruvísi
en aðrir, skera sig úr fjöldanum.
Kvikmyndin var frumsýnd á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum í fyrrahaust og hefur nú verið
sýnd á kvikmyndahátíðum víða um
heim og hlotið 17 verðlaun, m.a. á
kvikmyndahátíð í Marrakesh í Mar-
okkó í desember sl. fyrir bestu leik-
ara í aðalhlutverkum, þá Baldur
Einarsson og Blæ Hinriksson sem
fara með hlutverk Þórs og Kristjáns.
Þór er ekki lofthræddur
Það er ekki að sjá að þessi vel-
gengni og athygli hafi stigið drengj-
unum til höfuðs, þar sem þeir sitja
pollrólegir á móti blaðamanni og tal-
ið berst fyrst að rafmögnuðu atriði í
Hjartasteini þar sem Þór er látinn
síga niður klettavegg og tína egg
nærri Dyrhólaey. Atriði sem er
sannarlega ekki fyrir lofthrædda.
Blaðamaður spyr hvort einhverjum
brellum hafi verið beitt við tökur á
því en Baldur segir nei, hann hafi
verið látinn síga niður klettinn og
tökumaður með. Hann segist hafa
verið í tvöföldu sigbelti með varavír
innan á kaðlinum þannig að fyllsta
öryggis var gætt, eins og gefur að
skilja. Beinast liggur við að spyrja
hvort hann sé ekki lofthræddur. „Jú,
en Þór er það ekki,“ svarar Baldur
og minnir spyrjanda á, í fyrsta skipti
af nokkrum, að leikari og persóna
eru ekki sama manneskjan.
Baldur var 13 ára og Blær 14 þeg-
ar tökur myndarinnar fóru fram síð-
sumars og um haustið 2015. Þeir
verða því 15 og 16 ára á þessu ári.
Með mikið keppnisskap
En hvers vegna sóttust þeir eftir
því að leika í myndinni? Baldur seg-
ist ekki hafa sóst eftir því, hann hafi
verið fenginn í myndatöku fyrir ljós-
myndir sem notaðar voru til kynn-
ingar á myndinni og seinna beðinn
um að koma í leikprufu. Hann segir
prufuna hafa gengið illa því hann
hafi með engu móti getað reiðst eins
og Guðmundur, leikstjórinn, bað um.
Blær bætir því við að Guðmund hafi
dreymt Baldur og talið að það þýddi
að hann yrði að gefa honum annað
tækifæri. Og leikstjóranum tókst að
draga fram reiðina í Baldri með ráð-
leggingum frá móður hans sem benti
honum á að drengurinn væri með
óhemjumikið keppnisskap. Guð-
mundur nýtti sér það. „Hann byrjaði
bara að pikka og pota, sagði að ég
væri lélegur í handbolta og þá brjál-
aðist ég,“ segir Baldur og hlær en
hann æfir bæði handbolta og bad-
minton. Blær æfir líka handbolta og
segist vera með mikið keppnisskap
líkt og vinur hans. Blaðamaður veltir
því fyrir sér hvort þar sé lykillinn
fundinn að góðum leikara.
Blær og Baldur þekktust ekki áð-
ur en æfingaferlið hófst fyrir tök-
ur myndarinnar en þeir segjast
strax hafa náð vel saman í leik-
prufunum og orðið góðir vinir. Að
loknum prufum tók við strangt
æfingaferli sem stóð yfir í marga
mánuði. Í því hlutu drengirnir
leiklistarþjálfun og atriði mynd-
arinnar voru æfð. Þegar að tökum
kom fengu þeir nokkrar mínútur
út af fyrir sig til að komast í kar-
akter fyrir hvert atriði.
Ímyndun og sár minning
En hvernig tókst þeim að vera
svona sannfærandi í hlutverkum
sínum? Baldur nefnir sem dæmi
Raunverulegar tilfinningar
Aðalleikarar
Hjartasteins láta
athyglina ekki
stíga sér til höfuðs
AFP
Í Marokkó Baldur og Blær á kvikmyndahátíðinni í Marrakesh með verðlaunin sem þeir hlutu sem fyrir leik sinn í Hjartasteini.
Breski söngvarinn Paul Phoenix
heldur masterklass-námskeið fyrir
sönghópa, kammerkóra og kóra í
Seltjarnarneskirkju helgarnar 14.-
15. janúar og 21.-22. janúar. Alls
munu átta hópar vinna með Phoen-
ix. Á morgun og hinn eru það
Kvartettinn Barbari, Söngfjelagið
Góðir grannar, Sönghópurinn Veir-
urnar og Skálholtskórinn, en 21.-
22. janúar vinnur hann með Kvart-
ettinum Per se, Fjárlaganefndinni,
Spectrum og Dómkórnum.
Paul Phoenix hélt sams konar
námskeið hérlendis í fyrra og hitt-
iðfyrra. Hann var meðlimur breska
sönghópsins The King’s Singers
1997 til 2014. „Á hverju ári á þeim
tíma söng hann að meðaltali 130
tónleika með hópnum, hélt fjölda
söngnámskeiða auk útgáfu fjölda
geisladiska. Árin 2009 og 2012
hlaut hópurinn Grammy-verðlaun-
in, fyrra árið fyrir plötuna Simple
gifts sem The King’s singers gaf út
og seinna árið sem gestasöngvarar
á plötu tónlistarmannsins Eric
Whitacre,“ segir í tilkynningu. Þar
kemur fram að eftir að Phoenix
hætti í The King’s Singers hafi
hann helgað sig kennslu á vegum
fyrirtæki síns sem nefnist Purple
Vocals. „Paul Phoenix hefur
gríðarlega mikla reynslu á hinum
ýmsu tónlistarstílum auk þess sem
hann hefur sungið á fjölda tungu-
mála. Það er frábært fyrir íslenskt
tónlistarlíf að fá þennan heims-
þekkta listamann til landsins til að
miðla af reynslu sinni.“
Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast
með kennslu hans geta keypt miða
á vefnum tix.is en miðar eru einnig
seldir við innganginn. Kennt er
laugardaga kl. 10-13 og 14-17.30,
en sunnudaga kl. 9-10.30 og 13-16.
Stök helgi kostar 3.000 kr. en báðar
helgar 5.000 kr. saman. Sunnudag-
ana 15. og 22. janúar lýkur nám-
skeiðinu með tónleikahaldi kl. 17-
19, en aðgangur á þá er 2.000 kr.
Phoenix miðlar
af reynslu sinni
Reynslumikill Paul Phoenix.