Morgunblaðið - 13.01.2017, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Sköllótt Ragnhildur Steinunn
2. Banaslys á Grindavíkurvegi
3. Stóri vinningurinn fyrndur
4. Grindavíkurvegi lokað …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Boðið verður upp á lifandi karókí á
Kex hosteli í kvöld kl. 20. Húsbandið
skipa þeir Guðmundur Óskar Guð-
mundsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson,
Aron Steinn Ásbjarnarson, Þorvaldur
Þór Þorvaldsson og Örn Eldjárn.
Gestir geta valið úr um 100 laga
bunka hjá karókí-stjóranum sem
verður á svæðinu og er aldrei að vita
nema að einhverjir þekktir gesta-
söngvarar taki lagið.
Lifandi karókí á
Kex hosteli í kvöld
„Markaðsfræði
og þýðingar –
Heimsborgarinn
Halldór Kiljan
Marie Pierre Lax-
ness“ er yfirskrift
erindis sem Vil-
hjálmur Bjarna-
son, alþingis-
maður og lektor í
viðskiptafræði við HÍ, flytur á vegum
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í
fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands
í dag milli kl. 12 og 13.
Erindi um markaðs-
fræði og þýðingar
Þóra Einarsdóttir sópran verður
gestur Tríós Reykjavíkur á hádegis-
tónleikum á Kjarvalsstöðum í dag kl.
12.15. Á efnisskránni eru verk eftir
Grieg, Ravel, Liszt,
Massenet, Duparc
og Mozart. Tríóið
skipa Guðný Guð-
mundsdóttir á
fiðlu, Gunnar Kvar-
an á selló og Rich-
ard Simm á
píanó. Aðgang-
ur er ókeypis.
Þóra syngur með
Tríói Reykjavíkur
Á laugardag Snýst í suðlæga átt, 3-10 m/s með snjókomu fyrst
vestantil, en síðan rigningu einkum um landið sunnanvert. Úr-
komulítið fram eftir degi norðaustanlands og minnkandi frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Búast mátti við dálitlum éljum vestanlands á
annesjum síðustu nótt. Þykknar upp með vesturströndinni með
heldur vaxandi suðaustanátt í kvöld.
VEÐUR
„Björgvin Páll [Gústavsson]
var framúrskarandi góður í
fyrri hálfleik, og svo fannst
mér Arnar [Freyr Arnars-
son] koma mjög vel inn á
línuna og í vörninni líka.
Miðað við fyrsta leik á stór-
móti á hann stórt hrós skil-
ið,“ sagði Sverre Jakobs-
son, einn álitsgjafa sem
Morgunblaðið fékk til að
meta frammistöðu Íslands
gegn Spáni á HM karla
í handbolta í gær. »1
Arnar Freyr á
stórt hrós skilið
Efstu þrjú liðin í Dominos-deild karla
í körfuknattleik lentu í miklum vand-
ræðum í gærkvöld og tvö þeirra töp-
uðu. Tindastóll steinlá í Norðurlands-
slag gegn Þór á Akureyri og Stjarnan
beið lægri hlut fyrir ÍR. KR var í basli
með Skallagrím en náði að knýja
fram sigur eft-
ir framleng-
ingu. Stjarn-
an og KR eru
nú jöfn á
toppi deildarinnar
og Tindastóll tveimur
stigum á eft-
ir. »4
Toppliðin lentu öll í
miklum vandræðum
„Við lifum á tilfinningum og ís-
lensku geðveikinni og Spánverjarnir
fundu ekkert svar við þessu í fyrri
hálfleik. Frammistaða okkar í fyrri
hálfleik var geggjuð en því miður
náðum við ekki að halda þetta út,“
sagði Björgvin Páll Gústavsson
landsliðsmarkvörður eftir fyrsta leik
Íslands á HM í handbolta í Frakk-
landi í gærkvöld. »1
Lifum á tilfinningum
og íslensku geðveikinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Landsmenn hafa notið þess að
hlusta á Helenu Eyjólfsdóttur
syngja opinberlega í um 60 ár, bæði
með hljómsveitum á sviði og á plöt-
um, en fyrsta eiginlega sólóplata
hennar, Helena, kom út á dögunum
og verður henni fylgt eftir með út-
gáfutónleikum á Akureyri og í
Reykjavík í febrúar eða mars.
Helena segir að Jón Rafnsson,
kontrabassaleikari og eigandi JR
Music, hafi hringt í sig fyrir um
þremur árum og borið hugmyndina
um diskinn undir sig. „Ég tók strax
vel í að gefa út disk og úr varð að
ég fékk að velja lögin sjálf,“ rifjar
hún upp. „Kunningi minn sagði að
ég ætti bara að hringja í þessa
stráka sem væru að semja lög og
biðja þá um að semja fyrir mig.
Mér fannst það fráleitt en eftir því
sem ég hugsaði málið betur sá ég
að þetta var ekki svo vitlaust, fékk
lög og valdi úr.“
Helena segir að hún hafi lagt
áherslu á að velja gömul, falleg lög
og fengið textaskáld til þess að
semja texta þar sem þess þurfti.
„Þetta tók allt sinn tíma,“ segir hún
og er ánægð með árangurinn.
Þekktir aðstoðarmenn
Á disknum eru 11 lög. „Ég fékk
Magnús Eiríksson til þess að semja
fyrir mig lag og það fannst mér
mjög mikill heiður,“ segir Helena.
Jóhann G. Jóhannsson á einnig eitt
lag á plötunni, Ingvi Þór Kormáks-
son tvö lög eins og Karl Olgeirsson.
Þess má geta að lagið „Reykur“ eft-
ir Karl og Trausta Örn Einarsson
hefur verið í 4. sæti vinsældalista
Rásar 2 á Ríkisútvarpinu undan-
farnar fjórar vikur eða frá því plat-
an kom út.
„Ég gerði það sem ég hélt að ég
myndi ekki gera aftur, söng lagið „Í
rökkurró“ inn á plötuna,“ segir Hel-
ena. Ástæðuna segir hún vera þá að
áður hafi fjórum lögum verið troðið
á tveggja laga disk og fyrir vikið
hafi þurft að stytta þau. „Mér
fannst það svo snubbótt. Þetta lag
hefur fylgt mér alla tíð, ég hef
sungið það í gegnum tíðina og eng-
inn annar og því ákváðum við að
hafa það með í þeim stíl sem það
var í í upphafi.“ Karl Olgeirsson út-
setti öll lögin og stjórnaði upp-
tökum. „Það var mín gæfa,“ segir
Helena. „Hann er algjör snillingur,
drengurinn.“
Helena byrjaði barnung að
syngja. Hún minnir á að dægur-
lagaferillinn hafi byrjað um 15 ára
aldurinn og við það miði hún. „Ég
kom fyrst fram opinberlega á
styrktartónleikum á vegum SÍBS í
Austurbæjarbíói, söng fyrir hlé með
hljómsveit Gunnars Ormslev. Þetta
var upphafið, 11 sýningar í Austur-
bæjarbíói. Þá kviknaði eitthvað og
eldurinn logar enn.“
Söngkonan heldur röddinni vel
og hún er þakklát fyrir það. „Ég
held áfram að syngja á meðan hún
er til staðar,“ segir Helena og legg-
ur áherslu á að hún þurfi ekki leng-
ur að æfa sig. „Það er alltaf gaman
að syngja en ég ætla ekki að syngja
inn á annan sólódisk.“
Helena á söngsviðinu í sextíu ár
Fyrsta sólóplatan komin út Útgáfutónleikar í Reykjavík og á Akureyri
Ljósmynd/Sveinn Speight
Helena Eyjólfsdóttir Söngkonan kunna hefur sungið með ýmsum hljómsveitum í 60 ár en Helena er fyrsti sólódiskur hennar.