Víkurfréttir - 14.10.2004, Qupperneq 19
2004 - 2005
Urvalsdeildin
BLAÐAUKI VÍKURFRÉTTA UM ÚRVALSDEILDARLIÐ KARLA Á SUÐURNESJUM
GRINDAVIK
KEFLAVÍK
NJARÐVÍK
Það er skemmtilegur vetur
framundan í körfuboltanum,
Suðurnesjaliöunum er spáð
þremur efstu sætunum og íbú-
ar á Reykjanesi gera strangar
kröfur til sinna manna og
heimta Islandsmeistaratitilinn
suður með sjó.
Alls hafa Suðumesjaliðin
Grindavík, Keflavík og Njarð-
vík unnið samtals 20 Islands-
meistaratitla frá árinu 1952 og
aragrúann allan af bikarmeist-
aratitlum og öðrum minni
verðlaunum. Gaman verður að
fylgjast með baráttunni í vetur
og sér í lagi þegar Suður-
nesjaliðin heygja sínar
hatrömmu baráttur innbyrðis.
Teitur,Alli Óskars, Gummi
Braga og margir aðrir frábær-
ir leikmenn hafa komið skón-
um, sem spiluðu ófáa stórleik-
ina, á hilluna og yngri menn
hafa tekið við. Það verður
virkilega gaman að fylgjast
með ungu leikmönnum skapa
sér nafn og setja sitt strik í
körfuboltareikninginn. Barátt-
an verður mikil og flest liðin í
deildinni leggja allt kapp á það
að sigra Suðurnesjaliðin enda
eru þau, og hafa verið um ára-
bil, sigurstranglegust.
Blóð, sviti og tár, við þekkjum
það svo vel með okkar mönn-
um, mætum öli á völlinn og
gerum okkar í baráttunni um
að halda titlinum heima.
VlKURFRÉTTIR I SPORT I FIMMTUDAGURINN14. SEPTEMBER 2004 119