Víkurfréttir - 19.01.2006, Side 8
^ Sveitarfélagið Vogar:
Fjölmenni á fyrsta
bæja rstjórna rfu ndi
Fyrsti fundur bæjar-
stjórnar í sveitarfélaginu
Vogum fór fram í Tjarn-
arsal í Stóru Vogaskóla sl.
fimmtudag. Mikið fjölmenni
var á þessum hátíðarfundi en
um 100 manns, 10% bæjarbúa,
mætti til að hlýða á fulltrúa
sína og var kaffisamsæti í
salnum að fundi loknum.
Vatnsleysustrandarhreppur
breyttist í Voga með tilskipun
frá félagsmálaráðuneytinu fyrir
skemmstu, en á þessum fyrsta
fundi var m.a. afgreidd fjárhags-
áætlun fyrir næsta ár, farið yfir
drög að nýju aðalskipulagi og
skrifað undir rammasamkomu-
lag við Búmenn og Trésmiðju
Snorra Hjaltasonar um uppbygg-
ingu á þjónustu við eldri borg-
ara.
Fyrsta mál á dagskrá var að
kjósa í bæjarráð, en í þriggja
manna ráði verða: bæjarfulltrú-
arnir Jón Gunnarsson, Sigurður
Kristinsson og Birgir Örn Ólafs-
son.
I yfirferð Jóhönnu Reynisdóttur,
bæjarstjóra, um fjárhagsáætlun
ársins 2006 kom fram að gert
er ráð fyrir 17,8 milljóna króna
afgangi.
Helstu niðurstöður samstæð-
unnar eru eftirfarandi:
Heildartekjur: 439,6 milljónir
Gjöld: 401,7 milljónir.
Þ.a. launatengdgjöld 239,5 millj-
ónir.
Niðurstaða fyrir afskr. og fjárm.
37,9 milljónir.
Rekstrarniðurstaða 17,8 millj-
ónir.
Veltuféfrá rekstri 43,3 milljónir
Eignir 888,3 milljónir.
Skuldir og skuldbindingar 509,2
milljónir.
Eigiðfé 395,3 milljónir.
Vegna mikillar fjölgunar og upp-
gangs í bænum á síðustu árum
hefur fasteignamat hækkað veru-
lega milli ára, en til að mæta
þeirri hækkun var álagningar-
hlutfall lækkað um 17%.
Fulltrúi Landslags ehf. fór yfir
stöðu aðalskipulagsmála og
sýndi fundargestum yfirleit-
mynd af nýju hverfi sem fyrir-
hugað er innan við núverandi
byggðarkjarna, á landi Minni
Voga. Þar er gert ráð fyrir um
400 íbúða byggð sem gæti hýst
allt að 100 manns.
Að lokinni kynningu ákvað bæj-
arstjórn að stefna til samráðs-
fundar, eigi síðar en í mars, þar
sem íbúar gætu komið sínum
skoðunum á framfæri.
TÓNLISTARSKÓLIREYKJANESRÆJAR
HLJÓMASLÁTTUR
NÁMSKEIÐ Á KASSAGÍTAR
Námskeið í hljómaslætti á kassagítar fyrir
byrjendur og lengra komna hefst þriðjudaginn
7. febrúar.
Kennt verður í litlum hópum á
þriðjudagskvöldum, eina klukkustund í senn, í
8 vikur. Kennsla fer fram á sal skólans, Þórustíg
7, Reykjanesbæ.
Námskeiðsgjald er kr. 12.000 og eru námsgögn
innifalin.
INNRITUN
Innritun fer fram dagana 19.-31. janúar n.k. frá
kl. 13:00 - 17:00 á skrifstofu skólans, Austurgötu
13 eða í síma 421 1153.
Skólastjóri.
ir
SQinRHRimSMKT
8982222
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
HSS fær nýtt hjartalínuritstæki að gjöf
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
barst góð gjöf þegar fjögur stétt-
arfélög á Suðurnesjum afhentu
stofnuninni nýtt hjartalínurit-
stæki. Það voru Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur og
nágrennis, Verslunarmannafé-
lag Suðurnesja, Iðnsveinafélag
Suðurnesja og Starfsmannafélag
Suðurnesja.
Tækið er eitt það fullkomnasta
sem til er af sinni gerð og á ef-
laust eftir að koma sér vel jafnt
á slysa- og bráðamóttöku, þar
sem tækið verður staðsett, sem
inni á deildum. Gamla hjarta-
línuritstækið var notað margoft
á hverjum degi, en var komið til
ára sinna. Auk þess er í nýja tæk-
inu innbyggt greiningarforrit
sem gefur læknum og hjúkrun-
arkonum tillögu að greiningu,
en slíkt getur sparað tíma þegar
mikið er í húfi.
Sigríður Snæbjörnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri HSS, þakkaði
íjórmenningunum sem komnir
voru saman til að afhenda tækið
formlega fyrir þessa ómetanlegu
gjöf. Hún sagði tækið hafa verið
í notkun frá áramótum og gefið
afar góða raun.
Kristján Gunnarsson, formaður
VSFK, tók til máls fyrir hönd
hópsins og sagði að þeim væri
heiður að samstarfinu og væru
ávallt reiðubúnir til frekara sam-
starfs við Heilbrigðisstofnunina.
Að þessari stuttu athöfn lokinni
fóru þeir Kristján, Guðbrandur
Einarsson, VS, Ragnar Örn Pét-
ursson, STFS og Sigfús Eysteins-
son, ISFS, í greiningu í hjarta-
línuritstækinu og komu flestir
vel út.
Á myndinni eru fulltrúar stéttar-
félaganna ásamt starfsfólki HSS.
VÍKURFRÉTTIR ! 3.TÖLUBLAÐ 27. ÁRCANCUR
VÍKURFRÉTTIR A NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!