Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.2006, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 18.05.2006, Qupperneq 22
NYSUNDLAUG OGY að trúa því líklega fæstir að komin séu 20 ár síðan íyrsta hótel bæjarins opnaði í miðbæ Keflavíkur en Hótel Keflavík var opnað 17. maí 1986. í fyrstu voru her- bergin 22 en síðar um haustið bættust 10 her- bergi í viðbót. I dag er Hótel Keflavík stærsta hótel bæjarins, fyrsta flokks hótel með 70 herbergjum en að auki er rekið gistiheimili með sex herbergjum beint á móti hótelinu. Herbergin eru öll búin þeim þægindum sem þekkjast á góðum hótelum úti í hinum stóra heimi. Hótelið er glæsilegt fjölskyldufyrir- tæki, og hefur þótt kærkominn dvalarstaður fyrir þá sem vilja hvílast vel áður en haldið er af stað til annarra landa. Boðið er upp á akstur að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ráð- stefnuhald og árshátíðir fyrirtækja hafa aukist jafnt og þétt enda aðstaðan öll hin besta og afþreying í miklu úrvali en áhersla hefur verið lögð á að veita góða og persónulega þjónustu í hvívetna. Þrátt fyrir mikla aukningu íslend- inga á leið erlendis og aukið ráðstefnuhald er meirihluti hótelgestanna þó erlendir gestir m.a. flugáhafnir. Hótelbygging á 5 hæðum rís á þremur mánuðum Tildrög að stofnun hótelsins var sú að eigendur Ofnasmiðju Suðurnesja þau hjónin Jón William Magnússon og Unnur Ingunn Steinþórsdóttir og sonur þeirra, Steinþór Jónsson, sáu fram á að þörf væri á hóteli í bænum og í janúar 1986 var ákeðið að hefjast handa. Þau drógu fram teikn- ingu af hótelinu, réðu til sín verktaka og þremur mánuðum síðar var hótelið risið sem hlýtur að teljast nokkuð gott þegar um 1.250 fermetra byggingu á fimm hæðum er að ræða. Mikil breyting á 20 árum Það voru ekki margir sem höfðu trú á að hótel gæti borið sig í Keflavík en annað hefur vissu- lega komið á daginn. Hótelið hefur verið vel bókað flest árin og má með sanni segja að fá hótel hafi haft betri nýtingu þegar til lengri tíma er litið. Eigendur draga ekki dul á að frábær nýt- ing vegna veru varnaliðsins í Keflavík hafi skipt gríðarlegu miklu máli sérstaklega fyrstu árin og hafi hjálpað þeim að byggja upp glæsilegt hótel án þess að lántökur hafi verið of miklar. Það er mat þeirra að mikil skuldsetning hótela sé ein helsta ástæða gjaldþrota og eigandaskipta í hótelgeiranum en fá hótel er enn rekin af sömu aðilum og með sömu kennitölunni eftir 20 ára starfsemi. Mikil tengsl við flugvöllinn Hótelið hefur frá upphafi lagt áherslu á tengsl sín við flugvöllinn en auk áhafna frá varnar- svæðinu eru áhafnaskipti flugfélaga um allan heim stór þáttur í rekstri hótelsins. Þau viðskipti hafa ekki öll komið af sjálfu sér en Hótel Kefla- vík, með Steinþór Jónsson hótelstjóra í fara- broddi, var brautryðjandi í bættri samkeppni í flugmálum íslendinga er flugfélagið Canada 3000 hóf reglulegt áætlunarflug frá landinu árið 1995 fyrst erlendra flugfélaga fyrir þeirra tilstilli. Canada 3000 var með 16 lendingar á viku hér á landi á leið sinni frá Vancouver í Kanada til Evr- ópu og gistu allar áhafnir félagins á Hótel Kefla- vík og settu mark sitt á bæjarfélagið um árabil enda skipti fjöldi þeirra oft tugum á hverjum degi þegar rnest var. Margir frægir gestir Á síðustu 20 árum hafa fjölmargir frægir gestir gist á hótelinu og má þar m.a. annara nefna söngvarann Meat Love, Iron Maiden, hljóm- sveitina Hemann Hermits og fleiri en frægt er þegar leikarinn John Travolta fékk ekki inni á hótelinu þar sem hótelið var fullbókað. Þá leigðu fulltrúar Hvíta húsins einu sinni heila hæð til að vera viðbúnir ef A1 Gore varaforseti Bandaríkjanna þyrfti að hafa viðdvöl á leið sinni til Evrópu. Undirbúningur fólst m.a. í því að beintengja símalínu til Hvita húsins ef á þyrfti að halda. Þá er stutt síðan Igor Ivanoff varna- málaráðherra Rússland dvaldi á hótelinu og má því með sanni segja að hótelstjórinn sé í góðu sambandi við stórveldin beggja vegna Atlants- hafsins. Ókeypis gisting fyrir jólin Þá hafa jóladagar hótelsins síðustu fimm ár vakið mikla athygli en í desember hvert ár hefur Hótel Keflavík boðið endurgjaldslausa gistingu á hótelinu gegn því að fólk framvísi kvittunum fyrir kaupum á vörum eða þjónustu í bænum sem svarar til verðmæti gistingarinnar. Eldd er vitað til þess að nokkuð hótel í heiminum hafi farið þessa leið til að styðja við verslun í bæjar- félagi sínu. Hefur hótelið tekið frá 20 herbergi í þessu skyni á hverri nóttu í desember fram til jóla og hefur eftirspurn öll árin verið meiri en framboðið. Þessi uppákoma hefur bæði vakið athygli á Reykjanesbæ sem verslunarstaðar og á hótelinu sem góðum kosti á Reykjanesi. Lykillinn er gott starfsfólk Steinþórjónsson hefur verið hótelstjóri frá upphafi en Davið Jónsson er í dag aðstoðarhót- elstjóri. Segjast eigendur hafa verið með gott starfsfólk öli árin sem án efa skipti mestu máli í velgengi fyrirtækisins en sumir þeirra hafa starfað hjá fyrirtækinu vel á annan tug ára. Síð- asta föstudag gerðu núverandi og fyrrverandi starfsmenn sér glaðan dag í tilefni afmælisins í Stapa en samhliða var haldið uppá 40 ára af- mæli hótelstjórafrúnnar Hildar Sigurðardóttur. Björt framtíð í ferðaþjónustu Telja eigendur að framtíð ferðaþjónustu á Reykjanesi sé góð og nefna í því sambandi fegrun bæjarins og nýja Vatnaveröld í Reykja- nesbæ, Víkingaheim og orkuverið Jörð sem opna á næsta ári að ógleymdu Bláa Lóninu og einstaka fegurð Reykjanes svæðisins. Hótel Keflavík í 20 ár! 22 IVIKURFRÉTTIR i 20.TÖLUBLAÐ 27. ÁRCANGUR Bylting fyrir su Ný 50 metra keppnissundlaug innanhúss og glæsilegur vatnagarður, svokölluð Vatnaveröld, voru vígð við sundmiðstöðina í Keflavík á föstudaginn. Mannvirkið kostar tæpar 680 milljónir króna. Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. á mannvirkið en leigir það til Reykjanesbæjar. Hugmyndavinna um 50m sund- laugarbyggingu hófst í maí 2003. Margar mismunandi til- lögur voru settar fram til skoð- unar, unnið var náið með sund- fólki ásamt menningar-, íþrótta og tómstundaráði, Stefáni Bjarkasyni og hans fólki, Jóni Jóhannssyni, sundþjálfurum og öðrum framármönnum í sund- deildinni. 1 september það ár er kynnt fyrir bæjaryfirvöldum tvær tillögur, annars vegar um 25m innilaug og hins vegar 50m innisundlaug sem væri fullgild keppnislaug fyrir alþjóðleg mót. Að lokinni umfjöllun bæjaryfir- valda var undirbúningi haldið áfram með 50m metra laugina, þarfgreining endurskoðuð og tillagan rýnd. „1 júlí 2004 er ákveðið að skipta lauginni með þar til gerðir fær- anlegri brú, sem geri það kleift að hafa einnig 25m löggilta keppnislaug auk heldur minni æfingalaugar, þetta gaf einnig möguleikann á því að laugin synti kennslu fyrir tvo grunn- skóla. Að auki var ákveðið að ráðast í lagfæringar á búnings- aðstöðu í kjallara ásamt metnað- arfullri útfærslu á svokölluðum vatnagarði sem æri líkleg til vin- sælda fyrir fjölskyldur og ferða- menn. Verkefna- og hönnunarteymið var ásamt Eignarhaldsfélaginu Fasteign hf: Tark, undir forystu Bjarna Snæbjörnssonar og verk- FRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • IESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.