Víkurfréttir - 18.05.2006, Blaðsíða 41
Sigur í fyrsta leik
eflavíkurkonur höfðu
sigur í sínum fyrsta
deildarleik í Lands-
bankadeildinni á þriðjudag er
þær lögðu nýliða Fylkis að velli
2-0 í Árbænum.
Nína Ósk Kristinsdóttir og
Ólöf Helga Pálsdóttir gerðu
mörk Keflavíkur í leiknum
en Keflavík var mun sterkari
aðilinn allan tímann og hefðu
hæglega getað gert fleiri mörk í
leiknum. „Við fengum aragrúa
af færum og hefðum getað bætt
við mörkum, það gekk allt upp
hjá okkur nema að skora fleiri
mörk,“ sagði Gunnlaugur Kára-
son, þjálfari Keflavíkurkvenna
í samtali við Víkurfréttir. „Þetta
er góð byrjun og mikilvæg þrjú
stig fyrir okkur en við höldum
okkur á jörðinni," sagði Gunn-
laugur að lokum. Næsti leikur
Keflavíkurkvenna er gegn
Breiðablik þann 23. maí n.k. á
Keflavíkurvelli kl. 19:15.
Framtíðarhetjur
á KFC móti
Ivetur hafa farið fram
knattspyrnuæfingar hjá
Keflavík fyrir allra yngstu
iðkendurna og hefur æfinga-
sókn verið mjög góð, eða um
60 piltar að jafnaði á æfingum.
Þessir iðkendur sem eru á aldr-
inum 3-6 ára kepptu á sínu
fyrsta fótboltamóti laugardag-
inn 6. maí s.l.
Þá fór fram KFC-mót 8. flokks
á vegum knattspyrnudeildar
Víkings í íþróttahúsinu Víkinni
og sendi Keflavík 6 lið í mótið.
Það var mikil eftirvænting hjá
krökkunum að fara að keppa
og klæðast Keflavíkurbún-
ingnum en það sem toppaði
allt var að fá sinn fyrsta verð-
launapening! Allir skemmtu
sér vel, jafnt krakkarnir sem og
þeir fjölmörgu foreldrar sem
fylgdu íþróttasnillingum fram-
tíðarinnar á sitt fyrsta mót; mót
sem skilur eftir margar góðar og
skemmtilegar minningar.
Reynir með stórsigur í fýrsta leik
Reynir vann góðan sigur
á Aftureldingu í fyrstu
umferð annarar deildar
karla í knattspyrnu á sunnu-
dag.
Lokatölur voru 3-0, en mörk
þeirra Sandgerðinga skoruðu
þeir Adolf Sveinsson, Ólafur
Ivar Jónsson og Hafsteinn Frið-
riksson.
Þess má einnig geta að Reyn-
ismenn komust upp úr fyrstu
umferð Bikarkeppni KSÍ fyrir
síðustu helgi þegar þeir lögðu ut-
andeildarliðið Tunglið. Sumarið
fer því vel af stað hjá Sandgerð-
ingum. Næsti leikur liðsins er á
sunnudag gegn Sindra á útivelli
og hefst leikurinn kl. 14:00
Æfíngaaðstaða í Keflavík
Nú er fótboltinn farinn
að rúlla enda komið
vor. Þegar maður lítur
yfir þá aðstöðu sem í boði er
hér í Reykjanesbæ og ber það
saman við Garð, Sandgerði
og Grindavík þá sér maður
hvað við erum langt á eftir.
Knattspyrnudeild Keflavíkur
hefur í dag æfingasvæði á
gömlu Iðavöllum sem varla
eru boðlegir og annað ekki. I
dag er enginn völlur fyrir yngri
flokka til að æfa eða spila á og
er ástandið þannig að yngri
flokkar félagsins þurfa að not-
ast við Reykjaneshöllina. Það
getur ekki verið að mönnum
finnist þetta viðunandi. Ekki
ætla ég að fara að agnúast út
af þessu máli pólitískt en vil
benda á að þetta er hlutur sem
allveg hefur gleymst í öllum
þeim framkvæmdum sem
átt hafa sér stað hér í bæ. Nú
veit ég að byrjað er að byggja
æfingasvæði fyrir Njarðvík
en ekkert er farið að huga að
svæði fyrir Keflavík sem hefur
nánast enga aðstöðu í dag.
Við verðum að átta okkur á
að Keflavík sem leikur í efstu-
deildum bæði karla og kvenna
hefur nánast enga aðstöðu.
Sundkjallarinn sem áður fyrr
var notaður sem búninga-
aðstaða og skrifstofur hefur
fengið nýtt hlutverk án þess að
nokkuð hafi komið í staðinn.
Hvernig verður þetta næsta ár,
spilar Njarðvík líka á Sunnu-
brautarvellinum? Hvernig
halda menn að það gangi upp
með tilliti til álags ?
Kveðja,
Einar H Aðalbjörnsson
Talsmaður 2 ftokks karla
Keflavík
Síniun gerði fyrsta mark sumarsins
Keflvíkingar hófu leik-
tíðina í Landsbanka-
deild með 2-1 tapleik
gegn ÍBV á Hásteinsvelli í Vest-
mannaeyjum.
Símun Samuelsen kom Kefla-
vík yfir á 20. mínútu, 1-0, og
var það jafnframt fyrsta mark
sumarsins í deildinni en Símun
hefur verið drjúgur hjá Keflavík
að undanförnu. Símun fékk
góða sendingu inn fyrir vörnina
frá Daniel Severino og kláraði
færi sitt af miklu öryggi. Markið
var ekki beint í takt við leikinn
þar sem lítið hafði gengið hjá
þeim fram að því. Heldur tók að
syrta í álinn hjá Keflvíkingum
eftir það og á 32. mínútu fengu
heimamenn vítaspyrnu þegar
knötturinn hafnaði í hendi Guð-
jóns Árna Antoníussonar og Bo
Henrikssen skoraði af öryggi úr
vítaspyrnunni. f síðari hálfleik
dró enn fyrir sólu þegar Páll
Hjarðar, fyrirliði ÍBV, skoraði
með skalla eftir hornspyrnu. Þar
við sat og fBV hafði betur 2-1.
Kristján Guðmundsson, þjálfari
Keflvíkinga, sagði marga sam-
verkandi þætti liggja að baki tap-
inu. „Við vorum alls ekki að ná
okkur á strik og náðum ekki að
spila okkar bolta,“ sagði hann
og átti þar við að völlurinn hafi
verið afar erfiður yfirferðar.
Hann hafi verið ósleginn og
þurr þannig að ekkert gekk að
leika eftir jörðinni. „Þá reyndum
við að spila háa bolta og þeir
voru sterkari í loftinu og unnu
skallaboltana. Ég var að vona
að markið okkar myndi kveikja
í okkur, en það gerðist ekki.“
Kristján var ómyrkur í máli
þegar kom að dómgæslunni í
leiknum sem hann segir að hafi
verið fyrir neðan allar hellur.
„Það er skammarlegt að Guðjón
hafi fengið víti á sig því að hann
sá aldrei boltann, fyrir utan það
að boltinn fór ekki í hendina
á honum. Hann fór í öxlina,
eða í mesta lagi ofarlega á upp-
handlegginn. I seinna markinu
var svo hangið í treyjunni hans
Ómars þannig að bæði mörkin
þeirra voru kolóiögleg.“ Hann
segir sína menn þó staðráðna í
að koma sterkir inn í næsta leik
sem er gegn nýliðum Víkings
á Keflavíkurvelli annað kvöld
kl. 19:15. „Við verðum að rífa
okkur upp og spila Keflavíkur-
bolta og ég er að vona að völlur-
inn okkar hjálpi okkur í því.“
Kvennalið Grindavíkur
þakka fyrir sig
Meistaraflokkur, 2. flokkur og 3. flokkur kvenna í
Grindavk fóru í knattspyrnuæfingaferð til Spánar í vor.
Hóparnir vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til allra
þeirra sem veittu þeim stuðning til fararinnar.
IÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU i BOÐI LANDSBANKANS
VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASiÐUR
41