Víkurfréttir - 18.05.2006, Side 28
PÓSTBKA5SINN
Sigurjón Kjartansson skrifar:
Traustsins verðir
Fyrir fjórum árum síðan,
í mars 2002, komst Um-
boðsmaður Alþingis
að þeirri niðurstöðu að “sér-
stakt gjald vegna fráveitufram-
kvæmda“ sem innheimt var
í Reykjanesbæ væri ólöglegt
(Mál nr. 3221/2001). í septem-
ber 2003 komst nefnd Umhverf-
isráðuneytisins að sömu nið-
urstöðu. Bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar hefur ekki enn gefið
sér tíma til að endurgreiða
þessa ofsköttun. Ég hef sent
bæjarstjórn bréf, fleiri en eitt,
þar sem ég hef beðið um end-
urgreiðslu. Þeir hafa ekki enn
fundið sér tíma til að svara.
það er mikið að gera hjá þeim
blessuðum og sennilega hefur
þetta bara gleymst í allri fram-
kvæmdagleðinni. Það er vel
hægt að fyrirgefa það. Vona
bara að þeir geti fljótlega gefið
sér tíma til að endurgreiða
þessa peninga. Þeir kæmu sér
sjálfsagt vel hjá mörgum.
Upphæðin með eðlilegum drátt-
arvöxtum er orðin nokkuð há,
sennilega nálægt hundrað þús-
und á hvern húseiganda. Ekki
það há að það svari kostnaði
íyrir mig að reka það fyrir dómi.
En maður verður stundum að
treysta kjörnum fulltrúum til að
gera það sem er rétt. Og vona
að þeir hafi ekki í sér þjófagen.
Sumir hafa lítið siðferðisþrek og
telja það í lagi að stela ef hægt er
að komast hjá ákæru. Að ekkert
sé glæpur ef enginn kærir. Eða
telja heiðarlega að verki staðið
ef þjófnaðurinn nær að fyrnast.
Ég er viss um að þannig fólk er
ekki í bæjarstjórn eða á fram-
boðslistum hér í bæ. Við eigum
að geta treyst okkar fólki.
Þetta er þannig verk að svona
dugnaðarforkar ættu að geta af-
greitt þetta á nokkrum dögum.
En nái núverandi bæjarstjórn
einhverra hluta vegna ekki að
klára þetta verk fyrir kosningar
vona ég að næsta bæjarstjórn
láti það verða eitt sitt fyrsta
verk. Með bestu kveðjum til bæj-
arstjórnar og alls þess góða fólks
sem er í framboði.
Sigurjón Kjartansson
VOGAR
ATVINNA
Skrifstofustarf
Starf á skrifstofu bæjarfélagsins er laust til umsóknar.
Um er aö ræða 70% starf og er vinnutími frá 11:3o — 15:30 þrjá daga vikunnar
og 8:3o -15:3o tvo daga vikunnar.
Hæfniskröfur:
Verslunar- eða stúdentspróf og/eða reynsla af skrifstofustörfum.
Tölvukunnátta er áskilin.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Góð verkkunnátta.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 22. maí n.k.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarins og þangað skal þeim skilað.
Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð til útprentunar á heimasíðunni:
www.vogar.is.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri í síma 424 6660.
Bæjarstjóri
VOGAR - fœrast í vöxt
Vegna athugasemda Sigurjóns
Kjartanssonar um holræsagjöld
Sérstök gjaldskrá um
6.000 kr. holræsagjald
var sett í febrúar 1997.
Gjaldskráin var staðfest af Um-
hverfisráðherra í mars 1997.
Gjaldskráin var kærð í nóvem-
ber 2000.
Úrskurðarnefnd sem fjallaði
um málið taldi ekkert athuga-
vert við innheimtuna í mars
2001.
Umboðsmaður Alþingis fékk
málið til afgreiðslu í apríl
2001.
Úrskurðarnefnd staðfesti í
bréfi til umboðsmanns niður-
stöðu sína í apríl 2001.
Umhverfisráðuneytið staðfesti
lagaheimildir Reykjanesbæjar
í bréfi til umboðsmanns í des.
2001.
Umboðsmaður alþingis
dregur heimildirnar í efa í
mars 2002 og óskar eftir upp-
töku málsins.
Úrskurðarnefnd tók málið
fyrir að nýju í september 2003
og taldi gjaldtökuna óheimila.
Reykjanesbær felldi gjaldtök-
una úr gildi í sept. 2003 og
hefur ekki innheimt gjaldið
síðan.
Umhverfisráðuneytið hafnar
erindi um að hlutast til að
Reykjanesbær endurgreiði
gjaldið til íbúa í okt. 2003.
Reykjanesbær innheimti gjald
þetta frá 1997 - 2003. Allan
þann tíma var gjaldið inn-
heimt í góðri trú enda gjald-
skrá bæði staðfest af ráðherra
og úrskurðarnefnd. Niður-
staða umboðsmanns Alþingis
er álit en ekki dómur og því
var ekki forsenda til breytinga
þegar hann afgreiddi málið í
mars 2002. Hins vegar breytti
Reykjanesbær afstöðu sinni
um leið og úrskurðarnefnd
endurskoðaði niðurstöðu sína
og felldi þar með gjaldskrána
úr gildi. Gjaldið hefur ekki
verið innheimt síðan.
Ekkert í málsmeðferð þess
máls gefur tilefni til þess að
Reykjanesbær endurgreiði
gjaldið.
Með bestu kveðju.
Böðvar Jónsson, for-
maður bœjarráðs
Þórunn Guðmundsdóttir í Flösinni, Garði.
VÍKURFRÉTTAMYND: ELIERT GRÉTARSS0N
Þórunn sýnir
í Flösinni
órunn Guðmunds-
dóttir, myndlistarkona,
opnaði í gær sýningu á
verkum sínum í byggðasafn-
inu í Garði. Flösinni. Þar sýnir
hún 16 myndverk máluð með
vatnslitum en í þeim efnum
þykir Þórunn á heimavelli.
Hún hefur um árabil verið í
hópi fremstu vatnslitamálara
landsins og m.a. tekið þátt í
sýningum Akvarell ísland
hópsins.
Innblástur í verk sýn sækir Þór-
unn í íslenska náttúru og sitt
nánasta umhverfi.
Hún stundaði lengi myndlist-
arnámskeið á vegum Baðstof-
unnar og naut þar leiðsagnar
Eiríks Smiths. Hún hefur haldið
nokkrar einkasýningar, tekið
þátt í mörgum samsýningum.
Sýningin verður opin til 30. maí
frá kl. 13-22 alla daga.
VIKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
28 | VÍKURFRÉTTIR 20. TÖLUBLAO 27. ÁRGANGUR