Víkurfréttir - 23.11.2006, Qupperneq 4
Óþekktur aðili ásælist stofnfé í Spkef:
Strandaði
við Sand-
gerði
Björgunarskipum
Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar
í Sandgerði tókst á
fimmtudagskvöldið að
bjarga Ársæli ÁR-66 af
strandstað i innsiglingunni
til Sandgerðis. Ársæll ÁR,
sem er tæplega 200 brúttó-
lesta netabátur hafði siglt
af leið i innsiglingunni og
strandað á leið sinni upp í
Eyrina við Sandgerði.
Fjölmennt björgunarlið
á Hannesi Þ. Hafstein og
öðrum björgunarbátum
brugðust skjótt við neyð-
arkallinu frá netabátnum.
Dótturbátur Hannesar Þ. Haf-
stein, Siggi Guðjóns, losaði
Ársæl ÁR af strandstað með
því að ýta honum af festunni
og sigldi Ársæll ÁR til hafnar
undir eigin vélarafli.
Skipsstjóri björgunarskipsins
sagði það lán í óláni að skipi
strandaði á þessum stað, því
Eyrin er mjög grýtt og erfltt
getur verið að losa svo stórt
skip ef það skorðast fast í
grjótinu.
Landsbankinn
MUNDI
Nú stendurflotastöðin
undir nafni
- allt áfloti...
Hefur gert mörgum tilboð undir gangverði
-Útlit fyrir methagnað hjá Spkef í ár
Fjölmargir stofnfjáreig-
endur í Sparisjóðnum
í Keflavík hafa upp
á síðkastið fengið upphring-
ingu frá aðila sem falast hefur
eftir kaupum á stofnfé þeirra
í Sparisjónum. Það sem vakið
hefur athygli er misjafnt verð
sem viðkomandi aðili hefur
boðið fólki í sinn hlut, upp
í 1950 þús. kr. fyrir eitt bréf
sem er á nafnvirði 150 þús.
kr.
Karl Njálsson, stjórnarfor-
maður Sparisjóðsins, segist
hafa heyrt af rnáiinu, en það
hafi ekki komið inn á borð
stjórnarinnar. Karl segist
lítið vita um niálið annað en
það sem hann hafi heyrt frá
sumum stofnfjáreigendum en
svo virðist að þeim sé boðið
misjafnt verð fyrir bréfm. Sam-
kvæmt því sem blaðið hefur
heyrt hefur umræddur aðili
fengið dræmar undirtektir hjá
stofnfjáreigendunum.
I burðarliðinum er útboð á
500 millj. kr. stofnfé i Spari-
sjóðnum skv. heimild sent var
samþykkt árið 2003. Ef af út-
boði á nýju stofnfé verður hafa
núverandi stofnfjáreigendur
forkaupsrétt á þeim bréfum
á uppfærðu nafnverði sem er
rúmlega 300 þúsund krónur
á bréf. Auk þess hefur blaðið
heimildir fyrir því að tillaga
um að greiða út óvenju háan
arð af stofnfjárbréfum verði
lögð fyrir næsta aðalfund. Því
sé ljóst að til mikils sé að vinna
fyrir aðiia sem kemst yfir stofn-
fjárbréf áður til útboðs á nýju
stofnfé og greiðslu arðs kemur.
VF-mynd/Þorgils
Samkaup stækka
Framkvæmdir eru hafnar
við stækkun verslunar
Samkaupa í Njarðvík.
Jarðvegsvinna er hafin og
er það Nesprýði sem sér um
verkið. Að sögn Skúla Skúla-
sonar, starfsmannastjóra Sam-
kaupa, hefur stækkunin verið
í undirbúningi um nokkurra
ár skeið. „Nú fannst okkur
rétti tíminn vera kominn
þannig að nú er allt komið á
fleygiferð.”
Viðbótin við verslunina verður
á bilinu 2-3000 fermetrar, en
Skúli segir fleira á teikniborð-
inu hjá Samkaupum.
„Við erum líka að fara að byggja
okkur nýjar höfuðstöðvar enda
löngu vaxin upp úr núverandi
skrifstofuhúsnæði. Við höfum
ráðgert að byggja hús á lóðinni
við hliðina á Kentucky Fried
og vonumst til að fá heimild
bæjaryfirvalda til þess. Sam-
kvæmt okkar áætlunum verða
skrifstofurnar á efri hæðum,
en á jarðhæð verður húsnæði
fyrir þjónustu eða verslun af
einhverskonar tagi.”
Skúli bætir því við að staðsetn-
ingin sé afar hentug enda sé
margt spennandi að gerast á
þessum stað. Þarna sé að skap-
ast eins konar nýr kjarni sem
verður í beinu samhengi við
verslanir á Hafnargötu og
menningarstarf í nágrenni við
Duushús.
Engin tímamörk hafa verið sett
á verklok.
Vatnslekinn á Vellinum:
103 íbúðir
skemmdust
-möguleiki á skemmdum íjarðlögnum
Alls skemmdust 103
íbúðir í 12 húsurn í
vatnslekanum sem
varð á Keflavíkurflugvelli um
helgina þegar vatnsleiðslur
sprungu í frosthörkum. Auk
þess urðu skemmdir á einum
leikskóla og 6 húsum þar sem
var atvinnuhúsnæði og vöru-
geymslur. Þetta kom í ljós í at-
hugun starfsmanna Flugmála-
stjórnar sem lauk síðdegis á
þriðjudaginn. Af 103 íbúðum
voru 69 fjölskylduíbúðir sem
skemmdust í 10 húsum og 34
einstaklingsíbúðir í 2 húsurn.
Á Alþingi á þriðjudag baðst ut-
anríldsráðherra afsökunar á at-
vikinu fyrir hönd stjórnvalda
sem munu bera kostnað af
skemmdunum enda engar trygg-
ingar fyrir hendi. Hún sagði
að tjónið hlypi á tugum millj-
óna. Samkvæmt mönnurn sem
þekkja til aðstæðna eru einnig
miklar líkur á að skemmdir hafi
orðið á lögnum í jörðu á gamla
varnarsvæðinu þar sem lítil eða
engin hreyfing er á vatni. Slík at-
vik hafi oft komið upp á síðustu
árurn jafnvel þótt fullt rennsli
hafi verið á vatninu.
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ ! 27. ÁRGANGUR
VIKURFRETTIR Á NETINU
IESTU NÝJUSTU FRÉT
AGIEGAI