Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 23
p ÓS rí-7i m 551 N N i ►► Pálína Hildur Sigurðardóttir skrifar um geðhjálp: „Þegar maður er eini höfrungurinn í skóginum getur verið gott að hitta aðra höfrunga“ Reykjanesbæ er komið af stað gott starf í þágu þeirra sem eiga við geðraskanir að stríða. Má þar helst nefna Björgina sem er athvarf fyrir alla þá sem eiga við einhvers- konar geðraskanir að stríða t.d. átraskanir, þunglyndi, kvíði, ýmisskonar fælni, geð- hvörf, geðklofi og fl. Björgin getur reynst vel einstaklingum sem líður illa á einhvern hátt, vantar fastan punkt í tilveruna eða eru að reyna að ná tökum á sjálfum sér og lífi sínu. Þung- lyndi getur aukist við einveru og því er félagsskapurinn sem fólkið veitir hvort öðru í Björg- inni mikils virði. Björgin er opin frá kl. 10 - 16. f boði er ýmis handavinna, gönguferðir, tónlist, spil, ferðir á kaffihús, listasöfn og fleira auk þess sem boðið er upp á heitan mat í há- deginu. Geðraskanir hafa ýmis birting- arform og er mjög mismunandi hvernig þetta leggst á einstak- linga. Margir halda að þeir þurfi að hafa einhverja grein- ingu til að mega mæta í Björg- ina, en svo er að sjálfsögðu ekki. Fólk getur leitað í Björgina ef því líður illa og fengið skilning og ráðgjöf vegna sinnar vanlíð- unnar. En ekki eru allir sem hafa þörf fyrir að mæta í Björgina en finna samt fyrir þeirri þörf að hitta aðra sem eru að glíma við samskonar vandamál Til þess hafa verið stofnaðir sjálfshjálp- arhópar. Hugmyndafræðin að baki sjálfshjálparhópi byggir á sjálfshjálp með samhjálp. Lögð er áhersla á samkennd, virðingu, að miðla reynslu, að hlusta og að eiga góða stund saman. Hver meðlimur hópsins ber ábyrgð á því að halda hópnum gangandi og að spjara sig sjálfur. I sjálfs- hjálparhópi eru allir jafnir - allir meðlimir hópsins búa yfir ein- hverskonar þekkingu sem nýtist við að taka á sameiginlegum við- fangsefnum. í hópunum finnur þú tilfinningalegan stuðning, upplýsingar, ráðgjöf og vináttu. Fólk hittist á jafningjagrundvelli og allar upplýsingar sem koma fram innan hópanna eru trún- aðarmál. Tveir sj álfshj álparhópar eru st arf- ræktir á Suðurnesjum. Annar er fyrir notendur, þ.e. þá sem eiga við geðraskanir að stríða, hinn er fyrir aðstandendur þeirra sem eru með geðraskanir. „Það er ekki bara hinn veiki sem þjáist, byrðin er oft mikil fyrir nánustu aðstandendur.” Sjálf hef ég persónulega reynslu af þessum tveimur hlutverkum, þ.e. að eiga við geðröskun að stríða og að vera aðstandandi þess sem á við geðröskun að stríða. Þannig að ég get sagt af eigin reynslu hvað það getur reynst vel og verið manni dýr- mætt að hafa tækifæri til að hitta annað fólk sem er í sömu stöðu og maður sjálfur. Þar fæ ég tækifæri til að hitta fólk sem deilir svipaðri lífsreynslu. Með þeim skapast oft sérstakt and- rúmsloft samkenndar, skilnings og öryggis. Það að deila reynslu og vonum gerir okkur kleift að sýna gagnkvæman stuðning og gefa góðar ráðleggingar. A hverju fimmtudagskvöldi kl. 20 í Björginni, sem er staðsett í Sjálfsbjargarhúsinu við Fitja- braut 6 í Njarðvík, hittist hópur fólks með ýmis geðræn vanda- mál. Þar getur fólk hitt aðra sem eru að kljást við svipuð vanda- mál og deilt þannig reynslu sinni. Þar er einnig hópur að- standenda sem hittist fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20. í hópnum eru aðstandendur fólks með ýmsar geðraskanir. Þátttak- endur miðla af reynslu sinni og styðja hvert annað eftir megni þó svo að reynsla og aðstæður geti verið mismunandi. Það eru allir velkomnir að koma og kynna sér þessa hópa og er rétt að benda á að þessir hópar eru fyrir ALLA SUÐURNESJA- BÚA. Fyrir tæpu ári síðan ákvað Geðhjálp í Reykjavík að færa út kvíarnar og tilnefna trúnað- armenn víðsvegar um landið. Félagið Geðhjálp eru hagsmuna- samtök þeirra sem eiga eða hafa átt við geðraskanir að etja, að- standenda þeirra og allra þeirra er láta sig geðmálefni varða á landsvísu. Uppbygging trúnað- armannakerfis á landsbyggðinni er hluti af landsbyggðarátaki Geðhjálpar; „Rjúfum einangrun geðsjúkra á landsbyggðinni”. Eitt af hlutverkum trúnaðar- manna er að vera í tengslum við þá starfandi sjálfshjálparhópa sem eru í þeirra landshluta. Að lokum vil ég eindregið hvetja alla til að kynna sér það frábæra starf sem fer fram í Björginni svo og að mæta á fund hjá sjálfs- hjálparhópunum. Pálína Hildur Sigurðardóttir Trúnaðarmaður Geðhjálpar á Suðurnesjum sudurnes@gedhjalp. is Fullt verö kr. 4.690 Tilboðsverð kr. 3.990 Fullt verö kr. 4.690 Tilboðsverð kr. 3.990 Fullt verö kr. 2.990 Tilboðsverð kr. 2.590 Fullt verð kr. 2.690 Tilboðsverð kr. 2.390 Fullt verö kr. 2.690 Tilboðsverð kr. 2.360 Eymundsson.is Eymundsson Bóksali frá 1872 íslensk skáldverk fyrir börn og fullorðna „Aldingarðurinn er óvenjulega þéttofin bók... efni sagnanna er þrungið tilfinningum og átökum í mannlegri tilveru." Skafti Þ. Halldórsson, Mbl. „Frábær saga!“ Móðir höfundar „Örugglega ýkt skemmtileg og fyndin bók. Ég ætla samt bara að bíða eftir bíómyndinni." Bróðir höfundar „Á móti alvarlegu söguefni kemur hraður og galvaskur frásagnarháttur Karenar Karlottu og hnitmiðaður stíllinn sem stundum er svo rosalega fyndinn ... Þetta eru bækur sem stækka sjóndeildarhring lesenda sinna." Silfa Aðalsteinsdóttir, tmm.is Hressilegar sögur og bráðfyndnar myndir gera Fíusól aö eftirlæti íslenskra bókaorma ár eftir ár. „I Sendiherranum er einhver ný vidd sem gerir frásögnina stærri og dýpri og er hún án efa merkasta skáldsaga Braga Ölafssonar til þessa." Þorgerður E. Sigurðardóttir, bokmenntir.is Tryggðarpantur er áleitin og grátbrosleg saga þar sem teflt er saman ólíkum heimum og spurningum varpað fram um lífsgildi, lífsviðhorf - og lífsblekkingu; samtímasaga um efni sem brennur á fólki. 5TÆRSTA FRÉTTA- OG AllGLÝSINGABtAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VIKURFRETTIR FIMMTUDAGURINN 23. NOVEMBER 2006 23

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.