Víkurfréttir - 23.11.2006, Qupperneq 23
p ÓS rí-7i m 551 N N i
►► Pálína Hildur Sigurðardóttir skrifar um geðhjálp:
„Þegar maður er eini höfrungurinn í skóginum
getur verið gott að hitta aðra höfrunga“
Reykjanesbæ er komið af
stað gott starf í þágu þeirra
sem eiga við geðraskanir
að stríða. Má þar helst nefna
Björgina sem er athvarf fyrir
alla þá sem eiga við einhvers-
konar geðraskanir að stríða
t.d. átraskanir, þunglyndi,
kvíði, ýmisskonar fælni, geð-
hvörf, geðklofi og fl. Björgin
getur reynst vel einstaklingum
sem líður illa á einhvern hátt,
vantar fastan punkt í tilveruna
eða eru að reyna að ná tökum
á sjálfum sér og lífi sínu. Þung-
lyndi getur aukist við einveru
og því er félagsskapurinn sem
fólkið veitir hvort öðru í Björg-
inni mikils virði. Björgin er
opin frá kl. 10 - 16. f boði er
ýmis handavinna, gönguferðir,
tónlist, spil, ferðir á kaffihús,
listasöfn og fleira auk þess sem
boðið er upp á heitan mat í há-
deginu.
Geðraskanir hafa ýmis birting-
arform og er mjög mismunandi
hvernig þetta leggst á einstak-
linga. Margir halda að þeir
þurfi að hafa einhverja grein-
ingu til að mega mæta í Björg-
ina, en svo er að sjálfsögðu ekki.
Fólk getur leitað í Björgina ef
því líður illa og fengið skilning
og ráðgjöf vegna sinnar vanlíð-
unnar.
En ekki eru allir sem hafa þörf
fyrir að mæta í Björgina en
finna samt fyrir þeirri þörf að
hitta aðra sem eru að glíma við
samskonar vandamál Til þess
hafa verið stofnaðir sjálfshjálp-
arhópar. Hugmyndafræðin að
baki sjálfshjálparhópi byggir á
sjálfshjálp með samhjálp. Lögð
er áhersla á samkennd, virðingu,
að miðla reynslu, að hlusta og
að eiga góða stund saman. Hver
meðlimur hópsins ber ábyrgð á
því að halda hópnum gangandi
og að spjara sig sjálfur. I sjálfs-
hjálparhópi eru allir jafnir - allir
meðlimir hópsins búa yfir ein-
hverskonar þekkingu sem nýtist
við að taka á sameiginlegum við-
fangsefnum. í hópunum finnur
þú tilfinningalegan stuðning,
upplýsingar, ráðgjöf og vináttu.
Fólk hittist á jafningjagrundvelli
og allar upplýsingar sem koma
fram innan hópanna eru trún-
aðarmál.
Tveir sj álfshj álparhópar eru st arf-
ræktir á Suðurnesjum. Annar
er fyrir notendur, þ.e. þá sem
eiga við geðraskanir að stríða,
hinn er fyrir aðstandendur
þeirra sem eru með geðraskanir.
„Það er ekki bara hinn veiki
sem þjáist, byrðin er oft mikil
fyrir nánustu aðstandendur.”
Sjálf hef ég persónulega reynslu
af þessum tveimur hlutverkum,
þ.e. að eiga við geðröskun að
stríða og að vera aðstandandi
þess sem á við geðröskun að
stríða. Þannig að ég get sagt
af eigin reynslu hvað það getur
reynst vel og verið manni dýr-
mætt að hafa tækifæri til að
hitta annað fólk sem er í sömu
stöðu og maður sjálfur. Þar fæ
ég tækifæri til að hitta fólk sem
deilir svipaðri lífsreynslu. Með
þeim skapast oft sérstakt and-
rúmsloft samkenndar, skilnings
og öryggis. Það að deila reynslu
og vonum gerir okkur kleift að
sýna gagnkvæman stuðning og
gefa góðar ráðleggingar.
A hverju fimmtudagskvöldi kl.
20 í Björginni, sem er staðsett
í Sjálfsbjargarhúsinu við Fitja-
braut 6 í Njarðvík, hittist hópur
fólks með ýmis geðræn vanda-
mál. Þar getur fólk hitt aðra sem
eru að kljást við svipuð vanda-
mál og deilt þannig reynslu
sinni. Þar er einnig hópur að-
standenda sem hittist fyrsta
þriðjudag í mánuði kl. 20. í
hópnum eru aðstandendur fólks
með ýmsar geðraskanir. Þátttak-
endur miðla af reynslu sinni og
styðja hvert annað eftir megni
þó svo að reynsla og aðstæður
geti verið mismunandi.
Það eru allir velkomnir að koma
og kynna sér þessa hópa og er
rétt að benda á að þessir hópar
eru fyrir ALLA SUÐURNESJA-
BÚA.
Fyrir tæpu ári síðan ákvað
Geðhjálp í Reykjavík að færa
út kvíarnar og tilnefna trúnað-
armenn víðsvegar um landið.
Félagið Geðhjálp eru hagsmuna-
samtök þeirra sem eiga eða hafa
átt við geðraskanir að etja, að-
standenda þeirra og allra þeirra
er láta sig geðmálefni varða á
landsvísu. Uppbygging trúnað-
armannakerfis á landsbyggðinni
er hluti af landsbyggðarátaki
Geðhjálpar; „Rjúfum einangrun
geðsjúkra á landsbyggðinni”.
Eitt af hlutverkum trúnaðar-
manna er að vera í tengslum við
þá starfandi sjálfshjálparhópa
sem eru í þeirra landshluta.
Að lokum vil ég eindregið hvetja
alla til að kynna sér það frábæra
starf sem fer fram í Björginni
svo og að mæta á fund hjá sjálfs-
hjálparhópunum.
Pálína Hildur Sigurðardóttir
Trúnaðarmaður
Geðhjálpar á Suðurnesjum
sudurnes@gedhjalp. is
Fullt verö kr. 4.690
Tilboðsverð kr. 3.990
Fullt verö kr. 4.690
Tilboðsverð kr. 3.990
Fullt verö kr. 2.990
Tilboðsverð kr. 2.590
Fullt verð kr. 2.690
Tilboðsverð kr. 2.390
Fullt verö kr. 2.690
Tilboðsverð kr. 2.360
Eymundsson.is
Eymundsson
Bóksali frá 1872
íslensk skáldverk fyrir börn og fullorðna
„Aldingarðurinn er
óvenjulega þéttofin bók...
efni sagnanna er þrungið
tilfinningum og átökum í
mannlegri tilveru."
Skafti Þ. Halldórsson, Mbl.
„Frábær saga!“
Móðir höfundar
„Örugglega ýkt skemmtileg
og fyndin bók. Ég ætla
samt bara að bíða eftir
bíómyndinni."
Bróðir höfundar
„Á móti alvarlegu söguefni
kemur hraður og galvaskur
frásagnarháttur Karenar
Karlottu og hnitmiðaður
stíllinn sem stundum er
svo rosalega fyndinn ...
Þetta eru bækur sem stækka
sjóndeildarhring lesenda
sinna."
Silfa Aðalsteinsdóttir, tmm.is
Hressilegar sögur og
bráðfyndnar myndir gera
Fíusól aö eftirlæti íslenskra
bókaorma ár eftir ár.
„I Sendiherranum er einhver
ný vidd sem gerir frásögnina
stærri og dýpri og er hún
án efa merkasta skáldsaga
Braga Ölafssonar til þessa."
Þorgerður E. Sigurðardóttir,
bokmenntir.is
Tryggðarpantur er áleitin
og grátbrosleg saga þar
sem teflt er saman ólíkum
heimum og spurningum
varpað fram um lífsgildi,
lífsviðhorf - og lífsblekkingu;
samtímasaga um efni sem
brennur á fólki.
5TÆRSTA FRÉTTA- OG AllGLÝSINGABtAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRETTIR FIMMTUDAGURINN 23. NOVEMBER 2006
23