Víkurfréttir - 23.11.2006, Side 10
LAUS STÖRF
Á SUÐURNESJUM
LAUSSTÖRF
Ert þú á aldrinum 20-40 ára með áhuga á að prófa nýjan starfsvettvang?
Lögreglumenn vantar til starfa um áramótin hjá nýju sameinuðu liði lög-
reglunnar á Suðurnesjum, en lögregluliðin í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli
verða sameinuð í eitt lögregluliö um næstu áramót.
Þar sem fyrirsjáanlegt er að ekki er fyrir hendi nægur fjöldi lögreglumanna
með próf frá Lögregluskóla ríkisins til að fylla í lausar stöður um áramót og
ekki líkur á að þeir verði tiltækir næstu 18 mánuðina, er nú leitað eftir fólki
sem uppfyllir skilyrði til tímabundinna lögreglustarfa. Ráðningarsamningar
eru gerðir til 9 mánuða í senn, en líkur á framlengingu samninga eru
fyrirsjánlegar fram til haustsins 2008.
Nýtt sameinað lögreglulið á Suðurnesjum býður upp á spennandi og
fjölbreytt franntíðarstörf. Ef viðkomandi líkar vel við lögreglustarfið er opinn
möguleiki að sækja í framhaldinu um nám í Lögregluskóla ríkisins strax
næsta sumar, en nýjir nemar verða teknir inn í Lögregluskóla ríkisins næsta
haust.
Um er að ræða vaktavinnu á 12 tíma vöktum 2-2-3. í slíku vinnufyrirkomulagi
myndast gott frí á milli vakta sem margir nýta sér til annarra starfa eða til að
sinna áhugamálum. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir fólk sem hefur langað til að
prufa lögreglustarfið og þá sem hafa áhuga á að breyta um starfsvettvang.
jSkilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla:
Vera ísleriskur ríkisborgari, 20-40 ára.
Hafa a.m.k. 68 einingar úr framhaldsskóla eða hafa staðist tveggja ára nám
í bekkjarkerfisskóla.
Hafa góða kunnáttu í íslensku, skrifa þarf íslenskan stíl með færri villum en
28, ótvíræður kostur er þó að vera mælandi á fleiri tungumál.
Áhersla er lögð á gott þrek og gott almennt líkamsástand, skilyrði er að vera
synd/ur, karlmenn þurfa að geta hlaupið 2 km á 9,30 mínúntum eða skemur,
I konur á 11 mínútum eða skemur.
Vera með almenn ökuréttindi, aukin ökuréttindi eru kostur.
Vera andlega og líkamlega heilbrigð/ur og standast læknisskoðun trúnaðar-
læknis.
Það kann að hindra framgang umsóknar að hafa gerst sek/ur um alvarleg
afbrot eða hafa fengið dóm fyrir brot á refsilögum.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á logreglan.is undir liðnum eyðublöð
(umsókn um afleysingastarf í lögreglu). Einnig er hægt aö nálgast eyðublöð á
lögreglustöðvum.
Nánari upplýsingar um stöðurnar veita:
Karl Hermannsson, yfirlögregluþjónn ÍKeflavík,
sími: 420 2470 GSM: 894 0620
Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli,
sími: 862 5210.
HjálmarÁrnason um prófkjörsmálin:
Líkur á lýðræðis-
legu kluðri
Utreið Suðurnesja-
manna í prófkjörum
Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks í Suðurkjör-
dæmi hefur ekki farið framhjá
neinum sem fylgist með stjórn-
málum.
Nú er svo komið að Hjálmar
Árnason gæti orðið eini alþing-
ismaður Suðurnesja. Það veltur
á því hvort Framsókn fái tvo
rnenn inn í kjördæminu, en
ekki síður á því að hann hljóti
brautargengi innan flokksins.
Víkurfréttir spurðu Hjálmar út í
hans mat á stöðunni.
Hvernig metur þú stöðu Suð-
urnesja ef eitginn af svœðinu
kemst á þing í nœstu kosn-
ingum?
Það yrði hreint siys ef enginn
Suðurnesjamaður kæmist inn
eftir næstu kosningar. Kalla
rnætti það meira að segja stór-
slys. Við erum 43% kjósenda af
Suðurkjördæmi. Það væri bein-
línis lýðræðislegt klúður ef þetta
stóra svæði ætti ekki beinan full-
trúa á þingi. Auðvitað skiptir
máli að þingmaður/menn séu
búsettir á svæðinu og hafi beina
tilfinningu fyrir málefnum
þess. Svo fjöldamörg dæmi í
sögunni sýna og sanna það. En
við skulum ekki vera að skella
skuldinni á aðra. Hér er aðeins
einu um að kenna: Sundurlyndi
okkar Suðurnesjamanna. Þeir
sem standa saman ná árangri,
sbr. Vestmannaeyingar sem
gætu átt 3 þingmenn en eru
aðeins 7% kjördæmisins. Þeir
standa þétt bak við sitt fólk
meðan Suðurnesjamenn dreifa
sér út og suður.
Er gatnla kjördœmapólitíkin
enn við lýði á Alþingi?
Menn telja sig vera að vinna
fyrir landið í heild og eiga að
hugsa þannig. Enginn kemst
hins vegar hjá því að fylgja
eftir málum sem upp spretta í
rótum heimahaganna - þar sem
hjartað slær. Að því leyti til er
og verður kjördæmapólitík til
staðar. Ég hygg hins vegar að í
framtíðinni muni landið verða
eitt kjördæmi.
Hvernig metur þú þína stöðu
fyrir kosningar?
Hvað sjálfan mig áhrærir hef
ég fundið fyrir þéttum stuðn-
ingi við áframhaldandi þing-
setu - ekki síst eftir útreið Suð-
urnesjamanna í þeim tvemur
prófkjörum sem búin eru. Þessi
stuðningu og hvatning eru von-
andi tákn um að fólk kunni að
einhverju leyti að meta störf
mín á þingi - hvort heldur er
í þágu landsin eða svæðisins.
Framsókn hlýtur að eiga tvo
þingmenn að lágmarki í Suður-
kjördæmi og ef allt fellur okkur í
hag gæti sá þriðji lent þar. Hvað
rnælir gegn því að Suðurnesja-
menn skipi 2 af þremur efstu
sætum Framsóknarflokksins í
næstu kosningum. Við höfum
íbúafjöldann til þess. Nú reynir
á viljann þegar prófkjörið fer
fram þann 20. janúar n.k. Sýnið
nú viljann í verki.
Ráðgjafarstofu lokað
Ráðgjafarstofa starfs-
manna á varnarsvæði
mun hætta starfsemi
frá næstu mánaðarmótum.
Síðasti starfsdagur stofunnar
verður fimmtudagurinn 30.
nóv. nk.
I tilkynningu frá ráðgjafarstof-
unni segir að undanfarna mán-
uði hafi gengið vonum framar
að finna ný störf fyrir fyrrum
starfsmenn á varnarsvæði
þannig að þau telja rétt að láta
staðar numið að svo komnu.
Helga Jóhanna Oddsdóttir, for-
stöðumaður, mun þó áfram vera
þeim sem ekki hafa enn fengið
störf við hæfi innan handar
fram á næsta ár. Hægt er að ná
sambandi við hana á bæjarskrif-
stofu Reykjanesbæjar, Tjarnar-
götu 12 og í síma 421-6700.
10 VIKURFRÉTOR i 47. TÖLUBLAÐ • 27 ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU. • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!