Víkurfréttir - 23.11.2006, Page 12
LAUS STÖRF
Laus er 100% staða almenns grunnskólakennara frá
1. janúar vegna fæðingarorlofs.
Einnig er laus 62,5% staða umsjónarmanns Frístundaskóla.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 421 1135, á
netfangi: johann.geirdal@reykjanesbaer.is og á heimasíðu
skólans: www.holtaskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og Kl. Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf berist Starfsmannaþjónustu Reykjanesbæjar,
Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, fyrir 7. desembern.k.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsþróunarstjóri.
...reykjanesbaer. is
LOKAÐ!
Lokað verður vegna árshátíðar
starfsmanna föstudaginn 24. nóvember
og laugardaginn 25. nóvember.
Opnum aftur mánudaginn 27. nóvember
El
HEKLA
Njarðarbraut 13- Fitjum
www.heklakef.is
í desember legg ég áherslu á:
• Jólahlaborð í heimahús
•Jólatapasveislur
• Útskriftarveislur
• Kem í heimahús og elda sé þess óskað. 1
Vantar þig sósu, súpu.ráðgjöf,
meðlæti eða desert?
Hafðu samband og við finnum út úr því.
Kveðja Örn Garðarsson matreiðslu
sími 692 0200, arn@soho.is, www.
'VI. k
í forystu alþjóðlegs verkefnis
Glatt var á hjalla í Stóru-
Vogaskóla fyrir helgi
þegar gestakennarar
frá fimm löndum unnu með
kennurum skólans í 1. og 2.
bekk. Heimsókn þessi var liður
i nýju og spennandi verkefni
sem nefnist The World Around
Us þar sem fimm þjóðir taka
þátt ásamt íslandi, Noregur,
Tékkland, Bretland, Belgía og
Frakklandi. Verkefnið gengur
út á að efla tungumálakennslu
í yngstu bekkjum grunnskóla.
Stóru-Vogaskóli er einmitt í for-
ystu þessa verkefnis og eru kenn-
ararnir Sigríður Ragna Birgis-
dóttir og Inga Sigrún Atladóttir
umsjónarmenn þess. Því var
fyrsti hluti verkefnisins haldinn
hér á landi, en á næstu þremur
árum verða mikil samskipti á
milli samstarfsskólanna, bæði
kennara og nemenda.
Þegar blaðamaður Víkurfrétta
leit við í skólanum var mikið
um að vera þar sem belgíski
kennarinn dansaði um alla stof-
una með börnunum, syngjandi
vísur á flæmsku og Vogabörnin
tóku hressilega undir. Af því má
greina að kennsluaðferðirnar
eru nokkuð frjálslegri en al-
mennt gengur og gerist en verk-
efnið gengur einmitt út á það
að nemendur læri tungumál í
gengnum umhverfið og skipt-
ist á upplýsingum, myndurn,
sögum, leikjum, söngvum, og
áhugaverðum stöðum í umhverf-
inu.
Eitt aðaltakmark verkefnisins
er að kynna börnin fyrir öðrum
menningarheimum. Fyrsta árið
er áherslan á skólann og leik-
völlinn. Meðal þess sem börnin
gera það árið er að skiptast á
kynningarmyndböndum urn
skólana sína. Þau senda rnyndir
af leikvöllunum og í því sam-
bandi búa þau til fjölþjóðlega
orðabók sem er unnin þannig
að börnin skrifa inn nöfnin á
þeim leiktækjum sem flnna má
á hverjum leikvelli fyrir sig á
þeirra tungumáli.
Annað árið verður unnið með
nánasta umhverfi barnanna,
og það þriðja er áhersla á hér-
aðið sem börnin búa í. Vinna
börnin þá saman að ferðabók
þar sem þau taka myndir eða
teikna myndir af stöðum sem
eru áhugaverðir í sinni heima-
byggð og senda sín á milli með
stuttum texta.
Gestakennararnir voru hér
á landi í fjóra daga og sögðu í
samtali við Víkurfréttir að þau
væru afar ánægð með dvölina.
Það sem kom þeim mest á óvart
var hversu mikið var líkt með
börnum hér á landi og jafn-
öldrum þeirra. íslensku börnin
væru þó ef til vill aðeins betri í
enskunni en gengur og gerist í
heimalöndum kennaranna.
Sparisjóðurinn hefur hafið
átak meðal viðskiptavina
sinna og landsmanna
allra til styrktar ákveðnum
verkefnum átta frjálsra félaga-
samtaka á sviði geðheilbrigðis-
mála. Markmið átaksins, sem
er kallað Þú gefur styrk, er að
safna 25 milljónum króna til
átta félagasamtaka en þau eru
ADHD-samtökin, Forma, Geð-
hjálp, Hugarafl, Klúbburinn
Geysir, Ný leið, Rauði kross
íslands og Spegillinn.
Söfnunarsími átaksins, þar
sem landsmenn geta lagt sitt af
mörkum er í síma 901-1000.
Hvert símtal kostar þúsund
krónur og dreifist sú upphæð
jafnt á verkefnin átta.
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur
fylgt þessu átaki eftir með því
að styrkja Björgina til næstu 3ja
ára. Björgin
er, eins og
m ö r g u m
mun orðið
kunnugt, at-
hvarf fyrir
fólkmeð geð-
raskanir og
er staðsett
í húsi Sjálfs-
bjargar við Fitjabraut 6c í Reykja-
nesbæ. Þangað kemur fólk á
eigin forsendum, en Björgin er
opin virka daga frá 10-16.
Björgin var formlega opnuð
þann 4. febrúar 2005 og hefur
fjöldi fastagesta margfaldast frá
opnun. I dag eru félagar um 30
talsins. Á Suðurnesjum búa nær
20 þúsund manns og hefur það
sýnt sig að mikil þörf er á því
úrræði fyrir geðsjúka í þessum
landshluta sem og öðrum.
Það er ánægjulegt að segja frá
því að síðan Björgin var opnuð,
hafa þó nokkrir félagar náð bata
og komist aftur út á vinnumark-
aðinn.
Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir,
forstöðumaður, sagði við þetta
tilefni að „samfélagslegur stuðn-
ingur eins og sá sem Sparisjóð-
urinn í Keflavík sýnir með fram-
lagi sínu er afar mikilvægur
fyrir starfsemi Bjargarinnar, en
einnig mikilvægur liður í að
rjúfa fordóma. ”
12 VfKURFRÉTTIR I 47.TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á METINU - • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!