Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 14
Verslun oe viðskipti
Q
Hatíðarhöld
á áratugsaf-
mæli
Verslun BYKO í Reykja-
nesbæ heldur upp á
10 ára afmæli sitt á
morgun og bjóða þar upp á
veglega dagskrá.
Víðir Atli Ólafsson, verslunar-
stjóri, segir árin tíu suður með
sjó hafa verið gjöful og skemmti-
leg og sjaldan meira fjör en
einmitt nú. Hann segir áherslur
verslunarinnar ekki hafa breyst
til muna síðan opnað var.
„Við gerum út á að vera hrein-
ræktuð byggingarvöruverslun
frekar en blanda af einhverju
öðru og leggjum áherslu á að
okkar sérsvið frekar en að vera
með mikið af sérvörum eða
þess háttar. Við ætlum að halda
þeirri stefnu og styrkja okkur
enn frekar á því sviði.”
Mikil spenna hefur verið í bygg-
BYKO
ingariðnaði síðustu misseri og
hafa byggingavöruverslanir ekki
farið varhluta af því. „Síðustu
tvö ár hafa verið lyginni líkust,”
segir Víðir. „Það sér raunar ekki
fyrir endann á því. Ég byrjaði
hér fyrir þremur árum í lág-
deyðu, en aðstæður hafa breyst
gríðarlega á Reykjanesi. Það
hefur verið óhemju skemmtilegt
að taka þátt í þessu mikla fjöri.”
Aðspurður segir Víðir að bygg-
ingarmarkaðurinn hafi róast í
stuttan tíma í sumar en tekið
við sér á ný jafnharðan. Hvað
framtíðina varðar sér hann fram
á annríki og skemmtilega tíma á
Suðurnesjum.
„Ég get ekki séð að það hafi
hægst mikið á, það hefur allaveg-
anna ekki sýnt sig hjá okkur. Við
búumst samt við því að ástandið
verði eðlilegra á næsta ári en
það þýðir ekki að sé að hægjast
um heldur er stressið og spanið
að minnka. Fólk er ef til vill að
átta sig á því að það er ekki að
missa af neinu þó það kaupi sér
ekki íbúð strax á morgun. Æði-
bunugangurinn hefur minnkað
og það er til góðs.”
Næst á dagskrá hjá Víði og starfs-
fólki hans eru hins vegar afmæl-
ishátíðarhöld og verður mikið
i boði fyrir viðskiptavini versl-
unarinnar, góð tilboð, skemmti-
legar uppákomur og ljúffengar
veitingar.
070707 frátekið fyrir
brúðkaup?
Bæjarráð Garðs setur spurningamerki við það hvort
dagsetningin 07.07.07 sé heppileg fyrir sæstu sólseturs-
hátíð á Garðskaga.
Lagt er til að dagsetning Sólseturshátíðar sé skoðuð nánar þar
sem vitað er t.d. að mörg brúðkaup verða 07.07.07 og því ekki
víst að það sé heppilegur dagur fyrir hátíðina. Garðmenn verða
því að ráðfæra sig við prest og kanna hvort önnur dagsetning
henti betur fyrir sólseturshátíðina.
10fjl886
IZU2000
Fjármál síödegis
Landsbankinn í Keflavík býöur þér til ráðstefnu um fjármál í gamla
bíósalnum í Duus-húsum mánudaginn 27. nóvember kl. 17:00.
Dagskrá
Krónan og efnahagsmálin
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans
Staða sveitarfélaga við núverandi efnahagsástand
Arni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Fundarstjóri:
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta
Boðið verður upp á léttar veitingar að ráðstefnu lokinni.
Vinsamlegast skráiö þátttöku á ráðstefnuna með því að senda póst til Berglindar R. Hauksdóttur
- berglind.hauksdottir@landsbanki.is eða hringið í síma 410 8183.
L Landsbankinn
Banki allra landsmanna í 120 ár
14 IVÍKURFRÉTTIR 47. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
VÍKURPRÉTTIR Á NETINlj • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU fRÉTTIR DAGLEGA!